Fréttir
23.12.2007
Blysför FÍ og Útivistar
Blysför FÍ og Útivistar
Blysför FÍ og Útvistar verður laugardaginn 29. desember. Gangan hefst frá Nauthóli kl .17.15 og er gengið í gengum skóginn í Öskjuhlíðinni að Perlunni þar sem flugeldasýning Landsbjargar hefst kl. 18. Jólasveinar heimsækja hópinn í skóginum, bregða á leik og taka lagið.
Allir velkomnir, þátttaka ókeypis.
21.12.2007
Skrifstofan lokuð - vaktsími skála
Skrifstofa FÍ er lokuð frá 21. desember og yfir jólahátíðina vegna framkvæmda. Skrifstofan opnar á ný 3. janúar. Sérstakur vaktsími vegna skála er 845 – 1214.
21.12.2007
FÍ fréttir - 21. des
Fréttapóstur frá FÍ 21. desember.
Kökuganga, blysför, þrettándaferð, vaktsími.
17.12.2007
Göngugleðin á gönguskíðum
Sunnudaginn 9. des. kom ekkert annað til greina en að fara á gönguskíði. Það var
nægur snjór og gott færi til þeirrar iðkunar á Bláfjallasvæðinu. Við gengum þennan hefðbundna hring sem að þessu sinni var ekki troðinn. Það var nánast logn mestallan tímann og sólarlaust, en góð fjallasýn.
14.12.2007
Jólagjafir á skrifstofu FÍ - gjafakort og árbækur
14.12.2007
FÍ Cintamani húfur - vetrarhúfa og jólagjöf
Nú fást á skrifstofu FÍ ullarhúfur með flís fóðrun merktar FÍ. Húfurnar eru á sérstöku tilboðsverði

fyrir félagsmenn í Ferðafélaginu á kr. 2.900. Verð í verslunum kr. 5.990. Hægt er að hringja og panta húfu eða koma við á skrifstofunni. Takmarkað upplag er til af húfum.
12.12.2007
Fréttapóstur FÍ 12. desember
Fréttapóstur frá FÍ 12. desember.
Hægt er að skrá sig á póstlista FÍ á heimasíðunni og fá reglulega fréttir af ferðum og félagsstarfi félagsins.
12.12.2007
Myndakvöld FÍ í kvöld - rannsóknarferðir Jónasar og hugmyndir um virkjun Hagavatns
Næsta myndakvöld FÍ er miðvikudagskvöldið 12. desember. Sveinn Jakbobsson jarðfræðingur fjallar um rannsóknarferðir Jónasar Hallgrímssonar og Ólafur Örn Haraldsson forseti FÍ fjallar um hugmyndir um virkjun Hagavatns og sýnir myndir frá gönguleiðinni frá Bláfellshálsi um Jarlhettur, að Hagavatni, Hlöðufelli um Klukkuskarð að Laugarvatni.
10.12.2007
Tilkynning frá Ferðafélagi Skagafjarðar
Ferðafélag Skagfirðinga tilkynnir: 
Ingólfsskála í Lambahrauni, norðan Hofsjökuls hefur nú verið læst af illri nauðsyn.
Í anddyri skálans sem verður opið, er lyklageymlsa með talnalás. Ferðamenn sem koma að skálanum án þess að eiga gistingu pantaða, skulu hringja í eitthvert neðantalinna númera til að fá rétta talnaröð að lásnum.
10.12.2007
Nýtt met í sögu FÍ - stysta gönguferð félagsins
Ný met var sett í sögu FÍ í aðventuferð félagsins í gærdag. Ferðin var stysta gönguferð sem
félagið hefur staðið fyrir. Gangan hófst við styttu Jóns Sigurðssonar á Austurvelli. Þaðan var gengið í Alþingishúsið, ca 75 metra og úr Alþingishúsinu yfir í Dómkirkjuna, ca 50 metra. Lauk þar göngunni og var því gengið um 125 metra í þessari gönguferð sem þó tók um 2 tíma.
7.12.2007
Fréttapóstur frá FÍ 7. desember
Fréttapóstur frá FÍ 7. desember.
Hægt er að skrá sig á póstlista FÍ á heimasíðunni og fá reglulegar fréttir af starfi félagsins, ferðum og félagslífi.
7.12.2007
Aðventuganga FÍ í miðbæ Reykjavíkur
Aðventuganga FÍ - Sunnudagur 9. desember kl. 17.00. Gönguferð í miðbæ Reykjavíkur. Heimsókn í Alþingishúsið með fræðslu um starf þings og fróðleik um húsið. Síðan er gengið yfir í Dómkirkjuna og átt þar góða stund. Fararstjóri í ferðinni er Ólafur Örn Haraldsson forseti FÍ. Guðjón Friðriksson sagnfræðingur verður með fróðleik um miðbæinn. Mæting við styttu Jóns Sigurðsson við Austurvöll.
4.12.2007
Ályktun stjórnar FÍ um Kjalveg
Uppbyggður vegur yfir Kjöl með hraðri og þungri umferð mun stórspilla óbyggðum hálendisins. Hávaði og gnýr frá slíkri umferð á malbikuðum vegi berst gríðarlega langt, umferðin stingur algerlega í stúf við þá náttúrustemningu sem þarna ríkir, ævintýri óbyggðaferða á sumri og vetri er úr sögunni, enn einu sinni verður gengið á takmarkað land óbyggðanna og það rist í sundur,
Nýjar auglýsingar
Leit
Mynd
























