Fréttir
9.3.2010
Esjan iđar af lífi
Næsta ganga er í kvöld kl. 18.00.
8.3.2010
Ferđafélag Austur-Skaftfellinga 30 ára
Félagið rekur einn skála, Múlaskála í Lónsöræfum og hefur gistináttum þar fjölgað verulega milli ára og mikið bókað í sumar.
Sunnudaginn 14. mars kl. 14.00 verður afmæliskaffi í Nýheimum á Höfn þar sem félagsmenn og velunnarar fagna saman og deila minningum og myndum. Dregið verður í lukkuleik Strandgöngu sem staðið hefur yfir og ferðadagskrá komandi sumars kynnt.
4.3.2010
Esjan alla daga 8. - 12. mars - Dagskrá
Ef veður leyfir verður reynt að fara aðrar leiðir á fjallið en hina hefðbundnu. Sjá nánar hér að neðan. Brottför er ávallt kl. 18.00.
Tilvalið fyrir þá sem eru að undirbúa sig fyrir gönguferðir sumarsins, Hvannadalshnúk eða annað. Eins er þetta afar góð aðferð fyrir þá sem vilja missa nokkur kg á skömmum tíma.
3.3.2010
Útivist eldri og heldri borgara
Á fimmtudögum hittast menn og konur svo við Nauthól í Nauthólsvík kl. 14.00 og þaðan liggja stígar meðfram sjónum í báðar áttir og hlykkjast ennfremur um alla Öskjuhlíðina.
Ferðafélagið leggur til fararstjóra í þessar gönguferðir og hefur Alfreð Hilmarsson tekið þetta verkefni að sér fyrir félagið en Alfreð er vaskur göngugarpur sem er enn léttur á fæti þótt árunum fjölgi. Þetta verkefni er unnið í samvinnu við Valitor sem hefur átt náið og gott samstarf við Ferðafélag Íslands í nokkur ár.
Allar rannsóknir sýna að fátt er betri heilsubót til sálar og líkama en að taka sér hressandi gönguferð með skemmtilegu fólki. Í þessum ferðum er vegalengd og gönguhraði stilltur í samræmi við virðuleika þátttakenda og meðalaldur hópsins hverju sinni.
2.3.2010
Vađnámskeiđi frestađ fram í apríl
25.2.2010
Námskeiđ um Vatnajökulsţjóđgarđ
25.2.2010
Innbrot í bíla á útivistarsvćđum
25.2.2010
"Ljótuhúfudagur" á Keili
Verkefnið Eitt fjall á viku með FÍ er í rífandi gangi og á laugardaginn kemur ganga Vesturbæingar á Keili, Austurbæingar kanna Valahnúka og Valaból en Þorparar ganga á Helgafell ofan Mosfellsbæjar. Ganga hefst kl. 0900 á laugardagsmorgun og gæti orðið meiri snjór fyrir fæti en verið hefur fram að þessu.
Vesturbæjarhópurinn efnir til "ljótuhúfudags" á Keili á laugardag og verður veitt viðurkenning fyrir ófrýnilegasta höfuðfatið í leiðangrinum. Mikill keppnishugur er í mönnum og konum og hefur heyrst af sérstökum verslunarferðum af þessu tilefni. Má því búast við harðri keppni og kannski taka aðrir hópar upp þennan sið.
24.2.2010
Esjan fjóra daga í röđ
FÍ fjör í Esjunni - vertu til er vorið kallar á þig er hafið en það felst í því að ganga á Esjuna fjóra daga í röð. Í gær, þriðjudag fór hópurinn upp í allhvössum vindi en ágætlega björtu veðri. Mönnum þótti talsvert streð að baksa upp með vindinn í fangið og var því látið nægja að fara upp að Steini.
Í dag miðvikudag verður haldið áfram og ástæða til að hvetja fólk til að mæta í þetta hressilega verkefni. Veðurspáin fyrir daginn er áhugaverð, spáð er norðlægri átt og síðdegis gæti orðið einhver ofankoma. En gott skap og hlýr fatnaður er rétta veganestið í fjallgöngur að vetri.
Fararstjóri er Þórður Marelsson. Lagt er af stað frá Esjustofu kl. 18 alla daga. Takið með ykkur höfuðljós og góðan búnað.
Nýjar auglýsingar
Leit
Mynd






















