Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu

Fréttir

Fréttir FÍ - RSS

29.8.2008

Á slóðum Laxness með Pétri Ármannssyni

Sunnudaginn 7. septbember er boðið upp á gönguferð á slóðum Laxness með Pétri Ármannssyni arkitekt sem leiðsögumanni.  Gengið verður frá Gljúfrasteini, að Helgufossi og áframt á Grímarsfell, eftir fjallinu og niður aftur að Glúfrasteini.  Á leiðinni eru margir fallegir staðir og útsýni gott af fjallinu, sem og skemmtileg frásögn af ferðum skáldsins um þetta ágæta göngusvæði.

28.8.2008

Haustferð Hornstrandafara FÍ

Haustganga Hornstrandafara FÍ verður farin þ. 4. október nk. Að þessu sinni verður farið á Borgarfjarðarsvæðið og gengið í nágrenni Borgarnes – Hafnarfjall eða Hafnardal eða sambland af hvoru tveggja.

25.8.2008

Allt hvítt í Hrafntinnuskeri

Í nótt var bylur í Hrafntinnuskeri og þegar göngufólk vaknaði þar i morgun var allt orðið hvítt í næsta nágrenni skálans. FÍ brýnir fyrir göngufólki að vera vel búið á gönguferðum nú á haustdögum og kanna vel veðurspá áður en haldið er til fjalla.

25.8.2008

Nafn á nýrri gönguleið

Frestur til að skila inn tillögum að nafni á nýrri gönguleið FÍ rennur út 1. september. Gönguleiðin er frá Skálpanesi, um Jarlhettudal, niður að Hagavatni og Einifelli. Þaðan yfir nýja brú FÍ yfir Farið, yfir í Hlöðuvelli, Karl og Kerlingu, niður Langadal, um Klukkuskarð og að Laugarvatni.  Ólafur Örn Haraldsson hefur leitt hóp FÍ um þessa leið í þrjú ár og hefur hún notið vaxandi vinsælda

22.8.2008

Samingur um Árbók FÍ 2011

Í dag skrifuðu  Páll Guðmundsson framkvæmdastjóri FÍ og Árni Björnsson þjóðháttarfræðngur undir ritsamning þess efnis að Árni Björnsson skrifar Árbók FÍ 2011 um Dalasýslu.  Árbók FÍ 2009 verður um Vestmannaeyjar og Árbók FÍ 2010 um Torfajökulssvæðið.

22.8.2008

Nýr skáli FÍ í Álftavatni

Hróður Laugavegarins, vinsælustu gönguleiðar hálendisins berst víða. Umfjöllun um Laugaveginn er víða í erlendum tímaritum. Um átta þúsund manns ganga Laugaveginn á hverju sumri og eru erlendir göngumenn í meirihluta. Ferðafélag Íslands hóf uppbyggingu á Laugaveginum fyrir 50 árum og hefur síðan byggt upp fimm skála á leiðinni og auk þess fest kaup á Hvanngili.

13.8.2008

Fimmvörðuháls

Hinn sígildi Fimmvörðuháls verður farin á laugardaginn 16.ágúst síðasta ferðin á hálsin hjá Ferðafélaginu í sumar.
Grillveisla á laugardagskvöldinu þegar komið er niður í Langadal.

11.8.2008

Fossaganga á Gnúpverjaafrétti

Fossaganga á Gnúpverjaafrétti.
Farið frá Árnesi á laugardegi og komið til baka þangað á sunnudegi um kl: 20:00

8.8.2008

Fjölskylduferð í Þórsmörk

Fjölskylduferð í Þórsmörk 15-17.ágúst. 2008
Farið verður á föstudaginn 15.ágúst frá Mörkinni kl 18 og komið heim á sunnudeginum 17.ágúst.
Skemmtileg ferð fyrir alla fjölskylduna, Ömmur og Afar, mömmur og Pabbar og öll börnin og barnabörnin.

8.8.2008

Þúfuver / Þjórsárver 10. ágúst - kynningarfundir í háskólatorgi kl. 13 á laugardag

Ferðafélagið býður upp á ferð í Þúfuver 10. ágúst. Tilgangur ferðarinnar er að kynna fólki Þjórsárver, án þess að leggja upp í margra daga erfiða ferð yfir jökulvötn. Sjálf ferðin verður farin sunnudaginn 10. ágúst en daginn áður verður þátttakendum boðið upp á kynningu í og er hún í Háskólatorgi, sal ht101 og hefst kl. 13.00

7.8.2008

Myndir úr Hvanndölum - Héðinsfirði

Nú má sjá myndir úr ferð FÍ í Hvanndali og Héðinsfjörð með því að smella hér

7.8.2008

100 ára afmælisganga á Herðubreið

Þann 13. ágúst í ár eru liðin 100 ár frá því að þýski vísindamaðurinn Hans Reck og Sigurður Sumarliðason gegnu fyrstir manna á Herðubreið. Ferðafélag Akureyrar  og Ferðafélag Íslands bjóða upp á sérstaka afmælisgöngu á Herðubreið af þessu tilfenfi.

6.8.2008

Á sögulegum slóðum í Hvanndölum

Hópur á vegum Ferðafélagsins lagði á sig 6 klukkustunda klöngur í fjörunni undir Hvanndalsskriðum og óðu sjóinn til að endurtaka erfiða göngu konu einnar fyrir 150 árum sem þurfti fara, með ársgamalt barn í fanginu til að sækja eld á næsta bæ. Konan, Guðrún Þórarinsdóttir var þá langt gengin með barni og annar fararstjórinn í ferðinni, Auður Kjartansdóttir, fetaði nú í fótspor Guðrúnar, komin 5 mánðuði á leið.

6.8.2008

Laugavegurinn um miðjan ágúst

FÍ býður upp á ferð um Laugaveginn 20. - 24. ágúst. Seinni part sumars skartar náttúran sínu fegursta, gróður vel gróin og gönguleiðir góðar eftir aðstæðum. Kvöldrökkur eykur stemminguna í skálum.


PÓSTLISTASKRÁNING

Með reglulegu millibili sendir skrifstofa FÍ út yfirlit yfir félagsstarf, ferðir og annað það sem spennandi kann að vera fyrir áhugfólk um ferðalög og náttúru.
Eitt fjall á vikuFerðafélag barnannaSkráðu þig í FerðafélagiðLaugavegurinnSkálar - yfirlitskortFerðaáætlun 2010Safnaðu fjöllum með FÍ

Slóðin mín:

Forsíða » Fréttasíða

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Information in other languages

  • Information in English
  • Informationen auf Deutsch

Mynd