Fréttir
30.6.2008
Um 2000 gestir á Esjudeginum
Um 2000 gestir voru á Esjudegi FÍ og SPRON á laugardaginn. Boðið var upp á fjölbreytta dagskrá, gönguferðir, Esjuhlaup, tónlist og skemmtiatriði... Sjá myndir
30.6.2008
Þórhallur á 151 tind
Þórhallur Ólafsson, fararstjóri hjá Ferðafélagi Íslands, hefur nú lokið við að ganga á öll fjöll í bók Ara Trausta og Péturs Þorleifssonar, 151 fjall á Íslandi...., sjá myndir
30.6.2008
Laugavegsrit, þriðja útgáfa
Laugavegurinn, bæklingur FÍ eftir Leif Þorsteinsson kemur út á næstum dögum. Þetta er þriðja útgáfa þessa vinsæla bæklings um gönguleiðina úr Landmannalaugum suður í Þórsmörk sem þúsundir ferðast um á hverju sumri.
27.6.2008
Esjudagur FÍ og SPRON
Laugardaginn 28. júní bjóða SPRON og Ferðafélag Íslands þér og fjölskyldunni
að taka þátt í fjölskylduhátíð við Esjurætur frá kl. 13 til 15. Fjölmargt verður til skemmtunar...
25.6.2008
Menningarsjóður VISA styrkir FÍ
Stjórn Menningarsjóðs VISA hefur úthlutað 13 styrkjum í ár, samtals að fjárhæð 12,1 milljón króna. Menningarsjóður VISA styrkti FÍ til skiltagerðar, fyrir Hvannadalshnúk og Fimmvörðuháls.
24.6.2008
Myndir úr Jónsmessugöngu á Heklu
Myndir úr Jónsmessugöngu FÍ á Heklu eru nú komnar í myndabanka FÍ.
Sjá allar myndir úr ferðinni.
23.6.2008
110 göngugarpar á Heklu
Alls tóku 110 manns þátt í Jónsmessugöngu FÍ á Heklu. Ferðin gekk vel og var gengið upp í ágætu veðri þrátt fyrir skúraveður allt í kring. Komið var á Heklutind skömmu eftir miðnætti...
23.6.2008
Vinnuferð í Emstur

Um helgina var farin vinnuferð í skála FÍ á Botnum í Emstrum. Að sögn Þorsteins Eiríkssonar fóstra skálans í Emstrum tókst vinnuferðin vel....
19.6.2008
Opið í Landmannalaugum
Nú hefur verið opnað í skála FÍ í Landmannalaugum og skálaverðir komnir til starfa. Skálaverðir eru
einnig komnir í Hrafntinnusker, Emstrur og Þórsmörk...
18.6.2008
Jónsmessuganga á Heklu
Ferðafélagið stendur fyrir Jónsmessugöngu á Heklu föstudaginn 20. júní. Lagt er af stað frá
Mörkinni 6 kl. 18 og ekið austur fyrir fjall að Skjólkvíum við Heklurætur. Þaðan er lagt af stað í gönguna kl. 21.00. Áætlað er að vera á tindi Heklu um miðnætti. Fararstjóri í ferðinni er Páll Guðmundsson.
Sjá myndir úr Jónsmessugöngu FÍ á Heklu sl. sumar.
11.6.2008
Fremtidens veivalg - ársfundur DNT
Ársfundur Norska ferðafélagsins verður haldinn 12. - 14 júní nk í Drammen í Noregi. Páll Guðmundsson framkvæmdastjóri FÍ verður gestur á fundinum. Norska Ferðafélagið er á meðal stærstu félagasamtaka á Norðurlöndunum með um 220.000 félagsmenn og gríðarlega öflugt starf. ,, Við höfum mikinn áhuga á að efla samstarfið við DNT og um leið læra af þeirra góða starfi en Ferðafélag Íslands var byggt upp og starfar á sömu hugmyndafræði og Norska ferðafélagið, " segir Páll Guðmundsson. Fremtidens veivalg er yfirskrift ársfundarins og er þar fundað meðal annars um almannarétt, öryggismál, félagsstarf og náttúruvernd.
11.6.2008
Kóngsvegurinn í fornbílum
Ferðafélagið býður upp á athyglisverða og skemmtilega ferð nk sunnudag þegar farið verður í fornbílum eftir eða í næsta nágrenni við Kóngsveginn. Ekið verður sem leið liggur til Þingvalla og Laugarvatns og að Úhlíð til Björns bónda Sigurðssonar sem mun taka á móti gestum í nýju kirkjunni sinni. Ólafur Örn Haraldsson forseti FÍ er fararstjóri í ferðinni, ásamt Evu Þorvaldsdóttur sem sér um grasafræðslu í ferðinni á þessum norræna degi blóma.
11.6.2008
Ferðir um helgina
Næstu ferðir hjá Ferðafélaginu er Fimmvörðuháls, Konungsvegurinn og Esjan endilöng.
Laust er í ferðirnar, skráning fer fram á skrifstofu Ferðafélagsins í síma 568-2533 eða á tölvupóst fi@fi.is
4.6.2008
Esjuhappdrætti FÍ og SRPON
Ferðafélagið og Sparisjóður Reykjavíkur standa fyrir Esjuhappdrætti þriðja árið í röð. Allir sem skrifa nafn sitt og netfang geta átt von á gönguskóm frá Cintamani. Gestabækurnir eru í póstkassa FÍ bæði við Steininn og uppi á Þverfellshorni. Síðast liðin sumur hafa um 10.000 þúsund göngugarpar skrifað nöfn sín í gestabækur FÍ. Sparisjóður Reykjavíkur er aðalstyrktaraðili Ferðafélags Íslands.
2.6.2008
Vorferð Hornstrandafara FÍ
Að þessu sinni verður gengið um slóðir fornra þjóðleiða norðan og vestan Grindavíkur. Gangan hefst við fjallið Þorbjörn að norðanverðu. Staldrað verður við Eldvörpin, sem er falleg gígaröð og einnig við þyrpingu fornra byrgja, sem sumir kalla „Tyrkjabyrgin“. Þessi ganga er nánast á jafnsléttu en yfir nokkuð úfið hraun að fara og því betra að hafa göngustafina með. Gönguvegalengdin er u.þ.b. 10 km.
2.6.2008
Kóngsvegurinn á norrænum degi villtra blóma.
Ferðafélag Íslands í samstarfi við Fornbílaklúbb Íslands og Grasagarð Reykjavíkur býður upp á fornbílaferð 15. júní nk á degi villtra blóma. Ekið verður sem leið liggur um Þingvelli og Laugarvatn og að Úthlíð eftir eða í námunda við Kóngsveginn. Ólafur Örn Haraldsson og Eva G. Þorvaldsdóttir eru fararstjórar í ferðinni.
2.6.2008
Skessuhorn á laugardaginn
Skessuhorn í Borgarfirði, skemmtileg ganga fyrir alla, harmonikkan með í för og sungið og sprellað á leiðinni. Ingimar Einarsson frá Hvanneyri er fararstjóri í ferðinni ásamt Pétri Magnússyni.
Nýjar auglýsingar
Leit
Mynd























