Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu

Á Eyjafjallajökul úr Þórsmörk - Ferðir FÍ

Ferðir - RSS
Númer: D-10
Dagsetning: 30.5.2010
Brottfararstaður: Jökulgöngur úr Þórsmörk
Viðburður: Á Eyjafjallajökul úr Þórsmörk
Erfiðleikastig: Nokkuð langar dagleiðir (yfirleitt 6 – 8 klst.)  oftast gist í húsum en getur þurft að bera tjöld • gengið í fjalllendi • getur þurft að vaða erfiðar ár • þátttakendur þurfa að vera í góðri þjálfunNokkuð langar dagleiðir (yfirleitt 6 – 8 klst.)  oftast gist í húsum en getur þurft að bera tjöld • gengið í fjalllendi • getur þurft að vaða erfiðar ár • þátttakendur þurfa að vera í góðri þjálfunNokkuð langar dagleiðir (yfirleitt 6 – 8 klst.)  oftast gist í húsum en getur þurft að bera tjöld • gengið í fjalllendi • getur þurft að vaða erfiðar ár • þátttakendur þurfa að vera í góðri þjálfun
Lýsing: 25. maí - 8. júní

Boðið er upp á jökulgöngur úr Þórsmörk á hverjum degi með fararstjóra/skálaverði þegar aðstæður /veður leyfir frá 25. maí - 8.  júní.

Farin er Hátindaleið frá Stakki upp að Hátindum og þaðan upp á jökul og svo vestur eftir hábungu jökulsins alla leið á Innri-Skolt. Einstakt útsýni yfir öskju Eyjafjallajökuls og jökulfossana Gígjökul og Steinholtsjökul. 10 km hvor leið og 1600 m hækkun. Gengið er í línu undir stjórn þjálfaðra fararstjóra.

Fjöldi þátttakenda: 8 -12  með hverjum leiðsögumanni. Jöklabúnaður s.s. broddar og ísaxir.

Fyrir fólk í góðu formi sem vill takast á við nýtt og spennandi verkefni.

Verð kr. 10.000 / 13.000
Innifalið er fararstjórn og búnaður.

Hér er um nýmæli að ræða á dagskrá Ferðafélagsins. Ganga á Eyjafjallajökul neðan úr Þórsmörk er talsvert krefjandi verkefni því leiðin er 18-19 km. löng og hækkun á leiðinni í kringum 1300 metrar. Þátttakendur þurfa því að vera í sæmilega góðu líkamlegu formi og vanir fjallgöngum. 
Alkunna er að íslenskir jöklar hopa og þynnast með hverju ári sem líður og að sama skapi verða ferðir um þá áhættusamari. Eyjafjallajökull er brattur og sprunginn en Ferðafélag Íslands setur öryggi farþeganna ávallt í efsta sæti og fararstjórar félagsins eru reyndir jöklafarar sem hafa fengið sérstaka þjálfun í öryggismálum.


 

til baka

PÓSTLISTASKRÁNING

Með reglulegu millibili sendir skrifstofa FÍ út yfirlit yfir félagsstarf, ferðir og annað það sem spennandi kann að vera fyrir áhugfólk um ferðalög og náttúru.
Eitt fjall á vikuFerðafélag barnannaSkráðu þig í FerðafélagiðLaugavegurinnSkálar - yfirlitskortFerðaáætlun 2010Safnaðu fjöllum með FÍ

Slóðin mín:

Ferðir » Ferðir FÍ

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Information in other languages

  • Information in English
  • Informationen auf Deutsch

Mynd