Fjöršur - Valgaršur Egilsson - Feršir FĶ
Dagsetning: 9.7.2010Brottfararstašur: Grenivķk
Višburšur: Fjöršur - Valgaršur Egilsson
Erfišleikastig:



Lżsing:
Ferð í Fjörðu og Flateyjardal með Valgarði Egilssyni, lækni og rithöfundi.
FÍ býður upp á fjögurra daga ferð í Fjörðu og Flateyjardal með Valgarði Egilssyni sem fararstjóra, í samstarfi við Fjörðunga Grenivík. Sími Fjörðunga Jónsabúð, Jón Stefán Ingólfsson 463-3236 upplýsingar einnig hjá Valgarði Egilssyni í síma 862-5167.
Tjöld og svefnpokar: trússað með hestum. Boðið er upp á heitan kvöldverð öll kvöld (einnig við heimkomu) svo og dagnesti alla daga.
Mælt er með að hafa göngustafi og vettlinga.
Verð í ferðina er kr. 59.000 / 65.000
Dagur 1
Mæting við barnaskólann á Grenivík kl 10 að morgni.
Ekið í Svínárnes. Gengið norður Látrastönd að Látrum, fyrsta gististað.
Dagur 2
Gengið frá Látrum í Fossdal, yfir Uxaskarð, út í Keflavík (gististaður 2).
Dagur 3
Gengið úr Keflavík, um Messuklett, Hnjáfjall, Blæju, og austur í Þönglabakka (gististaður 3) .
Dagur 4
Erfiður dagur, lagt af stað mjög snemma. Gengið fyrsta áfanga að Kaðalstöðum í Hvalvatnsfirði. (Hægt er að enda ferð þar). Nú hefst ganga um Bjarnarfjallsskriður og þaðan austur á Flateyjardal þaðan er ekið til Grenivíkur og ferð lokið.
til baka
Leit
Mynd




















