Fréttir
30.3.2007
Ţrautarganga hjá Ferđafélagi Fljótsdalshérađs
30.3.2007
Páskar í Landmannalaugum
Ferđafélagiđ verđur međ skálavörslu í Landmannalaugum yfir páskana. Panta ţarf gistingu í skálann á skrifstofu FÍ. Ef ţátttaka er fyrir hendi verđur bođiđ upp á dagsferđir frá skálanum. Ferđamenn koma á eigin vegum í Landmannalaugar.
30.3.2007
Jeppadeildin í Ţórsmörk yfir páskana
Jeppadeild Ferđafélagsins verđur međ ađsetur í Langadal í Ţórsmörk yfir páskana og fer í lengri eđa skemmri dagsferđir frá skála FÍ. Verđ fyrir jeppa í ferđir jeppadeildar er krónur 6000 hvort heldur tekiđ er ţátt í öllum ferđum yfir páskana eđa fćrri.
30.3.2007
Ferđafélag Fljótsdalshérađs auglýsir eftir sjálfbođaliđum í skála
28.3.2007
Hvannadalshnjúkur - ćfing - Esjan 4. apríl
Gengiđ verđur á Esjuna 4. apríl í undirbúningi fyrir göngu FÍ á Hvannadalshnjúk. Mćting kl. 17.55 viđ bílastćđiđ viđ Mógilsá en gangan hefst kl. 18. Ţátttaka er ókeypis allir velkomnir.
27.3.2007
Göngugleđi - ferđasaga - 25 mars
Mćttir voru 17 manns, 10 međ skiđi og 7 án ţeirra. Ţeir skíđalausu héldu í Búrfellsgjá og eru ţeir
ţar međ úr sögunni. Skíđafólkiđ hélt í Bláfjöll ađ vanda. Stoppađ var austan viđ Eldborgina og skíđin tekin af og haldiđ af stađ. Ţá var hörkurok....
26.3.2007
Endurbćtur í Hvítárnesi
Ferđafélagiđ mun í sumar ráđast í gagngerar endurbćtur á elsta skála félagsins og fyrsta sćluhúsi
landsins, skálanum í Hvítárnesi. Skálinn liggur nú undir skemmdum og međal annars hafa grjóthleđslur sigiđ inn sem og tréverk hússins hefur látiđ á sjá. Skálinn ţykir engu ađ síđur hafa yfir sér mikinn sjarma og verđur ţess sérstaklega gćtt viđ uppbyggingu skálans ađ varđveita einkenni hans og upprunalegan svip.
26.3.2007
Krossá skiptir um farveg
Krossá hefur í gegnum tíđina dansađ um aura Ţórsmerkur sem og Hvanná og lítiđ veriđ hćgt viđ
ţćr systur ađ eiga. Krossá hefur ţó nú í nokkuđ langan tíma skilađ sér undir göngubrúnna sem stendur neđan viđ Langadal. Nú hefur áin hins vegar breytt sér og rennur mun vestar niđur aurana en áđur og göngubrúin ţví hálf munađarlaus sem stendur og vakir yfir tómum fyrrverandi farvegi árinnar. Ţar međ er engin göngubrú nú yfir Krossá og ţví nćsta verkefni FÍ og Útivistar ađ koma Krossá aftur í farveg undir brúnna.
26.3.2007
Skálaverđir ráđnir til starfa hjá FÍ
Ferđafélagiđ hefur nú ráđiđ skálaverđi í alla skála félagsins í sumar. Bćđi er um ađ rćđa skálaverđi
sem hafa veriđ áđur og einnig eru nokkrir nýliđar. Mikill áhugi er á skálavarđarstarfinu og sóttu fjölmargir um ađ ţessu sinni, enda starfiđ bćđi lifandi og skemmtilegt.
Á myndinni er Heiđa fyrrverandi skálavörđur í Langadal ađ bjarga bíl úr Krossá.
22.3.2007
Ársskýrsla um starfsemi Ferđafélags Íslands 2006
Ferđafélag Íslands er 80 ára á árinu 2007. Félagiđ stendur traustum fótum og gegnir mikilvćgu
hlutverki međal ţjóđarinnar. Kjörsviđ félagsins eru ferđalög um landiđ, einkum óbyggđir, rekstur sćluhúsa og útgáfustarf á ýmsum sviđum og ber ţar hćst útgáfu árbókarinnar en hún hefur komiđ út samfellt frá árinu 1928. Á 80 ára ferli er eđlilegt ađ sveiflur verđi í félagslífi og starfsemi og nú háttar svo til ađ mikill áhugi er međal ţjóđarinnar á náttúru landsins, gönguferđum, varđveislu menningar og sögu einstakra hérađa. Ţessi byr blćs nú í segl Ferđafélagsins og ţví spennandi tímar og verkefni framundan hjá félaginu.
22.3.2007
Ný stjórn FÍ - Sigrún Valbergsdóttir nýr varaforseti FÍ
Á ađalfundi Ferđafélags Íslands í gćrkvöldi var kosin ný stjórn félagsins. Úr stjórn félagsins gengu
Valgarđur Egilsson varaforseti og Leifur Ţorsteinsson báđir eftir níu ára setu í stjórninni og Ásgeir Margeirsson gekk úr stjórn vegna anna á nýjum starfsvettvangi. Voru ţeim fćrđar bestu ţakkir fyrir framlag sitt til félagsins međ störfum sínum. Nýir stjórnarmenn voru kosnir Páll Ásgeir Ásgeirsson, Magnús Hákonarson og Sigríđur Anna Ţórđardóttir. Áfram sitja í stjórn Ólafur Örn Haraldsson, Unnur V. Ingófsdóttir, Elísabet Jóna Sólbergsdóttir, Ívar J. Arndal, Valtýr Sigurđsson og Sigrún Valbergsdóttir sem var kosin varaforseti félagsins.
22.3.2007
Ţrautarganga hjá Ferđafélagi Fljótsdalshérađs
21.3.2007
Ađalfundur Ferđafélagsins

Ađalfundur Ferđafélags Íslands er haldinn í kvöld,
miđvikdagskvöld kl. 20 í sal félagsins Mörkinni 6.
Á dagskrá fundarins eru hefđbundin ađalfundarstörf.
Allir félagsmenn hvattir til ađ mćta.
21.3.2007
Umrćđa um nýjan Vatnajökulsţjóđgarđ
„Á Íslandi eru vissulega margir fallegir stađir sem erfitt er ađ gera upp á milli en ég leyfi mér ţó ađ
segja ađ Vatnajökull og nágrenni eru eitthvert stórfenglegasta svćđi landsins. Ţeir sem ekki hafa fariđ ţangađ ćttu hiklaust ađ stefna ađ ţví ađ skella sér viđ tćkifćri, “ segir Haraldur Örn Ólafsson fararstjóri hjá FÍ í viđtali viđ Blađiđ í gćr.
20.3.2007
Páskar í Landmannalaugum og Ţórsmörk
Ferđafélagiđ verđur međ skálavörslu í Ţórsmörk og Landmannalaugum yfir páskana. Bođiđ verđur
upp á dagsferđir á svćđunum međ fararstjóra. Miđađ er viđ ađ ferđamenn komi sér á svćđiđ á eigin vegum. Í Ţórsmörk verđur möguleiki á ađ ferja fólk frá Merkurbćjunum ef áhugi er fyrir hendi.
20.3.2007
Nám í ferđamálafrćđi í Hólaskóla
Í ferđamáladeild Hólaskóla er bođiđ upp á nám til BA-gráđu í ferđamálafrćđi ţar sem áhersla er lögđ á afţreyingu, náttúru og menningu. Einnig er hćgt ađ taka eins árs nám og öđlast ţá diplómagráđu í ferđamálafrćđi ásamt landvarđarréttindum og stađarvarđarréttindum. Möguleiki er á ađ taka diplómaáriđ í fjarnámi.
19.3.2007
Göngugleđi - ferđasaga 18. mars
Mćttir voru 14 göngugarpar í göngugleđi sl sunnudag, fjórir af ţeim án skíđa og fóru ţeir í Heiđmörk og eru ţar međ úr sögunni. Hinir tíu héldu í Bláfjöll. Ţar var ţá rok og allmikill skafrenningur svo ákveđiđ var ađ aka til baka og ađ tillögu Ólafar Sig var ákveđiđ ađ ganga niđur međ Stóra Kóngsfelli og niđur um Kristjánsfelli í húsiđ viđ Selvogsgötu.
14.3.2007
Skíđaferđ yfir Drangajökul í maí
Ferđafélagiđ býđur upp á nokkrar skíđaferđir í vor og međal annars gönguskíđaferđ yfir
Drangajökul 26. - 28. maí. Lýsingu á ferđinni er ađ finna í ferđaáćtlun FÍ S - 2 og hér á heimasíđunni undir ferđir. Fararstjórar eru Elísabet Jóna Sólbergsdóttir og Ţröstur Jóhannesson og hafa ţau sent frá sér ítarefni um ferđina.
13.3.2007
Sumarleyfisferđir FÍ
Fullbókađ er í 12 sumarleyfisferđir FÍ í sumar. Ágćtlega er bókađ í nokkrar til viđbótar en minna
bókađ í ađrar. Fullbókađ er í 5 ferđir á Hornstrandir og nokkur sćti laus í Jónsmessu á Hornströndum og Sćludaga í Hlöđuvík, sem og í aukaferđirnar Saga, byggđ og búseti og Baráttan viđ björgin....
13.3.2007
Hvannadalshnjúkur - ćfing - annar hluti
Hvannadalshnúkur – ćfingaprógram FÍ fyrir hvítasunnuferđ á Hvannadalshnúk –
annar hluti. Um er ađ rćđa 4 mánađa prógram sem miđar ađ ţví ađ undirbúa ţátttakendur fyrir gönguferđ á Hvannadalshnúk. Annar hluti prógrammsins hefst á morgun miđvikudaginn 14. mars kl. 18 međ göngu á Helgafell í Hafnarfirđi. Mćting viđ bílastćđiđ viđ Kaldársel, ekiđ fram hjá hesthúsunum í Hafnarfirđi.
9.3.2007
Úlfarsfell á föstudögum kl. 17.30
Ferđafélagiđ býđur nú upp á gönguferđir á Úlfarsfell á föstudögum í mars og apríl og á Esjuna á miđvikudögum í maí, júní og júlí. Ţessar gönguferđir eru farnar í samstarfi viđ FIT Pilates og verđur Smári Jósafatsson íţróttafrćđingur fararstjóri í ferđunum. Gönguferđirnar í mars á Úlfarsfell eru klukkan 17.30. Ţátttaka er ókeypis, allir velkomnir. Mćting er viđ bílastćđiđ suđvestan undir Úlfarsfellinu, beygt til hćgri eftir ađ ekiđ hefur fram hjá Grafarholti.
9.3.2007
Myndasýning hjá Ísalp mánudaginn 12. mars
Tveir stórviđburđir munu eiga sér stađ í íslensku fjallgöngusamfélagi í marsmánuđi. Ísalp (Íslenski alpaklúbburinn) heldur upp á ţrjátíu ára starfsafmćli og af ţví tilefni mun einn fremsti fjallaklifrari heimsins, Steve House, heimsćkja Ísland og halda fyrirlestur og myndasýningu um ćvintýri sín.
8.3.2007
Jeppaferđ bíladeildar
Sunnudagsferđ bíladeildar FÍ í Skjaldbreiđarfjöll sunnan Langjökuls, ćtluđ öllum jeppum sem búnir eru til vetraraksturs .
7.3.2007
Göngugleđi 4. mars - ferđasaga
Gengiđ var í éljagangi og stífum mótvindi áleiđis í Múlasel í Engidal. Ein stúlka ónefnd snéri brátt viđ
vegna klćđaleysis og ók heimleiđis, en hinir 14 héldu áfram göngu í skálann og ţá var veđur orđiđ skaplegt...
6.3.2007
Félagsvist ţriđjudaginn 13. mars
Nćsta félagsvist verđur ţriđjudaginn 13. mars. Vistin hefst kl: 19:30. Spilađ verđur í Mörkinni 6 –
í risinu. Hámark ţátttakenda er 52. Fyrstir koma – fyrstir fá. Vinsamlega athugiđ ađ félagsvistin er ćtluđ félögum í Ferđafélaginu og gestum ţeirra. Verđlaun verđa veitt, kaffi og kökur....
5.3.2007
Kvöldganga í Elliđárdal
Nćsta miđvikudagskvöld verđur gönguferđ í Elliđárdal og er gangan liđur í ćfingaprógrammi fyrir
Hvannadalshnjúk sem nú stendur yfir hjá FÍ. Mćting er kl 18 á bílastćđiđ viđ gamla rafstöđvarhúsiđ hjá OR og verđur gengiđ góđan hring í dalnum. Allir velkomnir, ţátttaka ókeypis.
Nýjar auglýsingar
Leit
Mynd























