Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu

Ferðafélag Fljótsdalshéraðs

Ferðafélag Fljótsdalshéraðs var stofnað árið 1969 og er deild í Ferðafélagi Íslands. Félagið skipuleggur á hverju ári ferðir fyrir félagsmenn og birtist áætlun yfir þær í ferðaáætlun Ferðafélags Íslands en auk þess er þær að finna hér á síðunni. Samstarf er við aðrar deildir FÍ svo sem Ferðafélag Fjarðamanna.

Ferðafélag Fljótsdalshéraðs á og rekur sex gistiskála. Sá nýjasti þeirra er í Loðmundarfirði, reistur sumarið 2009, og er hann eins og skálinn í Breiðuvík og Húsavík, nema tveimur metrum lengri. Einnig hefur félagið gefið út gönguleiðakort fyrir nágrenni Snæfells og nágrenni Kverkfjalla. Kortin fást í skálunum, á upplýsingamiðstöð ferðamála á Egilsstöðum og víðar. Hér geturðu einnig nálgast gönguleiðakort af Víknasvæði ásamt lýsingum á gönguleiðum.

Upplýsingar og bókanir í ferðir og skála eru hjá Ferðafélagi Fljótsdalshéraðs í síma 863-5813.  Netfang: ferdafelag@egilsstadir.is

Bókanir á sumrin: Kverkfjallaskáli s. 863-9236, Snæfellsskáli, Geldingafellsskáli og Egillsel á Kollumúla s.860-1393

Styttri ferðir, s.s. dagsferðir, verða auglýstar með viku fyrirvara á heimasíðu Ferðafélags Fljótsdalshéraðs en þar er einnig að finna nánari upplýsingar um félagið og starfsemi þess:  www.fljotsdalsherad.is/ferdafelag.


PÓSTLISTASKRÁNING

Með reglulegu millibili sendir skrifstofa FÍ út yfirlit yfir félagsstarf, ferðir og annað það sem spennandi kann að vera fyrir áhugfólk um ferðalög og náttúru.
Eitt fjall á vikuFerðafélag barnannaSkráðu þig í FerðafélagiðLaugavegurinnSkálar - yfirlitskortFerðaáætlun 2010Safnaðu fjöllum með FÍ

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Information in other languages

  • Information in English
  • Informationen auf Deutsch

Mynd