Fréttir
31.5.2007
Esjudagurinn færður í jónsmessunótt
Esjudagur FÍ og SPRON sem vera átti 10. júni hefur nú verður færður til 23. júní og verður dagskrá í Esjuhlíðum á kvöldi laugardags og mun miðnætursólin, jónsmessan, álfasöngur og dans og miðnæturstemming ráða ríkjum í dagskránni. Boðið verður upp á kvöldgöngur, skógargöngur og Esjuhlaup, leiðsögn og fræðslu um jarðfærði, landnám og fleira fróðlegt sem tengist Esjunni.
31.5.2007
Esjuhappdrætti FÍ og SPRON hefst í dag
Ferðafélag Íslands, SPRON og Íslensku alparnir standa fyrir Esjuhappdrætti FÍ og SPRON nú þriðja sumarið í röð. Allir sem skrifa nafn sitt og netfang í gestabók sem geymd er í útsýnisskífu FÍ á Þverfellshorni lenda í potti sem dregið er úr vikulega. Vinningshafi hlýtur veglega gönguskó frá Íslensku ölpunum í verðlaun.
30.5.2007
Myndir af Hvannadalshnjúk um sl. helgi
Ferð FÍ á Hvannadalshnjúk um Hvítasunnuna gekk vel. Allir þátttakendur komust á toppinn. Þátttakendur eru hvattir til að senda myndir úr ferðinni á fi@fi.is og verða þær settar á heimasíðu FÍ. Sjá myndir
30.5.2007
Myndir frá Drangajökli
Ferð FÍ yfir Drangajökul í Reykjarfjörð og Hrafnfjörð gekk vel. Einmuna veðurblíða lék við göngumenn alla daga. Hægt er að sjá myndir úr ferðinni og ferðasaga er væntanleg.
25.5.2007
Hvannadalshnjúkur - ferðin færð aftur á yfir á laugardagsmorgun
Ferð FÍ á Hvannadalshnjúk sem færð hafði verið fram á sunnudag, hefur nú verið færð aftur til laugardags, og verður lagt af stað í gönguna kl. 05 í fyrramálið.
Vegna nýrra upplýsinga frá Veðurstofu og breytinga á veðurspá var ferðin færð aftur yfir á laugardag.
22.5.2007
Undirbúningsfundur fyrir Hvannadalshnjúk
Ferðafélagið stendur fyrir undirbúningsfundi miðvikudagskvöld 23. maí kl. 20 fyrir ferð FÍ á Hvannadalshnjúk um Hvítasunnuna. Haraldur Örn Ólafsson fararstjóri í ferðinni fer yfir helstu atriði, búnað, nesti, fatnað, öryggisatriði, ferðatilhögun og fleira.
22.5.2007
Ölkelduháls með FÍ og Landvernd
FÍ og Landvernd standa saman að ferð um Ölkelduháls og Reykjadal á Hvítasunnudag, 27. maí nk. Lagt verður af stað frá Mörkinni 6 kl. 9 og að loknum fræðslufundi í hótel Eldhestum verður ekið upp á Ölkelduháls og síðan gengið suður Dalafell og niður Rjúpnabrekkur. Freysteinn Sigurðsson heldur fyrirlestur og Björn Pálsson annast leiðsögn.
15.5.2007
Drangajökull og Reykjafjörður um Hvítasunnuhelgina
Nokkur sæti laus í skíðaferð yfir Drangajökul um Hvítasunnuna. Þátttakendur koma á eigin bílum að Dalbæ við Unaðsdal á föstudagskvöld þar sem gist er fyrstu nóttina. Að morgni laugardags er lagt af stað yfir Drangajökul og gengið yfir í Reykjafjörð þar sem gist verður í tvær nætur. Aðeins er gengið með dagpoka, vistir fluttar sjóleiðina í Reykjafjörð.
Í dag 17. maí 2007 er vetrartíð á Drangajökli. Á hájökli er mikill nýfallinn snjór og eru horfur á að heldur bæti á næstu daga. Maí hefur verið kaldur og því er óvenjumikill snjór á leiðinni ef miðað er við síðustu ár.
14.5.2007
BANF kvikmyndasýning í Háskólabíói 15. - 16. maí
Hin árlega BANFF kvikmyndasýning verður haldin í Háskólabíói 15. og 16. maí næstkomandi. Um er að ræða stuttmyndir af afrekum og ævintýrum einstaklinga sem stunda fjallamennsku, snjóbretti, fjallahjólamennsku, klifur, kajak, base jumping og fleira. Myndirnar eru eins fjölbreyttar og þær geta verið en allar eiga það sameiginlegt að fjalla um samspil einstaklingsins við náttúruna þar sem adrenalín og góð skemmtun eru sjaldan fjarri.
11.5.2007
FÍ og Þingvallaþjóðgarður í samstarfi
Ferðafélag Íslands og Þingvallaþjóðgarður munu á næstu vikum standa saman að gönguferðum á fjöll í Þjóðgarðinum. Gengið verður á Ármannsfell, Arnarfell, Hrafnabjörg, Leggjarbrjót, farið í hellaskoðunarferð og endað með göngu á Skjaldbreið í tilefni af því að 200 ár eru frá fæðingu Jónasar Hallgrímssonar. Ferðirnar og dagsetningar verða kynntar nánar á næstunni.
11.5.2007
Strönd og Vogar, Vatnsleysuströnd
Nafnfræðifélagið í samstarfi við FÍ efnir til gönguferðar um Strönd og Voga þriðjudaginn 15. maí nk. Ætlunin er að aka að Halakoti á Vatnsleysuströnd á eigin bílum, og er mæting þar kl. 20. Gengið verður í Bieringstanga og fengin leiðsögn þar hjá Magnúsi Ágústssyni í Halakoti. Síðan er haldið áfram í Voga og Grænaborg skoðuð í leiðinni og álagasaga bæjarins sögð.
11.5.2007
Morgunganga í Viðey - myndir
Síðasta morgunganga FÍ þessa vikuna var í morgun þegar gengið var um Viðey. Veðrið var að venju sérlega gott og 24 þátttakendur nutu þess að ganga um eyjuna í morgunbirtunni. Í lok göngu var 10 þátttakakendum veitt verðlaun frá FÍ fyrir að hafa mætt í allar morgungöngurnar 5 í þessari árlegu morgungangnaviku FÍ. Sjá myndir úr Viðey
10.5.2007
Morgungöngur - myndir, Helgufoss og Keilir
Gengið var á Keili í morgungöngu FÍ snemma morguns. Veður var stillt. Gangan á topp Keilis tók 1.07 klst, þar af 40 mín í hrauninu að Keili. Veitt voru verðlaun fyrir ýmsar góðar hugmyndir. Sjá myndir úr ferðinni sem og morgungöngu að Helgufossi í gærmorgun.
9.5.2007
Menningarsjóður VISA styrkir Ferðafélag Íslands
Stjórn Menningarsjóðs VISA úthlutar nú 9 styrkjum, samtals að fjárhæð 14 milljónir króna. Þetta er í ellefta sinn sem úthlutað er úr sjóðnum og hafa 79 styrkir verið veittir frá upphafi, flestir til menningarmála en nokkrir til vísinda-, mannúðar- og líknarmála. Stjórn sjóðsins ákvað að í ár skyldi verulegum hluta styrkfjárhæðarinnar varið til menningar-, líknar-og velferðarmála. Menningarsjóður Visa styrkti Ferðafélag Íslands um 3.5 milljónir króna og verða þær nýttar til merkinga, skiltagerðar og aukinnar upplýsingagjafar við skála Ferðafélagsins á Laugaveginum.
9.5.2007
Morgungöngur FÍ - Keilir á morgun
Gengið verður á Keili á morgun fimmtudag í morgungöngum FÍ. Lagt verður af stað frá Mörkinni 6 kl. 6. Í morgun gengu 28 þátttakendur að Helgufossi í Mosfellsdal. Á föstudaginn verður siglt í Viðey og gengið þar á hæsta hól. Þátttaka er ókeypis, allir velkomnir.
8.5.2007
Vífilsfell í einmuna blíðu - Grímannsfell á morgun
Gengið var á Vífilsfell í morgun á öðrum degi morgungangna FÍ. Lagt var af stað frá Mörkinni kl. 6, komið á toppinn 7.33 og niður að bílum aftur um hálfníu. Þátttakendur voru 47 og nutu einmuna veðurblíðu og útsýnis. Á toppnum var að venju úthlutað gjöfum og vakti athygli að engin kannaðist við það hafa hátt afmæli í háa herrans tíð. Yngsti þátttakandi var 24 ára og sá elsti 73. Á morgun verður gengið á Grímannsfell sem stendur ofan við Gljúfrastein í Mosfellsdal.
Sjá myndir frá því í morgun.
7.5.2007
Morgunganga Fí á Helgafell
Fyrsta morgunganga FÍ af fimm þessa vikuna var í morgun þegar gengið var á Helgafell. Mættir voru 30 árrisulir og glaðbeiitir göngumenn. Lagt var af stað frá Mörkinni kl. 6 og ekið að Kaldárseli. Þar sem hann var heldur napur að þessu sinni þrátt fyrir bjart og fallegt veður, var gengið all rösklega til að fá hita í kroppinn. Sjá myndir
7.5.2007
Myndir af Eyjafjallajökli 6. maí
Ferðafélagið stóð fyrir gönguferð á Eyjafjallajökul 6. maí. Rúmlega 20 göngumenn tóku þátt í ferðinni. Gengin var Skerjaleið, lagt upp hjá Grýtu og gengið austur eftir jökli að Goðasteini og rennt sér niður á Hamragarðaheiði. Veðrið var frábært og útsýnið einstakt. Sjá myndir úr ferðinni.
6.5.2007
Morgungöngur FÍ - á fjöll við fyrsta hanagal, 7. - 11. maí
Morgungöngur Ferðafélagsins hefjast mánudaginn 7. maí. Gengið verður á fjöll í nágrenni
Reykjavíkur alla daga vikunnar og lagt af stað kl. 06 frá Mörkinni. Mánudaginn 7. maí verður gengið á Helgafell, bæjarfjall Hafnfirðinga, Þriðjudaginn á Vífílsfell, miðvikudaginn á Grímannsfell, fimmtudaginn á Keili og á föstudag verður farið í Viðey og gengið þar á hæsta hól. Þátttaka er ókeypis í morgungöngurnar allir velkomnir.
4.5.2007
Eyfjallajökull - frestað fram á sunnudag vegna veðurspár
Ferð FÍ á Eyjafjallajökul sem fara átti á morgun laugardag 5. maí hefur verið flutt til sunnudags vegna veðurspár. Lagt verður af stað á sunnudaginn kl. 8 frá Mörkinni 6 og dagskráin öll hin sama.
3.5.2007
Eyjafjallajökull 6. maí - upplýsingar
Sunnudaginn 6.maí mun hópur Eyjafjallajökulsfara hittast í Mörkinni og brottför þaðan er kl. 08.00. Farið verður á einkabílum að Eyjafjallajökli með viðkomu á Hvolsvelli þar sem trússbíll tekur skíðabúnað og vistir göngumanna. Gönguleiðin er svokölluð Skerjaleið og er aðkoman að gönguleiðinni af Þórsmerkurleið, neðan við áberandi strýtu er nefnist Grýtutindur. Fyrri hluti leiðar er upp brattar skriður og móbergsrima og seinni hlutinn liggur um allbrattan jökulinn
2.5.2007
Myndasyrpa af Tindfjallajökli
FÍ stóð fyrir gönguferð á Ými og Ýmu í Tindfjöllum 1. maí. Þátttakendur voru um 20 í ferðinni sem gekk ágætlega í alla staði þrátt fyrir þungt færi. Snjóflóðahætta við Ými hindraði för á tindinn.
Sjá myndir úr ferðinni.
2.5.2007
Esjan í dag kl. 18.00
Gengið er á Esjuna á miðvikudögum kl. 18. Mæting 17.55 við bílastæðið við Mógilsá. Þátttaka ókeypis, allir velkomnir. Takið með ykkur góðan búnað, hlífðarföt, stafi, góða gönguskó og jafnvel bakpoka og nesti. Fararstjóri er Smári Jósafatsson.
Nýjar auglýsingar
Leit
Mynd























