Héšinsfjöršur - Hvanndalir - Feršir FĶ
Nśmer: S-20Dagsetning: 22.7.2010
Brottfararstašur: Siglufjöršur
Višburšur: Héšinsfjöršur - Hvanndalir
Erfišleikastig:




Lżsing:
S-20
NORÐURLAND
Héðinsfjörður - Hvanndalir
22.-24. júlí, 3 dagar - bakpokaferð
Fararstjórar: Daði Garðarsson og Ívar J. Arndal
Ferð um eyðibyggðir yst á Tröllaskaga, einhver afskekktustu byggðarlög landsins á fyrri tíð.
Byggð lauk í Héðinsfirði 1951. Þar er gróður fagur en með útnesjablæ. Á Hvanndölum var
búið til 1896. Þar telja menn að hafi verið einangruðust mannabyggð við Norður-Atlantshaf.
Má kalla búsetu þar tilraun um þanþol mannsins.
1. dagur, fimmtudagur: Gengið á Hestskarðshnúk og áfram í Héðinsfjörð um Pútuskörð, afar fáfarna gönguleið. Gist í Héðinsfirði.
2. dagur: Farið snemma morguns yfir í Hvanndali um Víkurbyrðu. Ódáinsakur heimsóttur og sagan rifjuð upp. Gist í Hvanndölum.
3. dagur: Gengið í Selskál og í Sýrdal og þaðan upp Hvanndalabjarg, niður Austaravik og Víkurbyrðu til Héðinsfjarðar og áfram til Siglufjarðar þar sem ferðinni lýkur. Leiðir eru háðar veðri og aðstæðum. Dagleiðir geta verið langar og gengið er um háar og brattar skriður.
Verð: 26.000 / 31.000
Innifalið: Fararstjórn.
Hvergi á Íslandi eru fjöllin brattari og torgengari en einmitt hér. Andstæðurnar eru ríkar því á vetrum hverfur þetta land undir snjó dýpri en víðast hvar þekkist í mannabyggðum. En um sumur er óhindruð útsýn norður til Íshafsins og sólin gengur ekki undir allan sólarhringinn.
Žetta er krefjandi og erfið gönguferð um há fjallaskörð, um brattar skriður og tæpar götur. Hér er beðið um að þátttakendur séu vanir slíkum leiðöngrum og í nógu góðu formi til þess að njóta ferðarinnar. Í staðinn fá þeir að ganga um slóðir sem eiga sér enga hliðstæðu, um ríki þúsundblaðarósarinnar í Héðinsfirði, koma á Ódáinsakur í Hvanndölum og ganga um Sýrdal og Selskál. Leiðirnar virðast við fyrstu sýn aðeins vera færar fugli fljúgandi en undir traustri leiðsögn finnast fornar götur.
Į leiðinni yfir Víkurbyrðu sér vel yfir til Hestfjalls handan Héðinsfjarðar þar sem eitt mannskæðasta flugslys á Íslandi varð um miðja tuttugustu öld. Niðri í Hvanndölum má rifja upp söguna af Ódáinsakrinum sem veitti ábúanda eilíft líf og dæmi um fólk sem flutti úr Hvanndölum frekar en að búa undir þeim dómi.
Į leið úr Hvanndölum til Ólafsfjarðar er farið eftir brúnum Hvanndalabjargs sem er meðal hæstu standbjarga í sjó á Íslandi, gengið eftir brúnum Skötugjár og rifjuð upp sagan af tröllunum sem hér búa og áttu til að tæla til sín mennskar konur og sér enn rauða hurð á klettaveggnum þar sem gengt var til stofu tröllanna.
Til þátttakenda í ferð FÍ í Héðinsfjörð og Hvanndali 22. – 24. júlí Nýjar upplýsingar 12. júlí: Búið er á fá leyfi hjá framkvæmdaraðilum í Héðisfjarðargöngum til að flytja farangur okkur ķ gegnum göngin og mun F.Í sjá um þann flutning. Sækja þarf farangur að gangnamunnanum Héðinsfjarðarmeginn og bera hann að Vík þar sem tjaldað verður til tveggja nátta.Til upplýsinga eru hér nokkur atriði sem skipta máli: Žátttakendur koma á eigin vegum til Siglufjarðar. Gott er að koma að kvöldi 21. júlí og gista í Siglufirði. Ferðin hefst klukkan 10:00 að morgni fimmtudagsins 22. júlí frá bænum Hóli, golfvelli heimamanna, žar mæta þátttakendur með allan búnað og vistir sem þeir hafa fyrir ferðina .Bílar eru geymdir á Hóli meðan á ferðinni stendur. Gengið verður á Hestskarðshnúk og áfram yfir Hestinn í Héðinsfjörð, afar fáfarna gönguleið. Gott að taka með sér dagpoka og nesti til dagsins.Vaða þarf Héðinsfjarðarós á leiðinni í tjaldstæðið í Vík. Flestir fara úr skóm og vaða berfættir, sumir hafa vaðskó, gúmmiskó eða vaðsokka. Að morgni 2. dags er gengið yfir Víkurbyrðu, um Vestaravik í Hvanndali. Í Hvanndölum göngum við í Selskál og þaðan eftir Hádegisrana og gægjumst niður í Sýrdal undir Hvanndalabjargi. Gott er að synda í tjörnum í Selskál og Hvanndölum og því tilvalið að hafa með sér sundföt og handklæði. Leið 2. Ef veður leyfir þá er áætlað að ganga upp Hádegisfjallið á Miðdegishyrnu, fram á Hvanndalabjargið og þaðan niður í Sýrdal. Į þriðja degi er gengið um Pútuskörð, þverum Nesdalinn, um Kálfsskarð, niður Kálfsdalinn að Selvíkurnefsvita, og þaðan sem leið liggur að upphafsstað göngunnar þar sem ferðinni lýkur.Leiðir eru háðar veðri og aðstæðum. Dagleiðir geta verið langar og gengið er um háar og brattar skriður. Įætlað er að ferð ljúki seinniparts laugardags á Siglufirði . Þá er gott að fara í sund í ágætri sundlaug bæjarins og mýkja lúna vöðva.Nauðsynlegur búnaður fyrir ferðina: Tjald, svefnpoki, dýna, koddi, hlífðarfatnaður og annar fatnaður til ferðarinnar meðal annars húfa og vettlingar, góðir gönguskór, aukaskór, nokkur pör af sökkum, göngustafir, sólgleraugu, sólarvörn, sundfatnaður, handklæði, mataráhöld,salernispappír, hitabrúsi, primus, gasNesti til ferðarinnar, þ.e til þriggja göngudaga, þrír morgunverðir, 2 kvöldverðir. Nesti er hefðbundið eftir venjum hvers og eins, t.d. brauð, álegg, cornflakes, súrmjólk, harðfiskur, kaffi, kakó, kex, súkkulaði og eitthvað að maula, auk kvöldverða. Allt rusl verður að bera til baka.Akstur til Siglufjarðar frá Reykjavík tekur ca. 5 klst. Betra er að aka Þverárfjall, þá er beygt til vinstri af þjóðvegi eftir að komið er í gegnum Blönduós og yfir Þveráfjall til Sauðárkróks. Žetta eru áætlaðar leiðir og gististaðir gætu breyst, allt er þetta með fyrirvara um að veður og geð farastjóra verði skaplegt.Žátttakendur eru 12-14 í ferðinni og eru tveir fararstjórar með hópinn. Nánari upplýsingar veita fararstjórar í síma 897-0768 og 897-0769 Með góðum kveðjum,
Daði og Ívar
til baka
Leit
Mynd




















