Nokkrir dagar ķ frķi frį FACEBOOK! - Feršir FĶ
Nśmer: S-19Dagsetning: 18.7.2010
Brottfararstašur: Hornstrandir
Višburšur: Nokkrir dagar ķ frķi frį FACEBOOK!
Erfišleikastig:


Lżsing:
S-19
HORNSTRANDIR
GÖNGUFERÐ FYRIR UNGLINGA, 14-17 ÁRA
Nokkrir dagar í fríi frá FACEBOOK!
Hornbjargsviti - Reykjarfjörður
18. - 22. júlí, 5 dagar (Ath. hér er rétt dags, röng dags. í Ferðaáætluninni)
Hámarksfjöldi: 20
Fararstjórar: Felix Bergsson og Baldur Þórhallsson. Þeir eru feður tveggja unglinga og hafa á undanförnum árum farið í ævintýraferðir bæði utanlands og innan með krökkunum sínum. Ævintýraferð fyrir unglinga.
18.júlí Gist í Norðurfirði
19.júlí er siglt til Bolungarvíkur og gist þar í tvær nætur.
20.júlí farið í Hornbjargsvita og gist þar í tvær nætur.
22.júlí er siglt frá Hornbjargsvita til Norðurfjarðar.
Verð: 25.000 / 30.000
Innifalið: Rúta, gisting, sigling og fararstjórn.
Ferðafélag Íslands byggir á gömlum merg og þjóðlegum en hefur samt aldrei gleymt að rækja það hlutverk sitt að leiða ungu kynslóðina á vit náttúrunnar og kenna henni að meta töfrana sem felast í sambandi við íslenskra náttúru.
Žetta hefur Ferðafélagið gert árum saman með ferðum sem skipulagðar eru sérstaklega fyrir unglinga og síðustu árin hefur reyndar þetta unglingastarf vaxið mjög. Þetta birtist meðal annars í ferðum eins og þeirri sem ber yfirskriftina: Nokkrir dagar í fríi frá Facebook. Þar gefst unglingum kostur á að ferðast um afskekkt héruð og stórbrotna náttúru og kynnast landinu og sjálfum sér á nýjan hátt.
Fararstjórar í þessari sérstöku ferð eru þeir Felix Bergsson leikari og Baldur Þórhallsson stjórnmálafræðingur en þeir eru báðir feður unglinga og hafa talsverða reynslu af ferðum með unglinga innan lands og utan.
Į Hornbjargsvita er margt að sjá og skoða. Fyrir flesta er stórkostleg upplifun að koma á þennan afskekkta stað þar sem menn hafa alltaf þurft að reiða sig á sjálfa sig og hyggjuvit sitt. Núverandi staðarhaldarar hafa einstakt lag á að sýna gestum sínum hið áhugaverða í byggingum staðarins kynna þeim góðfúslega þau tækniundur sem vitinn býr í raun yfir.
Vinsælasta gönguferðin frá vitanum liggur út á Hornbjarg. Þræddar eru brúnir þessa stórkostlega bjargs þar sem Fjalirnar standa úr sjó eins og steinrunnin risavaxin rakblöð. Úr Almannaskarði liggur stígur með brún út í Harðviðrisgjá og þaðan út að rótum Kálfatinds sem er flestum áhugaverður áfangastaður enda hæsti staður bjargsins og fágæt reynsla að liggja þar á brúninni og horfa 535 metra beint niður í fjöru.
Sé veðrið gott er hægt að lengja ferðina áfram eftir brúnum yfir Miðfell og alla leið út á Horn. Þaðan mætti fylgja fornum götum og fara um hlaðið á Hornsbæjunum á leið heim aftur.
Skemmtileg leið er frá vitanum yfir Kýrskarð yfir í Hornvík og hóflegt verkefni að fara að Höfn eða Rekavík bak Höfn og aftur til baka. Einnig má benda á að sérlega skemmtilegt er að fara yfir Axarfjall austur frá vitanum yfir á Bjarnarnes að rústum þess sem kallað var harðbýlasta kot á Hornströndum. Þar niðri í fjörunni má sjá merkileg göt í berginu eftir trjáboli.
Eftir dvöl á vitanum er hressandi að koma í Reykjarfjörð og demba sér í hina eftirsóttu sundlaug og skola af sér fugladritið og sjóveikina.
Eyðibyggðirnar á Ströndum hafa sérstakt aðdráttarafl fyrir alla Íslendinga og hafa ferðir um þessar slóðir notið gríðarlegra vinsælda undanfarin ár. Hér býður Ferðafélag Íslands æsku landsins til ævintýraferðar um afskekktar slóðir þar sem tækifæri leynast til þess að kynnast uppruna sínum.
til baka
Leit
Mynd




















