Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu

Fréttir

Fréttir FÍ - RSS

30.10.2008

Göngugleði á sunnudögum

Göngugleði er alla sunnudaga. Mæting er í  Mörkinna 6 kl: 10 ákveðið hvert skal halda og lagt er af stað kl: 10:30

Sunnudagsgönguskýrsla 26. október 2008.

Á vegginn mættu 5 félagar og 2 þeir bjartsýnustu voru með skíðin á toppnum.
Ákveðið var að reyna að finna skjólsælan stað í norðangustinum.
Ekið var sem leið liggur í Kópavoginn. Við Smáralindina skildu Kópavogsbúar bíla sína eftir ásamt skíðabúnaði og haldið var áfram á einum bíl til Hafnarfjarðar og að Kaldárseli.

29.10.2008

Myndakvöld

Næsta myndakvöld verður haldið 19. nóvember. Nánar auglýst síðar.

16.10.2008

Fjölskyldu- og bjartsýnisganga endurtekin 19.október

Vegna góðrar þáttóku síðustu helgi ákvað Ferðafélagið að endurtaka fjölskyldu- og bjartsýnisgöngu og verður hún á sunnudaginn 19.okt  kl. 14.00. Þetta verður létt ganga eftir göngustígum upp í hlíðar Esju og verður lagt upp frá bílaplaninu við Mógilsá og síðan verður boðið upp á veitingar þegar komið er aftur niður.

14.10.2008

Fréttatilkynning frá Skógræktarfélagi Reykjavíkur

JARÐFRÆÐI ESJUNNAR

 

Fimmtudagskvöldið 16. október heldur Dr. Ingvar Birgir Friðleifsson fyrirlestur um jarðfræði Esjunnar í Gamla salnum á Elliðavatni í Heiðmörk. 

Erindið hefst klukkan 20 og allir eru velkomnir. 

 

Skógræktarfélag Reykjavíkur

 

Nanari upplýsingar Kristján Bjarnason gsm 8560058

 

13.10.2008

Næsta myndakvöld FÍ

Næsta myndakvöld FÍ verður haldið miðvikudaginn 15. október. Þá sýnir Kristján Eldjárn Hjartarson myndir úr Svarfaðardal og frá Tröllaskaganum, sem og Guðmundur Hallvarðsson, Arnór Víkingsson og Sigríður Lóa Jónsdóttir ásamt fleiri hornstrandaförum sýna myndir úr ferðum FÍ á Hornstrandir. Myndakvöldið hefst kl. 20.00. Aðgangseyrir er kr. 600, innifalið kaffi og meðlæti, allir velkomnir.

10.10.2008

Fjölskyldu- og bjartsýnisganga FÍ

Ferðafélag Íslands efnir til fjölskyldu- og bjartsýnisgöngu á morgun, laugardag, kl. 14.00. Þetta verður létt ganga eftir göngustígum upp í hlíðar Esju og verður lagt upp frá bílaplaninu við Mógilsá og síðan verður boðið upp á veitingar þegar komið er aftur niður.

3.10.2008

Haustganga Hornstrandafara FÍ

Gengið verður um Hafnardal þ.e. frá Ölveri að bænum Grjóteyri 12 km leið. Síðan verður sund og svaml í pottum í Borgarnesi. Að þessu loknu hefst árshátíðarívaf á Hótel Borgarnesi. Meðal atriða þar verður tvírétta máltíð, ávarp leiðtogans, tónlist leikin á dragspil, happdrættið góða, en síðan mun Breiðbandið stjórna fjörinu fram undir miðnætti.


PÓSTLISTASKRÁNING

Með reglulegu millibili sendir skrifstofa FÍ út yfirlit yfir félagsstarf, ferðir og annað það sem spennandi kann að vera fyrir áhugfólk um ferðalög og náttúru.
Eitt fjall á vikuFerðafélag barnannaSkráðu þig í FerðafélagiðLaugavegurinnSkálar - yfirlitskortFerðaáætlun 2010Safnaðu fjöllum með FÍ

Slóðin mín:

Forsíða » Fréttasíða

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Information in other languages

  • Information in English
  • Informationen auf Deutsch

Mynd