Fréttir
28.5.2008
The Uppermost Parth of Earth
Fyrirlestur og myndasýning með Simon Yates í sal Ferðafélagsins í kvöld kl. 20. Siomon mun á fyrirlestrinum leggja áherlsu á eldlandið, Tierra del Fuego, sem er syðsta landið í Suður Ameríku. Sl 25 ár hefur Simon stundað fjallaklifur og klifið mörg áður óklifinn fjöll í Andersfjöllnum og Himalaja. Aðgangseyrir að myndasýningunni er kr. 1.000
27.5.2008
Sumri fagnað í Þórsmörk
Næstkomandi laugardag 31. maí efnir Ferðafélag Íslands í samvinnu við Trex til dagsferðar í náttúruperluna Þórsmörk. Brottför er kl.08,00 að morgni frá Ferðafélagshúsinu Mörkinni 6 og ekið í Mörkina sem þegar er farin að skarta sumarskrúða
26.5.2008
Terr fjarskipti með tilboð til félagsmanna FÍ
Terr fjarskipti sem leigja Tetra talstöðvar hafa gert félagsmönnum FÍ tilboð um leigu á Tetra talstöðvum. Terr býður félagsmönnum FÍ 20% afslátt á leigugjaldinu. Hægt er að fræðast um Tetra talstöðvarnar á heimasíðunni www.terr.is
26.5.2008
Laus sæti í spennandi ferðir
Sæludagar í Svarfaðardal, ganga, hjól og kajak, Fljótafjöllin, Arnarvatnsheiði og Karlsdráttur eru spennandi sumarleyfisferðir hjá FÍ, þar sem enn eru nokkur sæti laus. Sjá nánar um ferðirnar.
26.5.2008
Vorganga Hornstrandafara FÍ
Að þessu sinni verður gengið um slóðir fornra þjóðleiða norðan og vestan Grindavíkur. Gangan hefst við fjallið Þorbjörn að norðanverðu. Staldrað verður við Eldvörpin, sem er falleg gígaröð og einnig við þyrpingu fornra byrgja, sem sumir kalla „Tyrkjabyrgin“. Þessi ganga er nánast á jafnsléttu en yfir nokkuð úfið hraun að fara og því betra að hafa göngustafina með. Gönguvegalengdin er u.þ.b. 10 km.
21.5.2008
Fyrsta íslenska fjallamyndin
Fyrsta íslenska fjallamyndin verður frumsýnd (boðssýning) í Háskólabíó fimmtudaginn 22. maí kl.20. Hún verður einnig sýnd mánudaginn 26.maí og þriðjudaginn 27.maí. Simon Yates verður svo með fyrirlestur í Ferðafélagssalnum í Mörkinni 6. miðvikudaginn 28. mai kl. 20.
19.5.2008
Árbókin í dreifingu.
Árbók Ferðafélagsins er nú í dreifingu til félagsmanna. Félagsmenn eru beðnir að greiða árgjaldið í næsta banka eða sparisjóði og fá síðan árbókina senda heim ásamt félagsskírteini. Þeir sem þegar hafa greitt árgjaldið fá árbókina nú á næstu dögum. Frá og með morgundeginum má gera ráð fyrir 2 til 3 daga afgreiðslufresti á bókinni. Pósturinn sér um dreifingu bókarinnar fyrir FÍ og er bókin borin í hús og bankað upp á og ef engin er heima þá er skilin eftir tilkynning og skal þá nálgast bókina á næstu póststöð.
19.5.2008
Skálaverðir til starfa í Þórsmörk
til starfa í upphafi sumars. Töluvert er bókað í Skagfjörðsskála í maí og þá mest skólahópar. Skálar á Laugaveginum eru lokaðir og mælir Ferðafélagið ekki með því að einstaklingar leggi af stað Laugaveginn á þessum árstíma enda snjóa að leysa, færið þungt og víða mikil bleyta og aurbleyta. 19.5.2008
17 tíma gönguferð á Hrútfellstinda
Ferðafélagið stóð fyrir gönguferð á Hrútfellstinda um helgina. Alls tóku 14 þátt í göngunni sem tók
rúma 17 tíma. Eftir þungbúið skyggni í upphafi ferðar var gengið upp úr skýjunum í um 1200 metra hæð og blasti þá við stórkostlegt útsýni. Þórhallur Ólafsson fararstjóri FÍ í ferðinni var ánægður í lok ferðar og sagði að allir hefðu staðið sig mjög vel. Sjá myndir
15.5.2008
Fararstjórar FÍ á sprungunámskeiði
Fararstjórar hjá Ferðafélagi Íslands tóku þátt í sprungunámskeiði á dögunum hjá Jökli Bergmann. Þetta er annað árið í röð sem Jökull er með námskeið fyrir fararstjóra FÍ en hann er nýútskrifaður frá Kanada með próf í fjallaleiðsögn af hæstu gráðu. Útivera.is er með skemmtilegt spjall við Jökul og fréttir af námskeiðinu á vef sínum www.utivera.is, þar sem er að finna nýjan veffréttavarpa.
13.5.2008
90 manns á Hvannadalshnúk um Hvítasunnuna
Um 90 manns gengu á Hvannadalshnúk með Ferðafélaginu um Hvítasunnuhelgina. Lagt var af stað í gönguna kl. sex að morgni á laugardag. Rigning var í upphafi og göngu og skyggni lítið lítið nánast alla gönguna. Þó rofaði til á leiðinni niður. Erna Bergþóra Einarsdóttir ferðafulltrúi hjá FÍ sagði að gangan hefði gengið vel þrátt fyrir veðrið. ,,Fyrstu menn voru tólf og háflan tíma en sá síðasti kom niður um hálfellefu í fylgd Haraldar Arnar fararstjóra," Alls voru 14 fararstjórar í ferðinni.
Myndir úr ferðinni verða settar á myndabanka FÍ á næstunni.
9.5.2008
Til þátttakenda í ferð á Hvannadalshnúk
9.5.2008
300 manns í morgungöngum FÍ
Um 300 manns tóku þátt í morgungöngum FÍ þetta árið og ljóst er að morgungöngurnar njóta vaxandi vinsælda og hefur þátttakan aldrei verið meiri. Á toppi Úlfarfells í morgun var hrópað ferfalt húrra fyrir þeim sem mætt höfðu í allar göngurnar fimm þetta árið og reyndust þeir vera 26 að fararstjórum meðtöldum. Sjá myndir
9.5.2008
Gæsahúð á Úlfarsfelli - morgungöngur FÍ
Ekki var laust við hinir árrisulu göngugarpar í morgungöngum Ferðafélagsins fengu gæsahúð þegar Karlakórinn Fóstbræður söng Hærra minn Guð til þín, í rigningu og roki, efst á Úlfarsfelli eldsnemma morguns. Vel æfður kórinn, margraddaður undir stjórn Árna Harðarssonar, sögn sig inn í hjörtu göngumanna sem stóðu vindbarðir og blautir í slagvirði og hlýddu á með kakómjólk og ostaslaufu í hönd. All súrrealískar aðstæður svo ekki verði meira sagt.
8.5.2008
Helgafell í morgun - Úlfarsfell í fyrramálið
Alls 53 fóthvatir morgunhanar mættu í fjórðu morgungöngu Ferðafélags Íslands að morgni
fimmtudags og skunduðu upp á Helgafell í Mosfellsdal. Að þessu sinni var fenginn kunnugur heimamaður Bjarki Bjarnason sem sagði þátttakendum til vegar og fræddi þá um sögu landsins og örnefni.
Sjá myndir úr göngunni í morgun.
7.5.2008
50 morgunhanar í súld og þoku á Vífilsfelli.
Frábær þátttaka hefur verið í morgungöngum Ferðafélagsins í ár. Um 60 manns mættu fyrstu tvo morgnana og gengu á Helgafell á mánudag og Keili á þriðjudag. Í morgun var stefnt á Vífilfell þrátt fyrir að súld lægi yfir toppnum. Samtals 43 vaskir morgunhanar gerðu léttar leikfimiæfingar við rætur fjallsins og töltu svo af stað upp í þokuna. Páll Ásgeir Ásgeirsson fararstjóri í morgungöngunum sagði að veðrið í morgun hefði verið dumbungslegt og í miðju fjalli hefði skyggni verið lítið sem ekkert.....,
Sjá myndir
6.5.2008
Hvannadalshnúkur um Hvítasunnu - til þátttakenda
Reiknað er með að gengið verði á Hnúkinn á laugardag en sunnudagur er varadagur. Þátttakendur verða að fylgjast með heimasíðu FÍ til hádegis á föstudag þar sem fréttir birtast af endanlegum uppgöngutíma.
6.5.2008
Morgungöngur - Keilir
Morgungöngur FÍ héldu áfram í morgun þegar gengið var á Keili. Páll Ásgeir Ásgeirsson fararstjóri í morgungöngunum var hinn sprækasti í morgunsárið og stýrði morgunleikfimi af mikilli lipurð. Páll Ásgeir segist mjög ánægður með þátttökuna en um 60 manns hafa nú tekið þátt í báðum morgungöngunum. ,,Á morgun kl. 6 leggjum við af stað í morgungöngu á Vífilsfell og það eru allir velkomnir. Það er virkilega góð tilfinning að standa á fjallstindi og horfa yfir borgina eldsnemma morguns."Sjá myndir
5.5.2008
Góð þátttaka í fyrstu morgungöngu FÍ
Góð þátttaka var í fyrstu morgungöngu Ferðafélagsins þetta árið. Um sextíu manns gengu á Helgafell ofan Hafnarfjarðar í ljómandi góðu veðri. Valdimar Örnólfsson stjórnaði morgunleikfimi í upphafi göngu. Á morgun verður gengið á Keili og lagt af stað í einkabílum frá Mörkinni 6 kl. 6 og eða frá bílastæðinu á Höskuldarvöllum kl. 6.20. Á miðvikudag er gengið á Vífilsfell, fimmtudag á Helgafell í Mosfellssveit og föstudag á Úlfarsfell. Þátttaka er ókeypis í morgungöngurnar, allir velkomnir. Myndir úr morgungöngunum eru væntanlegar í myndabanka FÍ. Fararstjóri í morgungöngum FÍ er Páll Ásgeir Ásgeirsson.
Nýjar auglýsingar
Leit
Mynd























