Morgungöngur FÍ - Ferðir FÍ
Númer: D-3ADagsetning: 3.5.2010
Brottfararstaður: Brottför kl. 6 frá Mörkinni 6
Viðburður: Morgungöngur FÍ
Erfiðleikastig:


Lýsing: 3. - 7. maí, mánudagur - föstudags
Fararstjórn: Páll Ásgeir Ásgeirsson og Rósa Sigrún Jónsdóttir
Á fjöll við fyrsta hanagal. Fjallganga í nágrenni Reykjavíkur eldsnemma morguns, alla daga vikunnar. Komið til baka um kl. 9. Farið á einkabílum.
Þátttaka ókeypis, allir velkomnir.
Á fjöll við fyrsta hanagal
„Hann Tumi fer á fætur, við fyrsta hanagal,” segir í kvæði sem öll börn á Íslandi kunnu áður en sjónvarpið náði almennri útbreiðslu og er sungið við lag eftir Wolfgang Amadeus Mozart.
Ferðafélag Íslands hefur í nokkur ár vaknað við fyrsta hanagal í eina viku á hverju vori og staðið fyrir svokölluðum morgungöngum.
Þessar hressandi göngur hafa notið mikilla og sívaxandi vinsælda undanfarin ár og virðast margir nota þetta tækifæri til að hefja göngusumarið og gera átak fyrir sig persónulega. Í þessum ferðum er lögð áhersla á þá einstæðu samvist við náttúruna sem býðst á þessum tíma sólarhrings þegar fólkið er sofandi er fuglarnir eru að vakna og allt leiftrar og logar af lífi á íslenskum vormorgni. Göngurnar eru fyrst og fremst hugsaðar sem hressandi morgunstemmning í kátum félagsskap fremur en svínslega erfiðar fjallgöngur.
Vorið 2010 eru morgungöngurnar á dagskrá dagana 3-7 maí að báðum dögum meðtöldum. Hvaða fjöll verða fyrir valinu verður nánar auglýst síðar en líklega verður listinn svipaður og síðastliðið vor. Það eru hjónin Páll Ásgeir Ásgeirsson og Rósa Sigrún Jónsdóttir sem stjórna morgungöngunum eins og tvö undanfarin ár.
Þátttakendur þurfa nánast ekkert nema viljann til þess að vakna með hröfnum á morgnana, og auðvitað góðan fatnað og gönguskó en ekkert gjald er tekið af morgungörpum. Gott er að hafa göngustafi og luma á vatnsbrúsa eða hitabrúsa í bakpokanum. Svo safnast menn saman í Mörkinni og halda þaðan á vit fjallanna stundvíslega klukkan sex.
til baka
Leit
Mynd




















