Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu

Söguferð um Árneshrepp og Reykjarfjörð nyrðri - Ferðir FÍ

Ferðir - RSS
Númer: S-24
Dagsetning: 23.7.2010
Brottfararstaður: Djúpavík
Viðburður: Söguferð um Árneshrepp og Reykjarfjörð nyrðri
Erfiðleikastig: Miðlungslangar dagleiðir (yfirleitt 5 – 7 klst.) oft í hæðóttu landi • bakpoki þarf ekki að vera þungur • engar eða auðveldar ár • þátttakendur þurfa að vera í nokkuð góðri þjálfunMiðlungslangar dagleiðir (yfirleitt 5 – 7 klst.) oft í hæðóttu landi • bakpoki þarf ekki að vera þungur • engar eða auðveldar ár • þátttakendur þurfa að vera í nokkuð góðri þjálfun
Lýsing:

S-24

HORNSTRANDIR                                                                                              

Söguferð um Árneshrepp og Reykjarfjörð nyrðri 

23.-29. júlí, 8 dagar

Fararstjóri: Guðmundur Hallvarðsson og Ólöf Sigurðardóttir

Hámarksfjöldi: 20

Þátttakendur koma á eigin vegum til Djúpuvíkur.

1. dagur, föstudagar: Litast um í Djúpuvík, Kúvíkum og á Gjögri. Gengið á Reykjaneshyrnu. Gist í húsi FÍ að Valgeirsstöðum í Norðurfirði.

2. dagur: Ekið í Ingólfsfjörð og gengið yfir Ingólfsfjarðarháls til Ófeigsfjarðar. Gengið að Rjúkanda og Hrúteyjarmúla Í fylgd heimamanna. Kaffihlaðborð í Ófeigsfirði.

3. dagur: Gengið á Hlíðarhúsafjall eða Kálfatinda jafnvel í Þórðarhelli og Kistu.

4. dagur: Siglt til Reykjarfjarðar. Dvalið þar m.a. með sögustund heimamanna.

5. dagur: Gengið á Geirólfsnúp og jafnvel einnig til Skjaldabjarnarvíkur.

6. dagur: Gengið um Hálsabungu að jökli eða fyrir Þaralátursnes á Hvítsand og um Kerlingavík til baka.

7. dagur: Siglt til Norðurfjarðar og heimferð.

Verð: 38.000 / 43.000

Innifalið: Gisting, sigling, síðdegishressing í Ófeigsfirði og fararstjórn.

Strandir norðan Bjarnarfjarðar eru gósenland þeirra sem heillast af horfinni tíð. Þar standa enn hrundar borgir ofsagróða síldaráranna í Djúpuvík og Eyri við Ingólfsfjörð. Þar byggðu menn stórt og spenntu bogann til hins ítrasta þegar silfur hafsins virtist óþrjótandi og verðið hækkaði látlaust.
Staðarhaldarar í Djúpuvík hafa reist þessum tíma verðugt minnismerki með sögusafni í gömlu síldarbræðslunni og með því að halda staðnum lifandi með búsetu sinni og móttöku ferðamanna.
Rétt utan við Djúpuvík eru Kúvíkur, reisulegur verslunarstaður um aldir en þar hefur grasið náð yfirhöndinni og fáeinir húsgrunnar það eina sem minnir á forna frægð. Íbúðarhús síðasta kaupmannsins á Kúvíkum stendur í Kaldbaksvík.
Í þessari ferð er höf'ð viðkoma á flestum merkustu sögustöðum Stranda og sérstaklega vitjað þeirra slóða þar sem heimamenn sitja enn með reisn og viðhalda anda og búskaparhefðum fyrri tíðar. Kaffihlaðborðið í Ófeigsfirði gleymist engum og gönguferð að fossunum miklu í Hvalsá er einn af hápunktum ferðarinnar.
Heimsóknin í Reykjarfjörð og dvölin þar er síðan til þess að kóróna vel heppnaða sögu - og upplifunarferð. Reykjarfjörður er paradís Stranda og þangað vilja allir Strandafarar koma aftur og aftur.
Þessi ferð er við allra hæfi þvi farangur er ávallt fluttur milli staða, gist er í húsum og viðbúnaður allur fyrsta flokks. Gönguferðir eru aldrei lengri en svo að þær ættu að vera við hæfi allra.

 

 


 

til baka

PÓSTLISTASKRÁNING

Með reglulegu millibili sendir skrifstofa FÍ út yfirlit yfir félagsstarf, ferðir og annað það sem spennandi kann að vera fyrir áhugfólk um ferðalög og náttúru.
Eitt fjall á vikuFerðafélag barnannaSkráðu þig í FerðafélagiðLaugavegurinnSkálar - yfirlitskortFerðaáætlun 2010Safnaðu fjöllum með FÍ

Slóðin mín:

Ferðir » Ferðir FÍ

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Information in other languages

  • Information in English
  • Informationen auf Deutsch

Mynd