Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu

Eitt fjall á viku

Áríðandi: Þeir sem ekki hafa gengið frá gistingu í Landmannalaugum um helgina geri það sem fyrst.


 

Fimmtudagur 2. sept kl 18


Austurbær og Vesturbær ganga á Þorbjörn ofan Grindavíkur

  

Brottför úr Mörkinni kl 18:00

Akið Reykjanesbraut rétt suður fyrir Voga á Vatnsleysuströnd. Takið þar slaufuna undir Reykjanesbrautina inn á veg 43 til Grindavíkur.

Akið sem ákafast suður fyrir Svartsengi og hið Bláa lón og nú gnæfir Þorbjörn yfir. Rétt austan undir fjallinu ar dásnotur þrílitur vatnstankur. Þar er gott að leggja bílum og við hefjum gönguna.

þorbjörn-kort


 

Þorparar ganga á Grænudyngju

  

Brottför úr Mörkinni kl 18:00
Akið Reykjanesbraut suður fyrir Kúagerði. Takið slaufuna undir Reykjanesbrautina þar sem skilti vísar á Vatnsleysuströnd og Keili. Þegar komið er inn á malarveginn er mikilvægt að taka fyrstu slóð til suðurs í átt að Keili. Það er óskemmtilegt að villast inn í myrkviði malarnámsins sem er ögn austar.
Þegar þið komið suður á Höskuldarvelli þar sem vaninn er að leggja bílum til að hefja göngu á Keili skuluð þið halda ótrauð áfram eftir slóðinni til austurs að Eldborg. Þar er hægast að hefja göngu á Grænudyngju.
Grænadyngja-kort
GSM símar fararstjóra:
Páll Ásgeir: 699-7758
Rósa Sigrún: 691-2758
Þórður: 898-7350
Fríður: 898-7895

Helgarferð 52 fjallahópsins í Landmannalaugar 3-5 september 2010

Kl. 16.00 brottför úr Mörkinni 6 þar sem ferðalangar safnast saman í bíla og aka sem leið liggur inn í Landmannalaugar.
Nú er rétt að hafa í huga að þótt fólksbílafært sé nær alla leið í hlað í Laugum þá fara flestir á jeppum eða jepplingum þangað. Námskvíslin rennur enn yfir veginn rétt við tjaldstæðið og aka þarf yfir hana og lækinn úr Laugum nokkrum bíllengdum síðar. Þótt að jafnaði sé ekki um mikið vatn að ræða er það meira en svo en hægt sé að ráðleggja fólksbílaeigendum að leggja bíla sína í þennan akstur. Vegurinn inn í Landmannalaugar er grófur malarvegur og eftir álag sumarsins er hann yfirleitt mjög holóttur og þakinn með því sem oft er kallað „þvottabretti“ .  Að fenginni reynslu er því stefnt að því að hópurinn rúmist allur í eigin bílum.

Föstudagur:Gert er ráð fyrir að leiðangurinn komi í Laugar um kl. 19.00. Þátttakendur geta fengið gistingu í skálanum á Ferðafélagsverði en þar er rúm fyrir 75  manns.  Pantið því pláss í tíma. Hringið á skrifstofu FÍ –síma: 568-2533 og tilkynnið þátttöku ykkar og hvort þið hyggist gista í skálanum. Skálinn er frátekinn fyrir þennan hóp og þessvegna þarf að taka sérstaklega fram í símtalinu að viðkomandi tilheyri verkefninu.
Þegar menn hafa borið farangur sinn inn í Laugum og fengið sér að borða er gert ráð fyrir að halda af stað í kvöldgöngu á Bláhnúk (fjall eitt) Það er leiðangur sem tekur ca. 2 klukkutíma. Líklega verður orðið dimmt þegar hópurinn er á leið niður og þess vegna mjög mikilvægt að hafa ennisljós meðferðis.

Laugardagur:

Daginn eftir – á laugardegi er haldið af stað snemma eða um kl. 09:30 og stefnt eftir stikaðri leið til austurs framhjá mynni Grænagils og Brandsgilja og upp á Vörðuhnúk (fjall tvö). Þaðan liggur leiðin áfram inn á Skalla (fjall þrjú) og upp á topp hans í 1040 metra hæð. Þaðan er fágætt útsýni yfir vort fósturland nær og fjær og fer eftir veðri hve vel það nýtist.
Síðan liggur leiðin áfram til vesturs um Gráskalla og að Stórahver og verða fjölbreytt hverasvæði Stórahvers könnuð í þaula. Þaðan liggur svo leiðin áleiðis á Háöldu (fjall fjögur) en af henni er gríðarlegt útsýni yfir vesturhluta Fjallabaks. Þaðan liggur leiðin um Vondugil og heim í skála aftur. Þessi hringur er um 25 kílómetra langur og samanlögð hækkun mun fara vel yfir 1000 metra.  Sennilega verða flestir fegnir að komast í heitt bað eftir fjallahringinn og þenja svo raddböndin svolítið á kvöldvökunni.


Sunnudagur:

Daginn eftir- á sunnudegi vakna menn snemma og taka saman föggur sínar og halda af stað úr Laugum um kl. 10.00 að morgni. Eftir stuttan akstur er komið að Landmannahelli og þaðan verður haldið í göngu á Löðmund (fjall fimm) sem kalla má konung fjallanna á Fjallabaki. Svipmikill og hyrndur rís hann upp í 1079 metra hæð. Gert er ráð fyrir að ganga á hann taki um þrjá klukkutíma og því ætti leiðangurinn að geta haldið af stað til Reykjavíkur úr Landmannahelli um kl. 15.00.

Rauðar tær:

Í Landmannalaugum ætlum við að skella okkur í verkefnið "Rauðar tær". Algerlega nauðsynlegt að taka með sér  eldrautt naglalakk. Meiningin er að reyna að lakka á föstudagskveldi eða laugardagsmorgni þannig að hægt verði að mynda rauðar tær á sem flestum stöðum. Fyrir hverja lakkaða tá skal greiða 100 krónur. Féð sem safnast með þessu móti verður gefið til góðs málefnis og úthlutun ákveðin af sérstakri nefnd:
Nefndina skipa:

Reynir, Halla, Sigrún, Margrét, Þórdís.

Hvað á ég að hafa með mér?

Góður búnaðarlisti er á heimasíðu FÍ en í Landmannalaugum er gott að hafa sundföt að auki. Aftur skal minnt á að ennisljós er ómissandi í haustferðum og gera verður ráð fyrir vetrarveðri með frosti þótt vonandi  verði það ekki raunin. Gott skap er staðalbúnaður í ferðum eins og þessum.
Rétt er að taka fram að þessum leiðangri verður ekki aflýst vegna veðurs nema sérstök tilkynning um það berist frá Almannavörnum.

Fimmtudagur 9. sept kl. 18
Austurbær og Vesturbær ganga á Stóru Grænudyngju
Þorparar ganga á Þorbjörn ofan Grindavíkur


Laugardagur 18. sept kl. 9
Austurbær og Vesturbær ganga á Hafnarfjall
Þorparar ganga á Skessuhorn


Laugardagur 25. sept kl .9
Austurbær og Vesturbær ganga á Skessuhorn
Þorparar ganga á Hafnarfjall


Laugardagur 2. okt kl. 9
Austurbær og Vesturbær ganga á Heiðarhorn
Þorparar ganga á Arnarfell og Hrafnabjörg


Laugardagur 9. okt kl.
Austurbær og Vesturbær ganga á Arnarfell og Hrafnabjörg
Þorparar ganga á Heiðarhorn


Laugardagur 23. okt - fyrsti vetrardagur
Sameiginleg ganga allra hópa á Bjarnarfell
Sameiginleg máltíð að Hótel Geysi


Sunnudagur 7. Nóv
Austurbær og vestubær ganga á Ármannsfell
Þorparar ganga á Búrfell ofan Þingvalla
 
Sunnudagur 21. Nóv
Austurbær og vesturbær ganga á Búrfell
Þorparar ganga á Ármannsfell
  

Sunnudagur 19. Des –  Vetrarsólstöðuganga - Sameiginleg ganga allra hópa

Föstudagur 31. desember - Gamlársdagur - Lokagangan - Sameiginleg ganga allra hópa
Gefið upp síðar

  


 

Hér má finna upplýsingar um nokkur af fjöllunum 52 í Eitt fjall á viku.
Bætt verður í listann

  • Skjaldbreiður1
  • Skjaldbreiður2
  • Stóra Kóngsfell og Þríhnúkar
  • Svínaskarð
  • Vífilsfell
  • Þingvellir-Þjóðgarðurinn
  • Þríhnúkar - Bláfjöll
  • Þverfellshorn
  •   Markmið

    • Ganga á 52 fjöll á árinu
    • Stunda reglulega útiveru og hreyfingu
    • Taka þátt í skemmtilegum félagsskap
    • Setja sér  önnur markmið um bætt líkamlegt form, þol og þrek, styrkjast, léttast osvfrv.   

    Fyrirkomulag

    • Eitt fjall á viku, samtals 52 fjöll á árinu.
    • Fyrstu 6 gönguferðirnar eru á sunnudögum kl. 11, næstu 6 gönguferðirnar eru á laugardagsmorgnum kl. 9, næstu 6 eru á miðvikudögum kl. 18 og næstu 6 eru á fimmtudögum kl. 18.  Á þremur vikum ársins er safnað 10 fjöllum þannig að færi gefist á 10 vikna sumarfríi.  Í sumarfríinu eru heimaverkefni sem eru eitt fjall á viku, að eigin vali en bent verður sérstaklega á 10 fjöll víða um land og sérstaklega er bent á ferðaáætlun deilda FÍ.  
    • Auglýstur tími gönguferðar miðar við upphafsstað gönguleiðar, en ekki frá t.d. Mörkinni 6.  Tll dæmis, lagt er af stað í fyrstu gönguferðina kl. 11 frá bílastæðinu við Kaldársel.  Upphafsstaður gönguferðar og leiðarlýsing að honum er ávallt kynntur fyrir hverja ferð.

      Búnaður 

    • Góðir gönguskór
    • Göngufatnaður / hlífðarfatnaður / vatns- og vindheldur, auka peysa, ull eða fleece 
    • Legghlífar 
    • Bakpoki 
    • Sólgleraugu
    • Göngustafir 
    • (fararstjórar hafa með sér ýmsan öryggisbúnað, gps tæki, talstöðvar, sjúkrakassi, góða skapið ofl.    

    Fjöllin 52 

    • Tímasett dagskrá verkefnis verður kynnt hér á síðunni á næstu dögum, með upplýsingum lengd hverjar göngu, vegalengd og aksturstíma að upphafsstað göngu og leiðarlýsingu að upphafsstað göngu.

    Þátttökugjald í verkefninu  

    • Kr. 1000 á fjall, alls kr. 52.000 sem ganga þarf frá í upphafi verkefnis  eða fyrir 20. janúar

    • Skipta má upphæðinni niður í raðgreiðslur.  
    • Allir þátttakendur fá möppu með upplýsingum um verkefnið, með tímasettri dagskrá fjallanna, upplýsingum um göngulengd, hæðarhækkun, búnað og ýmsum fróðleik um fjallamennsku.  Mappan er afhent eftir að skráningu lýkur 20. janúar.

    • Í öllum ferðum er farið á einkabílum, nema að annað sé ákveðið. Þátttakendur taka þátt í sameiginum ferðakostnaði 

    • Hægt að fá styrki frá vinnuveitanda/stéttarfélögum til þátttöku í verkefninu.
    • Hjón greiða eitt og hálft gjald.
    • Heimilt er að taka börn með sér í einstaka ferðir eftir atvikum.
    • Hundar og heimilisdýr eru ekki leyfð með í gönguferðirnar

    PÓSTLISTASKRÁNING

    Með reglulegu millibili sendir skrifstofa FÍ út yfirlit yfir félagsstarf, ferðir og annað það sem spennandi kann að vera fyrir áhugfólk um ferðalög og náttúru.
    Eitt fjall á vikuFerðafélag barnannaSkráðu þig í FerðafélagiðLaugavegurinnSkálar - yfirlitskortFerðaáætlun 2010Safnaðu fjöllum með FÍ

    Slóðin mín:

    Ferðir » Eitt fjall á viku

    Stjórnborð

    Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

    Information in other languages

    • Information in English
    • Informationen auf Deutsch

    Mynd