Hattver - Feršir FĶ
Nśmer: S-32Dagsetning: 5.8.2010
Brottfararstašur: Mörkin 6
Višburšur: Hattver
Erfišleikastig:




Lżsing:
S-32
HÁLENDIÐ
Tjaldferð í Hattver
5.-8. ágúst, 4 dagar
Fararstjórar: Páll Ásgeir Ásgeirsson og Sigrún Rósa Jónsdóttir
Hattver er lítið þekkt paradís í hjarta hins stórkostlega Jökulgils. Þangað koma fáir nema smalamenn á haustin en svæðið býr yfir mörgum leyndardómum og lítið þekktum náttúruundrum sem engin leið er að nálgast nema fótgangandi.
Háuhverir eru geysiöflugt hverasvæði í vesturbrúnum Jökulgils. Þangað koma mjög fáir. Um er að ræða tjaldferð með bækistöð á einum stað. Nánari staðsetning tjaldbúða auglýst síðar.
1. dagur, fimmtudagur: Ekið úr Reykjavík snemma morguns í Landmannalaugar. Þegar þangað er komið axla leiðangursmenn farangur sinn og ganga með allt á bakinu úr Landmannalaugum um Reykjakoll, Skalla og áleiðis í Jökulgil. Líkleg lengd göngu um 8 km.
2. dagur: Deginum verður varið í könnunarleiðangur upp að hinum mögnuðu Háuhverum. Þar leynast leirhverir, hvæsandi gufuaugu, tvílitir fossar og sjóðandi ölkeldur og volgir lækir. Farið verður upp Sauðanef en niður hryggi við Jónsfoss og gert er ráð fyrir um 20 km göngu yfir daginn.
3. dagur: Þennan dag fara leiðangursmenn smalamannaleið upp úr Dalbotni upp að Torfajökli. Þaðan er haldið að Sveinsgilskvísl þar sem hún kemur undan jöklinum og hún vaðin við jökulrönd og skoðaður sérstæður grár jökulfoss í rauðu bergi sem leynist innst í kvíslinni. Svo er haldið eftir brúnum Sveinsgils til vesturs og vaðið aftur yfir kvíslina á móts við grænan hrygg sem verður ekki með orðum lýst. Þaðan er farið yfir Hrygginn milli gilja og komið ofan í Þrengslin í Jökulgili. Líkleg lengd göngu um 20 km.
4. dagur: Leiðangursmenn halda út í Laugar á ný og taka rútu til Reykjavíkur.
Verð: 30.000 / 35.000
Innifalið: Rúta og fararstjórn.
Jökulgilið er heimur út af fyrir sig. Að mörgu leyti minnir það á völundarhús því afkimar giljanna eru óteljandi og brattir hryggirnir sem skilja þá að eru ekki færir nema á vissum stöðum. Í þessum einstaka heimi er að finna náttúruundur sem eiga sér enga hliðstæðu á Íslandi. Stuðlahamarinn mikli úr rauðleitu eða bleiku líparíti er sá eini sinnar tegundir og svarti klettahatturinn sem gefur Hattveri nafn sitt er eins og gimsteinn í kórónu.
Jarðhiti er mjög mikill í Jökulgili og leynist víða. Hvæsandi gufuaugu, bullandi leirhverir, volgir eða heitir lækir og sérstæðar hvítar og gráar útfellingar er að finna í afkimum gilsins.
En þarna leynast einnig ríkulegar gróðurteygingar sérstaklega inni í Hamragiljum, í Hattveri og í krókum Sauðanefsins. Fé gengur í Jökulgili og þar er smalað á hverju hausti og þykir talsvert manndómsmerki að vera settur þar í efstu göngur og þurfa að hlaupa eins og smalahundur upp og niður úr kröppum giljum daglangt.
Žjóðsagan segir að Torfi bóndi í Klofa á Landi hafi flúið hingað með búsmala sinn og fjölskyldu þegar plága mannskæð herjaði í byggð. Torfa búnaðist vel í gilinu og annað slagið sendi hann mann upp á brúnir sem skyggndist til byggða og sá pestina liggja eins og bláa slæðu yfir sveitinni. Við Torfa er Torfajökull kenndur svo og Torfahlaup og Torfatindur við Álftavatn og sagan til í nokkrum tilbrigðum.
Lengi var því trúað að útilegumenn hefðust við í Jökulgili og var ekki smalað þar með skipulegum hætti fyrr en um miðja nítjándu öld. Þá fundu smalamenn fjölda fjár og heimtur bötnuðu verulega.
Žótt Jökulgil, Hattver og Háuhverir séu við þröskuldinn á fjölsóttasta ferðamannastað á hálendi Íslands í Landmannalaugum hefur verið fáfarið þar en á því verður breyting nú þegar út kemur árbók Ferðafélags Íslands sem fjallar um Torfajökulssvæðið og skipulögðum ferðum um þetta hulda töfraland fjölgar.
til baka
Leit
Mynd




















