Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Eitt fjall á viku

 

Heiðarhornið á laugardaginn

 
 
Laugardaginn 31. mars n.k. gengur 52 fjalla hópurinn á Heiðarhorn í Skarðsheiðinni sem er 1053 metra hátt og einn af hæstu tindum í nágrenni Reykjavíkur. Veðurspáin er ágæt og talsverður glímuskjálfti í hópnum en þetta er hæsta fjall sem hópurinn hefur gengið á fram að þessu.
Nánari upplýsingar hafa verið sendar til þátttakenda í tölvupósti.
 
 
 
Hér er hlekkur á ágætan búnaðarlista á heimasíðu FÍ.
Hér eru GSM númer fararstjóra í 52 fjallaverkefninu:
Páll Ásgeir 699 7758
Anna Lára 698 0488
Brynhildur 692 0029
Guðmundur 692 1114
Hjalti 824 7620
Rósa Sigrún 691-2758

Listi yfir fjöll ársins 2012 með dagsetningum.
Skráning á skrifstofu FÍ í síma 568-2533

Eitt fjall á viku 2012.

Þriðjud. 03.01. Kynning í sal FÍ kl. 20

Laugard. 07.01 kl. 11 Úlfarsfell
Hækkun 240 m. 4 km. 1-2 tímar

Laugard. 14.01 kl. 11 Mosfell
Hækkun 196 m. 3 km. 1-2 tímar

Laugard.  21.01 kl.10 Helgafell Hafnarf
Hækkun 260 m. 6 km. 2-3 tímar

Laugard. 28.01 kl. 10 Skálafell Mosheiði.
Hækkun 400 m. 4-5 km. 2 tímar

Sunnud. 05.02 kl. 10 Húsfell
Hækkun 200 m. 8-9 km. 3-4 tímar

Sunnud. 12.02 kl. 10 Helgafell Mos
Hækkun 150 m. 5 km. 2 tímar

Sunnud. 19.02 kl. 10 Skálafell á Hellish
Hækkun 300 m. 7 km. 3 tímar

Sunnud 26.02 kl. 09  Kerhólakambur
Hækkun 800 m. 5 km.  3-4 tímar

Laugard. 03.03 kl. 09 Stóri Meitill
Hækkun 250 m. 10 km. 4 tímar

Laugard 10.03 kl. 09 Geitafell
Hækkun 300 m. 8 km. 3 tímar

Laugard 17.03 kl. 09 Ingólfsfjall
Hækkun 500 m. 14 km. 5 tímar

Laugard. 24.03 kl. 09 Þverfellshorn
Hækkun 750 km. 8 km. 3-4 tímar

Laugard 31.03 kl.09 Heiðarhorn
Hækkun 970m. 11 km. 6 tímar


Miðvikud 04.04 kl. 18 Blákollur Hellish
Hækkun 300 m. 6 km. 3 tímar

PÁSKAFRÍ

Sunnud. 15.04 kl. 09 Botnssúlur
Hækkun 1000. 14-15 km. 5-6 tímar

Sunnud. 22.04 kl. 09 Hafnarfjall
Hækkun 740m. 14 km.  5-6 tímar

Miðvikud 25.04 kl. 18 Móskarðshnjúkar
Hækkun 700 m. 8 km. 4-5 tímar

Sunnud. 29.04 kl. 09 Akrafjall
Hækkun 550 m. 5 km. 2-3 tímar

Laugard. 05.05  Upp úr miðnætti Hvannadalshnjúkur. Hækkun 2050. 25 km. 12-15 tímar

Miðvikud. 09.05 kl. 18 Eyrarfjall í Kjós
Hækkun 280 m. 6 km. 3 tímar

Miðvikud. 16.05 kl. 18 Vífilsfell
Hækkun 420 m. 4-5 km. 2-3 tímar

Miðvikud. 23.05 kl. 18 Dýjadalshnjúkur
Hækkun 700 m. 7 km.  3-4 tímar

Laug- sun.  02-03.06
Helgi í Þórsmörk
Laugard. Rjúpnafell, Tindfjöll,  
Hækkun 700 m.  16 km. 7-9 tímar.
Réttarfell, Útigönguhöfði, Dímon
Hækkun 700 m. 7-8 km.  5-6 tímar

Laugard. 09.06 kl. 09 Skessuhorn
Hækkun 900m. 12 km. 7-8 tímar


Laugard. 16.06 kl. 08 Þrjú fjöll Grímsnesi
Vörðufell, Búrfell, Mosfell
Hækkun 950.  14 km.  5-6 tímar

SUMARFRÍ

Miðvikud. 08.08 kl. 18 Hrómundartindur
Hækkun 200 m. 6 km. 3 tímar

Miðvikud. 15.08 kl. 18 Grímmannsfell
Hækkun 400. 10 km. 3-4 tímar

Sunnud. 19.08 kl. 08 Skjaldbreiður
Hækkun 500 m. 8 km. 3-5 tímar

Sunnud 26.08 kl. 08 Vestmannaeyjar
Hækkun 500 m. 3-5 km.  Dagsferð.

Laug.- sun. 01-02.09.
Helgi í Landmannalaugum.
Vörðuhnjúkur, Skalli, Háalda,
900m. 26 km. 7-9 tímar
Bláhnjúkur og Löðmundur
Hækkun 800 m. 14 km. 6-7 tímar

Laugard.08.09  kl.08  Ok
Hækkun 500 m. 11 km.  5-6 tímar

Laugard 22.09 kl. 09 Keilir
Hækkun 250 m. 7 km.  3 tímar

Laugard 29.09 kl. 09 Hvalfell
Hækkun 700 m. 6 km.  5-6 tímar

Sunnud. 07.10 kl. 09 Kistufell
Hækkun 840 m. 11 km. 4-5 tímar

Sunnud 14.10 kl. 08 Þríhyrningur Rang.
Hækkun 600 m. 8 km.  4-5 tímar

Sunnud 28.10 kl. 09 Stóra Kóngsfell
Hækkun 200 m. 4 km. 2 tímar

Laugard 03.11 kl. 09 Þyrill
Hækkun 350 m. 9 km. 4-5 tímar

Laugard 10.11 kl. 10 Grænadyngja
Hækkun 280 m. 4-5 km. 2 -3 tímar

Laugard 24.11 kl. 10 Ármannsfell
Hækkun 600 m. 10 km. 5-6 tímar

Laugard 01.12 kl. 10 Skeggi úr Dyradal
Hækkun 430 m.  8 km.  3 tímar

Laugard 15.12 kl. 10 Vatnshlíðarhorn
Hækkun  250 m. 5 km 2-3 tímar

Mánud 31.12 kl. 10 Öskjuhlíð/útskrift
Hækkun 60 m. 5 km.  2-3 tímar

 


 

  Markmið

  • Að ganga á 52 fjöll á árinu
  • Að stunda reglulega útiveru og hreyfingu
  • Að taka þátt í skemmtilegum félagsskap
  • Að læra að þekkja eigin takmörk og viðbrögð við mismunandi aðstæður í veðurfari og náttúru
  • Að fræðast um gróðurríki, jarðfræði, sögu, menningu og sérkenni einstakra áfangastaða af menntuðum leiðsögumönnum
  • Að fræðast um fatnað og búnað í fjallaferðum og reyna á eigin skinni hvað er mikilvægast í þeim efnum
  • Að læra að búa út hollt og heilnæmt nesti og fræðast samspil næringar og álags við raunverulegar aðstæður

 

 Fyrstu gönguferðirnar eru  farnar á laugardögum kl. 10.00 í janúar, á sunnudögum kl. 10.00 í febrúar og á laugardögum kl. 09.00 í mars. Þegar kemur fram í apríl og maí bætast við göngur á virkum dögum.*
Á þremur vikum ársins er safnað 10 fjöllum þannig að færi gefist á 10 vikna sumarfríi. 

  • Auglýstur tími gönguferðar miðar við brottför úr  Mörkinni 6. 
    Upphafsstaður gönguferðar og leiðarlýsing að honum er ávallt kynntur fyrir hverja ferð.

  Búnaður 

  • Góðir gönguskór
  • Göngufatnaður / hlífðarfatnaður / vatns- og vindheldur, auka peysa, ull eða fleece 
  • Legghlífar 
  • Bakpoki 
  • Sólgleraugu
  • Göngustafir 
  • (fararstjórar hafa með sér ýmsan öryggisbúnað, gps tæki, talstöðvar, sjúkrakassi, góða skapið ofl.    

Fjöllin 52 

  • Tímasett dagskrá verkefnis verður kynnt hér á síðunni á næstu dögum, með upplýsingum lengd hverjar göngu, vegalengd og aksturstíma að upphafsstað göngu og leiðarlýsingu að upphafsstað göngu.

Þátttökugjald í verkefninu  

  • Kr. 1000 á fjall, alls kr. 52.000 sem ganga þarf frá í upphafi verkefnis  eða fyrir 20. janúar

  • Skipta má upphæðinni niður í raðgreiðslur.

  • Í öllum ferðum er farið á einkabílum, nema að annað sé ákveðið. Þátttakendur taka þátt í sameiginlegum ferðakostnaði.

  • Hægt að fá styrki frá vinnuveitanda/stéttarfélögum til þátttöku í verkefninu.
  • Heimilt er að taka börn með sér í einstaka ferðir eftir atvikum.
  • Varðandi þátttöku hunda þá eru þeir leyfðir með sérstökum skilyrðum og leiðsögumenn áskilja sér rétt til að grípa í taumana komi upp einhver vandamál þeim tengd.

 



Skiptimarkaður


Aðalstyrktaraðili FÍ

Stuðningsaðilar FÍ

Forsíða »

Ferðir » Eitt fjall » Eitt fjall á viku

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Information in other languages


Mynd

Sumarleyfisferð í Héðinsfjörð

Veldu ferðafélag