Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu

Í Tröllahöndum á Tröllaskaga - Gönguferð og ævintýradvöl í Svarfaðardal - Ferðir FÍ

Ferðir - RSS
Númer: S-13
Dagsetning: 12.7.2010
Brottfararstaður: Húsabakki í Svarfaðardal
Viðburður: Í Tröllahöndum á Tröllaskaga - Gönguferð og ævintýradvöl í Svarfaðardal
Erfiðleikastig: Nokkuð langar dagleiðir (yfirleitt 6 – 8 klst.)  oftast gist í húsum en getur þurft að bera tjöld • gengið í fjalllendi • getur þurft að vaða erfiðar ár • þátttakendur þurfa að vera í góðri þjálfunNokkuð langar dagleiðir (yfirleitt 6 – 8 klst.)  oftast gist í húsum en getur þurft að bera tjöld • gengið í fjalllendi • getur þurft að vaða erfiðar ár • þátttakendur þurfa að vera í góðri þjálfunNokkuð langar dagleiðir (yfirleitt 6 – 8 klst.)  oftast gist í húsum en getur þurft að bera tjöld • gengið í fjalllendi • getur þurft að vaða erfiðar ár • þátttakendur þurfa að vera í góðri þjálfun
Lýsing:

S-13

NORÐURLAND                                                                                      

Í Tröllahöndum á Tröllaskaga - Gönguferð og ævintýradvöl í Svarfaðardal 

12.-16. júlí, 5 dagar

Í samvinnu við Kristján Eldjárn Hjartarson að Tjörn í Svarfaðardal, sem verður fararstjóri, er boðið uppá fimm daga ævintýradvöl í stórbrotinni náttúru Svarfaðardals. Allt í einum pakka: fjölbreyttar gönguleiðir um ægifagran fjallasal, jarðfræði, fuglaskoðun, jurtagreining, örnefnastúdía og þjóðfræði í bland við alþýðukveðskap og innansveitarkróniku. Þátttakendur mæti að Húsabakka í Svarfaðardal sunnudaginn 11. júlí kl. 20. Gist verður á Húsabakka allan tímann. Þar eru rúm, en fólk þarf að hafa með sér sængurföt eða svefnpoka. Allar ferðir eru dagsferðir, miserfiðar en aðeins gengið með létta dagspoka og aldrei þarf að vaða ár. Stundum gengið í bröttum skriðum hlíða og á fjallseggjum, ennfremur gengnar fannir og smájöklar. Til fróðleiks er þátttakendum bent á árbækur Ferðafélagsins frá 1973 og 1990.

1. dagur, mánudagur: Gengið ,,Vikið" í kringum Karlsárfjall. Þegar upp í Vikið er komið blasir fjallahringur Svarfaðardals við yfir Bæjarfjallið og útsýni inn Eyjafjörð. (6 klst., 770 m hækkun)

2. dagur: Gengið að Steinboga og inn að Gljúfrárjökli. Farið á dráttarvél yfir Skíðadalsá á vaði. Á brattann er haldið upp hálsinn milli Heiðinnamannadals og Gljúfrárdals þar til komið er að hinni merkilegu náttúrusmíð Steinboganum. (7 klst. ganga, 400 m hækkun)

3. dagur: Gengið kringum Hnjótafjall. Farið frá Atlastöðum í Svarfaðardal fram Neðri-Hnjóta að Heljarbrekku og upp að Stóruvörðu efst á Heljardalsheiði. Gengið niður Skallárdal að Atlastöðum. (8-9 klst. ganga, 850 m hækkun)

4. dagur: Gengið á Hvarfshnjúk frá bænum Hofsá. Farið upp á öxl fjallsins og gengnar eggjar með jafnri og öruggri hækkun allt þar til komið er upp á sjálfan Hvarfshnjúkinn. Þaðan er einstakt útsýni yfir svarfdælska byggð og út Eyjafjörð. (8 klst. ganga, 900 m hækkun)

5. dagur: Genginn hringur um láglendi Svarfaðardals með viðkomu á söguþekktum slóðum s.s. Sundskála Svarfdæla, Gullbringu, Arngrímsstofu og Tjörn. Farið um friðland Svarfdæla og fuglalíf skoðað og endað á Húsabakka. (4 klst. létt láglendisganga)

Verð: 50.000 / 55.000

Innifalið í verðinu er fullt fæði, húsnæði og leiðsögn. 


 

til baka

PÓSTLISTASKRÁNING

Með reglulegu millibili sendir skrifstofa FÍ út yfirlit yfir félagsstarf, ferðir og annað það sem spennandi kann að vera fyrir áhugfólk um ferðalög og náttúru.
Eitt fjall á vikuFerðafélag barnannaSkráðu þig í FerðafélagiðLaugavegurinnSkálar - yfirlitskortFerðaáætlun 2010Safnaðu fjöllum með FÍ

Slóðin mín:

Ferðir » Ferðir FÍ

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Information in other languages

  • Information in English
  • Informationen auf Deutsch

Mynd