Fréttir
17.12.2008
Sólstöðu- og kökuganga á Esjuna
Sunnudaginn 21. desember verður kökuganga FÍ á Esjuna. Gengið verður upp Kerhólakamb og yfir á Þverfellshorn. Þátttakendur taka með sér kakó og kaffi og jólabakkelsi og deila með sér og valin verður besta jólasmákakan. Fararstjórar í ferðinni eru Þórhallur Ólafsson og Einar Karl Þórhallsson.
17.12.2008
Jólagjafir á skrifstofu FÍ - árbækur, fræðslurit og gjafakort
Á skrifstofu FÍ eru til sölu allar árbækur félagsins frá upphafi, fræðslurit og gjafakort. Tilvalin jólagjöf fyrir allt göngu og útivistaráhugafólk. Einnig gjafakort með sumarleyfisferðum, helgarferðum eða dagsferðum næsta sumar.
12.12.2008
Göngugleðiskýrsla 7. des
Það var lítill en einbeittur hópur sem hittist í Mörkinni til göngu sunnudaginn 7. desember. Í takt við síðustu sunnudagsgöngur, þar sem hefur verið gengið í kringum tiltekin fjöll, var ákveðið að hringganga Helgafellið. Það tókst þó ekki að þessu sinni þar sem hin ótal hringtorg í Hafnarfirði gerðu það að verkum að við villtumst af leið og lentum á Krísuvíkurveginum.
10.12.2008
Árbók FÍ 2008 tilnefnd til bókmenntaverðlauna
Árbók FÍ 2008, Úthérað ásamt Borgarfirði eystra, Víkum og Loðumundarfirði, eftir Hjörleif
Guttormsson náttúrufræðing var í gærkvöldi tilnefnd til bókmenntaverðlauna.
10.12.2008
Vel heppnuð aðventuferð i Langadal
Aðventuferð FÍ í Þórsmörk tókst með miklum ágætum. Um 50 ferðagarpar tóku þátt í ferðinni og
ánægjulegt að mikið af börnum og unglingum var með í för. Krossá var heldur erfið viðureignar og þurfti að ganga yfir göngubrúnna og í skálann. Farið var í leiki, bakað laufabrauð og grillað a la Dóri Warden. Ingó í Safari sá um leiki og sprell og vakti mikla lukku. Sjá myndir úr ferðinni.
7.12.2008
Göngugleði - skýrsla
Haldið var upp í fyrrum skíðasvæði við Hamragil. Kl. 11.05 var lagt á brattann og gengið upp Sleggjubeinsskarð, inn Innstadal og kaffi drukkið á verönd skálans sem þar er uppi í hallinu innst í dalnum. Þaðan var skáað til suðausturs yfir dalinn og yfir hrygginn austast í Skarðsmýrarfjalli og síðan haldið vestur með hlíðum fjallsins uns komið var aftur að bílunum kl. 14.50. Hafði þannig verið gengið umhverfis Skarðsmýrarfjall á 3 klst. og 50 mín., 12 km leið. Kalt var í veðri, 7-10 stiga frost, en stillt og bjart og skyggni gott. Á heimleiðinni var komið við í Orkuveituhúsinu undir Hellisskarði, kaffi drukkið þar, hlýtt á útskýringar á því hvernig kerfið virkar, túrbínur skoðaðar o.fl. fróðlegt.
Nýjar auglýsingar
Leit
Mynd























