Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu

Fréttir

Fréttir FÍ - RSS

30.1.2008

Ferðasaga úr Hvanngili

Hólmfríður Kría Halldórsdóttir 9 ára dóttir skálavarða FÍ í Hvanngili skrifaði þessa sögu og sendi Ferðafélaginu.

26.1.2008

Ferðaáætlun FÍ 2008

Aaetlun-2008-augl.Ferðaáætlun FÍ 2008 er nú komin út.  Í ferðaáætluninni er að finna á annað hundrað gönguferðir um náttúru Íslands.  Ferðum í áætluninni er skipt í dagsferðir, helgarferðir, sumarleyfisferðir

25.1.2008

Ferðadraumar

olafhardrFlest okkar muna æskudrauma um ferðir til fjarlægra staða og hvernig fjöll og fegurð landsins náðu einhverjum undarlegum og sterkum tökum á okkur...

25.1.2008

Ferðaáætlun og fréttabréf í dreifingu

fréttabréf_forsidaFerðaáætlun FÍ og Fréttabréf er nú farið í dreifingu til félagsmanna.
Í fréttabréfinu er aðfinna fréttir úr starfi FÍ og í ferðaáætluninni er
mikið úrval af ferðum.

25.1.2008

Háir tindar og heillandi strandir

Fjölmargra nýjunga sér stað í ferðaáætlun Ferðafélags Íslands 2008 sem nú er komin út. Auk sígildra dags- og sumarferða sem alltaf njóta vinsælda, eru í boði ýmsar ferðir þar sem klifið verður á hæstu tinda. 

23.1.2008

Næsta myndakvöld FÍ er 13. febrúar

Næsta myndakvöld FÍ er miðvikudaginn 13. febrúar.  Myndakvöld í janúar fellur niður.  Á myndakvöldi í febúar munu nemendur í Smáraskóla sýna myndir úr ferðum sínum að Fjallabaki.

17.1.2008

Aðalfundur Hornstrandafara FÍ

Ársfundur Hornstrandafara 2008 verður haldinn laugardaginn 19. jánúar kl. 14.00 í Mörkini 6  í risinu. Á dagskrá fundarins verður :
1.     Helstu afrek Hornstrandafara á liðnu starfsári þ.e. hin mjög svo rómaða skýrsla stjórnar og nú sem endranær flutt af hinum eina og sanna leiðtoga.
2.     Stjórnarkjör. Miklar mannabreytingar munu vera í aðsigi og jafnvel talað um hefnd karlagengisins eftir vel heppnaða kvennabyltingu á síðasta ársfundi.
3.     Hvert stefnum við á komandi starfsári ?
4.     Kaffi og bakkelsi þ.e. hinar hefðbundnu ársfundavöfflur Hornstrandafara með tilheyrandi sultutaui og jurtarjóma.
5.     Myndasýning. Gísli Már Gíslason sýnir myndir úr Færeyjarferð FÍ 2006

15.1.2008

Borgarganga - ferðalýsing

Sunnudaginn 13. jan. var farin fyrsta ganga ársins í góðu veðri og mættu um 76 göngugarpar í Mörkina.  Þaðan var haldið inn eftir Suðurlandsbraut og var gengið um Voga, Heima, Sund, Laugarás og endað í Laugardal.  Pétur H. Ármannsson fór fyrir göngunni og fræddi okkur um það sem fyrir augu bar og þá sérstaklega um sögu gamalla húsa sem á vegi okkar urðu.  Það kom flestum á óvart að til væru friðuð hús í þessum hverfum.

11.1.2008

Félagsvist FÍ 15. janúar

Næsta félagsvist verður þriðjudaginn 15. janúar.  Vistin hefst kl: 19:30.  Spilað verður í Spil-150Mörkinni 6 – í risinu.  Svo spilum við 19. feb. og 18. mars 2008. Hámark þátttakenda er 52.  Fyrstir koma – fyrstir fá. Vinsamlega athugið að félagsvistin er ætluð félögum í Ferðafélaginu og gestum þeirra.Verðlaun verða veitt, kaffi og kökur.  Sérstök verðlaun verða veitt þeim sem flest stig hlýtur samtals á öllum spilakvöldum vetrarins.

11.1.2008

Nýársganga Hornstrandafara FÍ

Við viljum minna á fyrstu göngu ársins, BORGARGÖNGU HORNSTRANDAFARA OG F.Í. þann  13. janúar 2008. Lagt af stað frá Mörkinni 6 kl 10:30. Genginn verður ca. 2 klst. hringur um nærliggjandi hverfi. Á leiðinni er staldrað við nokkur forvitnileg hús og saga þeirra rakin. Göngunni lýkur á sama stað, með mögulegri viðkomu á kaffihúsi. Fótabúnaður og klæðnaður taki mið af veðri en það lítur út fyrir gott gönguveður. Leiðsögn: Pétur H. Ármannsson, arkitekt.

9.1.2008

Myndir úr Þrettándaferð FÍ í Þórsmörk

Myndir úr jeppaferð bíladeildar FÍ í Þórsmörk um Þrettándann eru komnar á netið og er hægt að skoða þær með því að smella hér.

Um sjötíu manns á 25 bílum tóku þátt í ferðinni og áttu góðar stundir í Þórsmörk.

Myndir úr öllum ferðum bíladeildar FÍ  má skoða með því að smella á tenglana hér að neðan.

7.1.2008

Fjölmenni í þrettaándaferð FÍ

Um sjötíu þátttakendur tóku þátt í Þrettándaferð FÍ í Þórsmök um helgina. Ferðin var bæði göngu og jeppaferð og voru aðstæður ágætar. Myndir úr ferðinni eru væntalegar á myndabanka FÍ.


PÓSTLISTASKRÁNING

Með reglulegu millibili sendir skrifstofa FÍ út yfirlit yfir félagsstarf, ferðir og annað það sem spennandi kann að vera fyrir áhugfólk um ferðalög og náttúru.
Eitt fjall á vikuFerðafélag barnannaSkráðu þig í FerðafélagiðLaugavegurinnSkálar - yfirlitskortFerðaáætlun 2010Safnaðu fjöllum með FÍ

Slóðin mín:

Forsíða » Fréttasíða

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Information in other languages

  • Information in English
  • Informationen auf Deutsch

Mynd