Fréttir
25.4.2007
Tindfjöll - Ýmir og Ýma - 1. maí
Ferðafélagið býður upp á gönguferð í Tindfjöll 1. maí nk. Gengið verður á Ými og Ýmu. Lagt verður af stað úr Mörkinni 6 kl. 8 á þriðjudagsmorgun. Ekið inn Fljótshlíð, upp í Tindfjöll og að neðsta skála þaðan sem gengið er á Ými og Ýmu.
25.4.2007
Göngugleði 22. apríl
Sunnudaginn 22. apríl mættu 14 manns til göngugleðinnar. Ákveðið var að halda út á Reykjanes og ganga á stapafellið Geitahlíð (385 m) sem er suð-austan Kleifarvatns.
24.4.2007
Gps námskeið FÍ og Artic Trucks
20.4.2007
Sérferðir og kynning
Ferðafélag Íslands tekur að sér undirbúning og skipulag fyrir hópa í sérferðir um einstök svæði og
gönguleiðir um allt land. Félagið býður upp á kynningu á gönguleiðum til hópa og fyrirtækja. Þá er einnig hægt að fá kynningu á starfsemi FÍ ...
20.4.2007
Jöklaferðir í maí - fullbókað á Hvannadalshnjúk
Fullbókað er í ferð FÍ á Hvannadalshnjúk um Hvítasunnuna en þá fara 100 manns með félaginu á
hæsta tind landsins í fararstjórn Haraldar Arnar Ólafssonar. FÍ bendir á spennandi ferðir á Eyjafjallajökul laugardaginn 5. maí með Maríu Dögg og skíðaferð yfir Drangajökul með Elísabetu Sólbergsdóttur um Hvítasunnuna.
20.4.2007
Jöklafararstjórar FÍ á sprungunámskeiði
Á sumardaginn fyrsta stóð Ferðafélagið fyrir jöklanámskeiði fyrir fararstjóra FÍ á Hvannadalsh
njúk. Jökull Bergmann fjallaleiðsögumaður var leiðbeinandi á námskeiðinu. Haraldur Örn Ólafsson fararstjóri FÍ á Hvannadalshnjúk og ferðanefndarmaður segir markmiðið hafa verið að efla og þjálfa fararstjórana og námskeiðið hafi verið mjög lærdómsríkt. Sjá myndir af námskeiðinu
18.4.2007
Helgafell og Laugavegsganga hin skemmri - sumardagurinn fyrsti
Á morgun sumardaginn fyrsta býður Ferðafélagið borgarbúum upp á tvær gönguferðir og eru þær hluti af dagskrá Höfuðborgarstofu sem nefnist Ferðalangur. Klukkan 10 verður gengin Laugavegsganga hin skemmri, frá Mörkinni 6 og niður í Laugardag um gömlu þvottaleiðina. Fararstjóri í ferðinni er Þorgrímur Gestsson sagnfræðingur. Klukkan 11.00 verður gengið á Helgafell, bæjarfjall Hafnfirðinga. Fararstjóri er Leifur Þorsteinsson. Mætt er á einkabílum að Kaldárseli.
18.4.2007
Myndakvöld FÍ í kvöld - Max Schmid
Myndakvöld Ferðafélagsins er í kvöld síðasta vetrardag kl 20 í sal FÍ Mörkinni 6. Ljósmyndarinn Max Schmid sýnir myndir úr ferðum sínum um Ísland. Aðgangseyrir er kr. 600, innifalið kaffi og meðlæti. Allir velkomnir.
17.4.2007
Hvannadalshnjúksæfing 18. apríl
Æfingaprógramm FÍ fyrir þátttakendur í ferð FÍ á Hvannadalshnjúk um Hvítasunnunina verður sem hér segir í apríl. Alla sunnudaga er gengið með göngugleði FÍ í nágrenni Reykjavíkur og á miðvikudögum er gengið á fjall í nágrenni Reykjavíkur. Í dag miðvikudag er gengið á Esjuna heim að Steini eða eftir stemmingu í hópnum. Lagt af stað kl. 18.00
13.4.2007
Göngugleðin á sunnudögum
Göngugleði FÍ á sunnudögum stendur fram á vor. Þá hittast galvaskir göngufélagar við Mörkina 6 kl. 10.30 á sunnudagsmorgnum og koma sér saman um hvert skuli haldið. Síðan er þjappað sér saman í bíla og ekið á upphafsstað gönguleiðar. Gengið er í ca 2 - 5 klst eftir stemmingu og aðstæðum.
13.4.2007
Nýr myndavefur á heimasíðu FÍ
Á heimasíðu FÍ er nýtt myndakerfi þar sem hægt er að skoða myndir úr ferðum og starfi FÍ. Smellt er á linkinn myndir á borðanum efst á síðunni. Félagsmenn eru hvattir til að senda myndir úr ferðum á fi@fi.is og verða myndir settar í myndabankann. Nýjustu myndirnar eru úr göngugleði FÍ í vetur.
13.4.2007
Ferð í Hrómyndarey
Fyrsta ferð Ferðafélags Austur-Skaftafellssýslu á þessu ári var farin í lok mars í Hrómundarey í Álftafirði. Um 38 manns á 12 jeppum tóku þátt í ferðinni. Við vorum heppin með veður og ferðin tókst í alla staði mjög vel...
10.4.2007
Fullbókað í söguferð - nokkur sæti laus í áhugaverðar ferðir
Fullbókað er í söguferð á Vesturlandi með Sigrúnu Valbergsdóttur um miðjan maí. Fullbókað er í 14 sumarleyfisferðir FÍ í sumar. Vakin er athygli á nokkrum ferðum þar sem örfá sæti eru laus. no
10.4.2007
Árbókin í prentsmiðju
Árbók FÍ 2007 er nú í prentun. Árbókin er um Austur Húnavatnssýlsu og ritar Jón Torfason sagnfræðingur textann í bókinni.
4.4.2007
Jöklanámskeið fyrir fararstjóra FÍ
Ferðafélag Íslands leggur mikið upp úr öruggri fararstjórn í ferðum sínum og hefur nú náð samkomulagi við Jökul Bergmann fjallaleiðsögumann og Harald Örn Ólafsson um þjálfun fyrir jöklafararstjóra félagsins.
3.4.2007
Ferðafélagið kaupir Baldvinsskála á Fimmvörðuhálsi
Ferðafélag Íslands hefur keypt Baldvinsskála á Fimmvörðuhálsi af Flugbjörgunarsveitinni í Skógum. Samningar þess efnis voru undirritaðir að Skógum fyrir skömmu. Páll Guðmundsson framkvæmdastjóri Ferðafélagsins segir ætlunin sé að endurnýja skálann og bæta aðstöðu fyrir göngumenn á Fimmvörðuhálsi.
2.4.2007
Ferðasaga - göngugleði 1. apríl
Í sunnanandvara, við hitastig yfir meðaltali var haldið suður með sjó og bílum lagt á bílastæði sunnan vegar á móts við Straumsvík (rétt vestan við verksmiðjuna). Þar var haldið til suðurs eftir vörðuðum stíg...
2.4.2007
Fullbókað á Hvannadalshnjúk
Fullbókað er er í ferð FÍ á Hvannadalshnúk um Hvítasunnuna en félagið fer með 100 manna hóp á hæsta tind landsins 26. maí. Þegar eru um 18 manns komnir á biðlista í ferðina. Haraldur Örn Ólafsson er fararstjóri í ferðinni.
2.4.2007
Tilboð til félagsmanna FÍ frá Cintamani búðinni
Cintamani búðin Laugavegi 11 býður nú félagsmönnum í FÍ einstakt tilboð. Frá 2.- 14. apríl fá félagsmenn Ferðafélagsins 20% afslátt af vörunum okkar gegn framvísum félagsskírteinis
Nýjar auglýsingar
Leit
Mynd























