Baráttan við björgin - Á slóðum lágfótu - Ferðir FÍ
Númer: S-9Dagsetning: 4.7.2010
Brottfararstaður: Norðurfjörður
Viðburður: Baráttan við björgin - Á slóðum lágfótu
Erfiðleikastig:



Lýsing:
S-9
HORNSTRANDIR
Baráttan við björgin - Á slóðum lágfótu
4.-10. júlí, 7 dagar
Fararstjóri: Ólöf Sigurðardóttir
Hámarksfjöldi: 18
Í þessari ferð er leitast við að gefa þátttakendum góða mynd af fuglabjörgunum miklu Hornbjargi og Hælavíkurbjargi. Á þessum slóðum, í grennd við björgin og í Hlöðuvík, Hornvík og Látravík er einmitt kjörlendi lágfótu. Þátttakendur koma til Norðurfjarðar laugardaginn 3. júlí og gista á Valgeirsstöðum. Sameiginlegur matur sem ekki er innifalinn í fargjaldi er fluttur á báða gististaði og farangur fluttur á milli gististaða.
1. dagur, sunnudagur: Siglt til Hlöðuvíkur. Gist í húsi.
2.-3. dagur: Dvalið í Hlöðuvík.
4. dagur: Gengið í Látravík og gist í Hornbjargsvita.
5.-6. dagur: Dvalið í Látravík.
7. dagur: Siglt til Norðurfjarðar.
Verð: 56.000 / 61.000
Innifalið: Sigling, gisting, flutningur á farangri og sameiginlegum mat og fararstjórn.
til baka
Leit
Mynd




















