Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu

Fréttir

Fréttir FÍ - RSS

30.3.2008

Auka ferð um Jarlhettur

Vegna mikillar aðsóknar verður boðið upp á aukaferð um Jarlhettur og að Laugarvatni,  ( S- 23)
Farið verður  í aukaferðina 17-20. júlí.  Þegar hafa um 15 skráð sig í aukaferðina en um 10 sæti laus.
 

27.3.2008

Ganga - Reiðhjól - Kajak

FÍ býður upp á spennandi trússferð með uppihaldi í 4 daga um héruð fyrir botni Breiðafjarðar – Farið frá Laugum í Hvammssveit yfir Skarðsströnd, um Klofning, Fellsströnd og Hvammssveit aftur að Laugum.

26.3.2008

Fréttapóstur frá FÍ 24. mars.

-Fullbókað í nokkrar sumarleyfisferðir FÍ
-Skiðaferðir og gönguferðir á Þórisjökull og Eyjafjallajökul.
-Undirbúningur fyrir Hvannadalshnjúk
-GPS námskeið

26.3.2008

Vaðnámskeið FÍ um næstu helgi.

Vaðnámskeið FÍ verður haldið um næsti helgi.  Ekið verður á laugardagsmorgun frá Hlíðarenda á Hvolsveli kl. 10.30 og verða verklegar æfingar í Merkuránum á laugardegi. Um kvöldið er kvöldvaka og grillveisla í Skagfjörðsskála og á sunnudagsmorgun er haldið til Reykjavíkur, með stoppum á leiðinni og vatnaæfingum.

18.3.2008

Skálavarsla í Landmannalaugum um páskana

Ferðafélagið er með skálavörslu í Landmannalaugum yfir páskana.  Skálavörður hefur verið í andlit-i-snjokomu-290Landmannalaugum í vetur og hefur verið töluverð umferð um helgar ekki síst dagsumferð jeppa- og sleðamanna.  Með viðveru skálavarðar á svæðinu hefur verið unnt að bjóða upp á vatnssalerni, sturtur og rennandi vatn í skálanum.

17.3.2008

Skíðaganga á Pálmasunnudag - ferðasaga

Hvílikt veður, hvílíkt færi, hvílíkt fólk eru orð sem koma mér í hug eftir að hafa fengið tækifæri til að taka þátt í menningarskíðagöngu á vegum Ferðafélags Íslands, eins og ég kýs að kalla ferðina sem farin var á Pálmasunndag 16. mars. Um miðja vikuna á undan benti veðurspá til þess að veður mundi verða þokkalegt en að það yrði alveg logn og sólskin allan tíman var meira en maður þorði að vona.

17.3.2008

Göngugleði - ferðasaga

Sjö óku upp á Hellisheiði og skíðagengu Hverhlíðar í dæmalaust góðu veðri. Við stoppuðum við hverasvæðið og einhverjir ráku nefið ofaní það. Landið skartaði sínum fegursta vetrarbúningi. Veðurblíðan var ótrúleg. Þó fundum við einn hól með köldum norðannæðingi og byl  og áveðurs drukkum við okkar hefðbundna kaff

13.3.2008

Félagsvist

Félagsvist Ferðafélags Íslands spila

Kæru spilafélagar.
Lokavist vetrarins verður þriðjudaginn 18. mars.  Vistin hefst kl: 19:30.  Spilað verður í Mörkinni 6 – í anddyri aðalsals
Hámark þátttakenda er 52.  Fyrstir koma – fyrstir fá. Vinsamlega athugið að félagsvistin er ætluð félögum í Ferðafélaginu og gestum þeirra.
Verðlaun verða veitt, kaffi og kökur.  Sérstök verðlaun verða veitt þeim sem flest stig hlýtur samtals á öllum spilakvöldum vetrarins.

Þátttökugjald er 600 kr.

12.3.2008

Aðalfundur FÍ

Aðalfundur FÍ í kvöld kl. 20
Aðalfundur Ferðafélagsins er haldinn í kvöld kl. 20 í FÍ salnum Mörkinni 6. Hefðbundin aðalfundarstörf.
Stjórnin.

12.3.2008

Undirbúningur fyrir Hvannadalshnúk

Á síðustu árum hafa ferðir á Hvannadalshnúk verið í tísku á meðal landsmanna. Ferðafélagið hefur vatnajokullum langt árabil staðið fyrir gönguferðum á Hvannadalshnúk en frá árinu 2005 hefur félagið farið með mjög fjölmenna hópa á hnúkinn í fararstjórn Haraldar Arnar Ólafssonar og fleiri vaskra fararstjóra/stýra...

10.3.2008

Skíðaferð - Dagsferð

Þingvallakirkja - Hvalvatn - Hvalfell - Glymur
Pálmasunnudagur 16. mars. Skíðaferð. Rúta.
Brottför frá Mörkinni 6  kl. 9. Göngutími 8  klst.
Verð: 4000/6000
Innifalið: Rúta, farastjórn.

10.3.2008

Páskaferð á Hornstrandir

Páskaferð á Hornstrandir
20-24. mars
Hámarksfjöldi 18 - 4 laus pláss
Verð: 40.000 / 43.000
Innifalið: Flug, bátsferð, gisting og fararstjórn

5.3.2008

Vaðnámskeiði FÍ frestað vegna aðstæðna

Vegna vatnavaxta, snjóa, ísa og skara á Þórsmerkurvötnum hefur vaðnámskeiði FÍ verið frestað til síðustu helgar mars mánaðar, þe 29. - 30. mars.

3.3.2008

Aðalfundur FÍ 12. mars nk.

Aðalfundur Ferðafélags Íslands verður haldinn miðvikudaginn 12. mars kl. 20.00 í sal FÍ Mörkinni 6. Hefðbundin aðalfundarstörf. Stjórnin.

2.3.2008

95 þátttakendur skráðir á Hvannadalshnúk.

Nú hafa 95 þátttakendur skráð sig í ferð FÍ á Hvannadalshnjúk um Hvítasunnuna. Hámarksfjöldi í fólk labba litilferðina er 100 og því fimm sæti laus. Haraldur Örn Ólafsson er fararstjóri í ferðinni ásamt 14 fararstjórum FÍ.  Þátttakendur hafa þegar hafið undirbúning fyrir ferðina með gönguferðum og líkamsrækt af ýmsu tagi.  Árið 2005 fór FÍ með 140 þáttakendur á Hvannadalshnúk í einni ferð en hefur síðan sett hámarksfjölda 100 í ferðina.

2.3.2008

List í Landmannalaugum

Síðast liðið haust var skálavarðahús FÍ í Landmannalaugum fjarlægt af svæðinu og flutt í Nýjadal. kindur og landml.Skálavörðurinn tók þessar skemmtilegu myndir á drumbungslegum degi í október.


PÓSTLISTASKRÁNING

Með reglulegu millibili sendir skrifstofa FÍ út yfirlit yfir félagsstarf, ferðir og annað það sem spennandi kann að vera fyrir áhugfólk um ferðalög og náttúru.
Eitt fjall á vikuFerðafélag barnannaSkráðu þig í FerðafélagiðLaugavegurinnSkálar - yfirlitskortFerðaáætlun 2010Safnaðu fjöllum með FÍ

Slóðin mín:

Forsíða » Fréttasíða

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Information in other languages

  • Information in English
  • Informationen auf Deutsch

Mynd