Beint į leišarkerfi vefsins
Fara į forsķšu

Meš eilķfšinni į Arnarvatnsheiši: Surtshellir, gķgur, vķšerni og veiši - Feršir FĶ

Feršir - RSS
Nśmer: S-26
Dagsetning: 28.7.2010
Brottfararstašur: Mörkin 6 kl. 13
Višburšur: Meš eilķfšinni į Arnarvatnsheiši: Surtshellir, gķgur, vķšerni og veiši
Erfišleikastig: Nokkuš langar dagleišir (yfirleitt 6 – 8 klst.)  oftast gist ķ hśsum en getur žurft aš bera tjöld • gengiš ķ fjalllendi • getur žurft aš vaša erfišar įr • žįtttakendur žurfa aš vera ķ góšri žjįlfunNokkuš langar dagleišir (yfirleitt 6 – 8 klst.)  oftast gist ķ hśsum en getur žurft aš bera tjöld • gengiš ķ fjalllendi • getur žurft aš vaša erfišar įr • žįtttakendur žurfa aš vera ķ góšri žjįlfunNokkuš langar dagleišir (yfirleitt 6 – 8 klst.)  oftast gist ķ hśsum en getur žurft aš bera tjöld • gengiš ķ fjalllendi • getur žurft aš vaša erfišar įr • žįtttakendur žurfa aš vera ķ góšri žjįlfun
Lżsing:

S-26

HÁLENDIР                                                                               

Með eilífðinni á Arnarvatnsheiði: Surtshellir, gígur, víðerni og veiði 

Ķ samstarfi við Arinbjörn Jóhannsson á Brekkulæk í Miðfirði

28. júlí - 2. ágúst, 6 dagar                                                                    

Fararstjóri: Sigrún Valbergsdóttir    

Hámarksfjöldi: 14

Afar fáfarin gönguleið um afréttir Borgfirðinga og Vestur-Húnvetninga. Lagt er upp frá vaði á Norðlingafljóti meðfram Eiríksjökli og upp undir Langjökul. Þaðan er haldið norðvestur yfir Arnarvatnsheiði og niður í Miðfjörð. Bera þarf farangur fyrir utan mat.

1. dagur, miðvikudagur: Brottför með rútu kl. 13 frá Mörkinni 6. Ekið fram hjá Húsafelli. Surtshellir skoðaður á leiðinni að Norðlingafljóti. Farangur fluttur í náttstað. Gengið í Álftakrók, 9 km leið. Þar bíður hópsins heitur matur. Gist í gangnakofa.

2. dagur: Gengið um vegleysur milli vatna að gangnakofa í Fljótsdrögum og gist þar. 18 km.

3. dagur: Gengið upp í gíginn sem Hallmundarhraun rann úr fyrir um 1100 árum og upp á Jökulstalla utan í Langjökli. 18 km dagur. Aftur gist í Fljótsdrögum.

4. dagur: Gengið frá Fljótsdrögum yfir Langajörfa og síðan yfir Skammá, milli Réttarvatns og Arnarvatns. Gengið meðfram Sesseljuvík að Lónaborg við Grandalón og gist þar. 20 km.

5. dagur: Dvalið um kyrrt í Lónaborg. Veitt í matinn. Jurtagreining og fuglaskoðun. Um kvöldið er veiðin grilluð. Gist aftur í Lónaborg.       

6. dagur: Gengin um 5 km leið upp á veginn sem liggur frá Arnarvatni stóra niður í Miðfjörð. Rúta sækir hópinn og ekur honum í sund á Hvammstanga. Að því loknu bíður vegleg máltíð á Brekkulæk í Miðfirði. Að henni lokinni er ekið til Reykjavíkur og komið þangað kl. 22:30.

Verð: 50.000 / 55.000

Innifalið: Gisting í 5 nætur, matur (6 x kvöldverður, 5 x morgunverður, 5 x nesti), allur akstur, silungsveiði í matinn, sund á Hvammstanga og fararstjórn.

Með eilífðinni á Arnarvatnsheiði

„Ef til vill má telja til nytja af heiðunum að þar una menn vel, og þangað er gott að fara í fríum og hygg ég að það sé gott við taugaveiklun og kaupstaðarþreytu. Mikill unaður ríkir oft á þessum heiðum, þó landslag sé þar óvíða hrikalegt eins og þekktur maður hefur nýlega bent á í ræðu. Þarna er hægt að hlusta á fuglaklið, og menn geta prikað með önglum út í árnar, ef sveitamenn hafa gefið leyfi sitt til þess og festast þá stundum silungar á önglunum og deyja mönnum til ununar.“

 

Svona lýsir Þorsteinn Þorsteinsson frá Húsafelli veröld Arnarvatnsheiðar og Tvídægru í árbók Ferðafélags Íslands 1962. Ferðafélag Íslands býður einmitt upp á ferð um þessar dásamlegu heiðar í sumar ef vera kynni að einhver fyndi fyrir „taugaveiklun og kaupstaðarþreytu.“

Ferð þessi ber yfirskriftina: Með eilífðinni á Arnarvatnsheiði og er farin í samvinnu við Arinbjörn Jóhannsson sem rekur víðfræga ferðaþjónustu á bænum Brekkulæk í Miðfirði. Gist er gangnamannaskálum við gjöful veiðivötn og ferðalangar njóta sérstæðrar náttúru heiðanna fáförnu og veiða sér til matar eins og forfeður okkar hafa gert um aldir. Vötnin á Arnarvatnsheiði eru eitt af því sem talið var óteljandi til forna ásamt hólunum í Vatnsdal og eyjunum á Breiðafirði. Má til sanns vegar færa að erfitt sé að ná tölu á vötnin án þess að hafa flugvél til umráða en þau voru ekki bara óteljandi heldur einnig óþrjótandi matarkista fyrir alla sem bjuggu nálægt heiðinni.

Tilhögun ferðarinnar er með hætti að leiðangursmenn safnast í rútu í Mörkinni við hús Ferðafélagsins og aka sem leið liggur í uppsveitir Borgarfjarðar og ekið að Norðlingafljóti með viðkomu í Surtshelli. Þaðan er gengið í náttstað í Álftakróki sem eru um það bil níu kílómetrar.  Daginn eftir er gengið í kofa í Fljótsdrögum og þar verður gist í tvær nætur og á þriðja degi ganga leiðangursmenn lausir um Hallmundarhraun og upp á Jökulstalla utan í Langjökli sem blasir við úr Fljótsdrögum. Eiríksjökull er einnig alltaf nálægur, hvítur og storkandi en göngumenn hafa hann í augsýn allt þar til hallar til byggða í Miðfirði.

Į fjórða degi er gengið úr Fljótsdrögum yfir Langajörfa og Skammá milli Réttarvatns og Arnarvatns og að Lónaborg við Grandalón þar sem gist verður í tvær nætur. Daginn eftir una menn sér í lífríki heiðarinnar við fuglaskoðun, jurtagreiningu og veiðar til matar fyrir hópinn og skal vænta þess að kostuleg silungsveisla fylgi í kjölfarið.

Žegar dvölinni í Lónaborg lýkur er gengið skamman spöl eða fimm kílómetra upp á veg sem liggur úr Miðfirði að Arnarvatni og þar bíður rúta eftir hópnum. Haldið er í sund á Hvammstanga og síðan haldið að Brekkulæk í Miðfirði þar sem vegleg sameiginleg máltíð bíður hópsins en að loknum þeim kvöldverði er ekið til Reykjavíkur og ráðgert að koma þangað um kl. 22.00 um kvöldið.

Fararstjóri í þessari ferð er Sigrún Valbergsdóttir, varaforseti Ferðafélags Íslands. Sigrún er þrautkunnug á þessum slóðum og víðar því hún hefur ferðast áratugum saman um Ísland og er rómuð fyrir skemmtilega stjórn og vel skipulagðar ferðir.

 


 

til baka

PÓSTLISTASKRĮNING

Meš reglulegu millibili sendir skrifstofa FĶ śt yfirlit yfir félagsstarf, feršir og annaš žaš sem spennandi kann aš vera fyrir įhugfólk um feršalög og nįttśru.
Eitt fjall į vikuFeršafélag barnannaSkrįšu žig ķ FeršafélagišLaugavegurinnSkįlar - yfirlitskortFeršaįętlun 2010Safnašu fjöllum meš FĶ

Slóšin mķn:

Feršir » Feršir FĶ

Stjórnborš

Forsķša vefsins Stękka letur Minnka letur Senda žessa sķšu Prenta žessa sķšu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Information in other languages

  • Information in English
  • Informationen auf Deutsch

Mynd