Beint į leišarkerfi vefsins
Fara į forsķšu

Vatnaleišin: Hlķšarvatn - Hķtarvatn - Langavatn - Hrešavatn - Feršir FĶ

Feršir - RSS
Nśmer: S-6
Dagsetning: 2.7.2010
Brottfararstašur: Mörkin 6 kl. 9
Višburšur: Vatnaleišin: Hlķšarvatn - Hķtarvatn - Langavatn - Hrešavatn
Erfišleikastig: Nokkuš langar dagleišir (yfirleitt 6 – 8 klst.)  oftast gist ķ hśsum en getur žurft aš bera tjöld • gengiš ķ fjalllendi • getur žurft aš vaša erfišar įr • žįtttakendur žurfa aš vera ķ góšri žjįlfunNokkuš langar dagleišir (yfirleitt 6 – 8 klst.)  oftast gist ķ hśsum en getur žurft aš bera tjöld • gengiš ķ fjalllendi • getur žurft aš vaša erfišar įr • žįtttakendur žurfa aš vera ķ góšri žjįlfunNokkuš langar dagleišir (yfirleitt 6 – 8 klst.)  oftast gist ķ hśsum en getur žurft aš bera tjöld • gengiš ķ fjalllendi • getur žurft aš vaša erfišar įr • žįtttakendur žurfa aš vera ķ góšri žjįlfun
Lżsing:

S-6

VESTURLAND                                          

Vatnaleiðin: Hlíðarvatn - Hítarvatn - Langavatn - Hreðavatn 

2.-4. júlí, 3 dagar                                              

Fararstjóri: Sigurður Kristjánsson

Hámarksfjöldi: 20      

1. dagur, föstudagur: Brottför frá Mörkinni 6 kl. 9  og ekið að Hlíðarvatni og hefst gangan þar um kl. 13. Gengið austur Hellisdal. Úr Hellisskarði er gengið til baka út á Rögnamúla og að skálanum við Hítarvatn þar sem gist verður fyrri nóttina.

2. dagur: Gengið austur Þórarinsdal, farið að Háleiksvatni ef veður leyfir, gengið Gvendarskarð að Langavatni og að skálanum við Torhvalastaði og gist þar.

3. dagur: Gengið suður fyrir Beylá að Vikrafelli og yfir á það. Þeir, sem vilja, ganga með fjallinu að norðanverðu og áfram niður að Hreðavatni og að Bifröst þar sem snædd verður sameiginleg máltíð. Á Bifröst er hægt að fara í sturtu og heitan pott. Komið til Reykjavíkur um kl. 22 á sunnudagskvöld. 

Verð:  32.000 / 37.000

Innifalið: Rúta, gisting, trúss, fararstjórn, kvöldverður að Bifröst.

Að baki fjallanna sem blasa við þegar ekið er um Borgarfjörð og Mýrar leynist undurfagurt landslag með fáförnum dölum, dularfullum vötnum þar sem sagt er að skrímsli séu á sveimi og gleymdum eyðibýlum.
Ferðafélag Íslands hefur vakið athygli á þeim ferðamannaslóðum sem þarna er að finna en 2009 kom út smárit sem ber nafnið Vatnaleiðin -gönguleiðir milli Hnappadals og Norðurárdals. Þar er fjallað ítarlega um svæðið sem Sigurður Kristjánsson hyggst ganga með áhugasömum ferðalöngum á sumri komanda. Undanfarin ár hefur þessi leið verið farið á hverju sumri og notið mikilla vinsælda.
Fyrsti náttstaðurinn við Hítarvatn er sérlega fallegur en umhverfi vatnsins er stórbrotið og hrikalegt með vindsorfnu móbergi í steinrunnum tröllamyndum. Hítardalur og Hítarvatn er sögusvið margvíslegra þjóðsagna og þar er að finna tröllskessuhellir og ummerki eftir útlaga og margt forvitnilegt.
Langavatn er undurfagurt fjallavatn og Langavatnsdalur mikill unaðsreitur. Þótt steinsnar sé niður í byggð að þjóðvegi með byljandi umferð er fátt í Langavatnsdal sem minnir á búsetu mannsins. Á leiðinni þangað er gengið að Háleiksvatni sem er afskekkt fjallavatn í 539 metra hæð yfir sjó. Bersi goðlausi nam land í Langavatnsdal og bjó á Torfhvalastöðum en þar munu göngumenn einmitt gista í ágætum skála og eflaust una sér á kvöldvöku við upprifjun þjóðsagna og sagna af erfiðu mannlífi hér í fjalladalnum fyrr á öldum.
Seinasta daginn er gengið að baki fjalla uns komið er niður að ilmandi kjarrskógum Hreðavatns og þar tekur siðmenningin við á ný með heitum pottum og þægindum. Þar er gott að sitja en þótt líkaminn sé kominn til byggða er sálin enn í óbyggðum.


 

til baka

PÓSTLISTASKRĮNING

Meš reglulegu millibili sendir skrifstofa FĶ śt yfirlit yfir félagsstarf, feršir og annaš žaš sem spennandi kann aš vera fyrir įhugfólk um feršalög og nįttśru.
Eitt fjall į vikuFeršafélag barnannaSkrįšu žig ķ FeršafélagišLaugavegurinnSkįlar - yfirlitskortFeršaįętlun 2010Safnašu fjöllum meš FĶ

Slóšin mķn:

Feršir » Feršir FĶ

Stjórnborš

Forsķša vefsins Stękka letur Minnka letur Senda žessa sķšu Prenta žessa sķšu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Information in other languages

  • Information in English
  • Informationen auf Deutsch

Mynd