Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu

Fréttir

Fréttir FÍ - RSS

28.2.2007

Aukaferðir á Hornstrandir - Baráttan við björgin og Saga, byggð og búseti

Ferðafélagið hefur nú sett upp tvær aukaferðir á Hornstrandir.  Annars vegar ferð sem nefnist rekaviðurBaráttan við björgin og er frá 26. júní - 2. júlí og hins vegar ferð sem nefnist Saga, byggð og búseta og er farin 29. júlí til 4. ágúst. Hornstrandaferðir FÍ í sumar eru margar uppseldar en laus sæti í Jónsmessa og jóga og Sæludagar í Hlöðuvík. Nánari lýsing á þessum ferðum er að finna undir ferðir hér á heimasíðunni.

28.2.2007

Esjan og Úlfarsfell - gönguferðir framundan

Ferðafélagið býður nú upp á gönguferðir á Úlfarsfell á föstudögum í mars og apríl og á Esjan - grjóteyriEsjuna / Úlfarsfell á miðvikudögum í maí og júní.  Þessar gönguferðir eru farnar í samstarfi við FIT Pilates og verður Smári Jósafatsson íþróttafræðingur fararstjóri í ferðunum.  Gönguferðirnar í mars á Úlfarsfell eru klukkan 17.30. Þátttaka er ókeypis, allir velkomnir.

28.2.2007

Göngugleði 25. febrúar, ferðasaga

Við gengum í sól og fallegu veðri upp á heiðina og nokkuð til austurs miðað við fyrri ferðir og höfðumGöngugleði skíði 500 ágæta útsýn yfir til Heklu og jökla. Það eina sem skyggði á göngugleði okkar var að jeppar höfðu ekið eftir brautinni (trúlega í skjóli nætur) svo erfitt var að fylgja sporunum og þurftum við því oft að skipta um spor !

27.2.2007

Æfingaprógram - Hvannadalshnjúkur - Esjan

Á morgun miðvikudag verður gengið á Esjuna í æfingaprógrammi FÍ fyrir Hvannadalshnjúk. Lagt Esjan - grjóteyriverður af stað frá bílastæðinu við Mógilsá kl. 18.00. Takið með ykkur góðan búnað, hlífðarföt, góða skó, nesti og stafi, höfuðljós er einnig ágætt að hafa með. Gengið verður upp að steini. Allir velkomnir.

27.2.2007

Göngugleði - stutt ferðasaga 18. feb

Sunnudagsgangan 18. febrúar, var um Heiðmörk, norðurhlutann. Gengnir voru 10 km í einhvers konar hring á hálfri þriðju klukkustund. Kaffi var drukkið í logni. Nánast ekkert rigndi á okkur og hlýtt var í veðri. Þátttakendur voru 22.

20.2.2007

Myndakvöldi FÍ aflýst

Myndakvöldi FÍ sem vera átti annað kvöld, miðvikudaginn 21. feb hefur verið aflýst vegna forfalla.  Næsta myndakvöld FÍ verður því í mars.

13.2.2007

Félagsvist

Kæru spilafélagar.  Næsta félagsvist verður þriðjudaginn 20. febrúar.  Vistin hefst kl: 20:00.  SpilaðSpil-150 verður í Mörkinni 6 – í risinu. Hámark þátttakenda er 52.  Fyrstir koma – fyrstir fá. Vinsamlega athugið að félagsvistin er ætluð félögum í Ferðafélaginu og gestum þeirra.  Verðlaun verða veitt, kaffi og kökur.  Sérstök verðlaun verða veitt þeim sem flest stig hlýtur samtals á öllum spilakvöldum vetrarins.

13.2.2007

Göngugleði - ferðasaga

Síðast liðinn sunnudagsmorgun mættu 22 til göngu. Tveimur var ráðið frá því að fara með vegna vanbúnaðar. Haldið var upp í Bláfjöll og þar skiptist hópurinn í tvo jafnstóra flokka, 10 í hvorum, sem báðir héldu til Þríhnjúka, annar á skíðum, hinn fótgangandi.

9.2.2007

Hvannadalshnjúkur - æfingaprógrammið

Ferðafélagið hefur um langt árabil staðið fyrir gönguferðum á Hvannadalshnúk. Ferðir FÍ síðast liðin tvö ár undir stjórn Haraldar Arnar Ólafsssonar hafa verið geysivinsælar og fjölmennar. Félagið vill nú aðstoða göngufólk við undirbúning fyrir ferðina og setur fram æfingaáætlun fyrir ferðina

9.2.2007

Ályktun stjórnar Ferðafélags Íslands vegna Kjalvegar

Ályktun stjórnar Ferðafélags Íslands vegna hugmynda Norðurvegar um fjölfarinn, uppbyggðan hálendisveg um Kjöl þar sem tilgangurinn er fyrst og fremst sá að tengja saman landhluta en ekki að styrkja Kjöl sem eftirsóknarvert óbyggðasvæði.

7.2.2007

Æfingaprógram fyrir Hvannadalshjnúk

Ferðafélagið býður nú upp á æfingaprógram fyrir ferðina á Hvannadalshnjúk sem félagið stendur vatnajokullfyrir um Hvítasunnuhelgina.  Æfingaprógrammið verður kynnt á fundi fimmtudaginn 8. febrúar kl. 17.00 í risinu í Mörkinni 6.

7.2.2007

Skíðaferð í Landmannalaugar

Ferðafélagið stendur fyrir skíðaferð í Landmannalaugar um næstu helgi 9. - 11. febrúar. Lagt skidamynd-100verður af stað frá Mörkinni 6 kl 18.00. Áætlað er að koma í Landmannalaugar um miðnætti. ...

7.2.2007

Fjölskyldu og jeppaferð í Landmannalaugar - skálavörður til starfa

Ferðafélagið stendur fyrir fjölskyldu og jeppaferð í Landmannalaugar um næstu helgi.  Ferðin erLandmannalaugar lúlli hugsuð fyrir jeppa á minnst  31".  Farið verður í tveimur hópum, fyrri hópurinn fer á seinnipart föstudags og seinni hópurinn kl. 8 á laugardagsmorgni.... 

6.2.2007

Ferðaáætlunin fær góðar viðtökur

Nýútkomin Ferðaáætlun FÍ 2007 hefur fengið góðar viðtökur.  Í áæltuninni er að finna dagsferðir, vatnajstarthelgarferðir, sumarleyfisferðir og útrásarferðir FÍ.  Frá því að áætlunin kom út eru nú 7 sumarleyfisferðir fullbókaðar.  Dagsferðir til að mynda í Langasjó og sigling niður Hvítá njóta einnig vinsælda.

6.2.2007

Göngugleði - ferðasaga 4. febrúar

Sunnudaginn 4. febrúar héldu 7 skíðagönguglaðir og tveir án skíðaGöngugleði í Bláfjöll.  Veðurútlit var gott, skilti við Geitháls gaf til kynna logn og 3° frost.  Við lögðum upp frá efsta skíðaskálanum ...


PÓSTLISTASKRÁNING

Með reglulegu millibili sendir skrifstofa FÍ út yfirlit yfir félagsstarf, ferðir og annað það sem spennandi kann að vera fyrir áhugfólk um ferðalög og náttúru.
Eitt fjall á vikuFerðafélag barnannaSkráðu þig í FerðafélagiðLaugavegurinnSkálar - yfirlitskortFerðaáætlun 2010Safnaðu fjöllum með FÍ

Slóðin mín:

Forsíða » Fréttasíða

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Information in other languages

  • Information in English
  • Informationen auf Deutsch

Mynd