Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu

Fréttir

Fréttir FÍ - RSS

22.1.2009

Fjallaskóli FÍ og ungmennaverkefni - Ferðaáætlun FÍ 2009

Olafur-orn-150„...okkur er mikið kappsmál að ná til unga fólksins. Höfum því ákveðið að fara af stað í sumar með ungmennaverkefni með ýmiskonar fræðslu og ferðalögum og væntum mikils af því,“ segir Ólafur Örn Haraldsson forseti FÍ.

22.1.2009

Óþrjótandi ævintýraleiðir - Ferðaáætlun FÍ 2009

Sigrún„Sérstaklega er gaman að hugsa til fjölskylduferða í Þórsmörk undir samheitinu María María. Fjallatindarnir fimm eru nýmæli. Það verður gaman að fylgjast með þeim sem spreyta sig á þessum fjöllum,“ segir Sigrún Valbergsdóttir formaður ferðanefndar FÍ í tilefni af útgáfu Ferðaáætlunar FÍ 2009.

22.1.2009

Barnavagnavika FÍ og fjölbreytt námskeið - Ferðaáætlun FÍ 2009

peglonUm miðjan maí verður á dagskrá Ferðafélags Íslands svonefnd barnavagnavika. ,,Með þeim er ætlunin að gefa ungu fólki með ungabörn í vagni tækifæri á að sýna sig og sjá aðra í skemmtilegum gönguferðum,"segir Páll Guðmundsson framkvæmdastjóri FÍ.  

22.1.2009

Fimm fjöll á einni viku - morgungöngur FÍ - Ferðaáætlun FÍ 2009

paaMorgungöngur í maí hafa unnið sér fastan sess í starfi Ferðafélags Íslands. ,,Þær verða á dagskrá dagana 4. til 8. maí.," segir Páll Ásgeir Ásgeirsson sem er fararstjóri í morgungöngunum ásamt konu sinni Rósu Sigrúnu Jónsdóttur.

20.1.2009

Fjallakvöld FÍ

Fimmtudagur 22. janúar kl. 20
Ferðafélagar, fjallafólk og útivistaráhugamenn hittast og spjalla um ferðir, leiðir, búnað, myndir, bækur og fleira er tengist ferða-  og fjallamennsku. Sérfræðingar og reynslumiklir ferðamenn mæta  til skrafs og ráðagerða. Kaffi og fjallakakó á könnunni.  

20.1.2009

Myndakvöld 21. janúar

Næsta myndakvöld FÍ er miðvikudaginn 21. janúar kl 20.  Þá sýna Ína D. Gísladóttir formaður Ferðafélags fjarðarmanna og Pétur Þorleifsson fjallamaður Íslands myndir.  Pétur sýnir myndir frá Vestmannaeyjum sem teknar voru 1966 og Ína sýnir myndir að austan og segir frá starfi og ferðum félagsins.  Aðgangseyrir er kr. 600, innifalið kaffi og meðlæti og allir velkomnir.

20.1.2009

Ferðaáætlun FÍ 2009

Ferðaáætlun FÍ 2009 kemur út  föstudaginn 23. janúar og er dreift til félagsmanna FÍ ásamt fréttabréfi. Þá er Ferðaáætluninni einnig dreift með Morgunblaðinu laugardaginn 31. janúar. 

20.1.2009

Fréttapóstur FÍ 20. janúar

Fréttapóstur frá FÍ 20. janúar.  Fréttapóstur FÍ er sendur út reglulega með fréttum af ferðum og félagsstarfi.  Hægt er að skrá sig á póstlista FÍ hér á heimasíðunni.

14.1.2009

Skíðagöngunámskeið í Bláfjöllum

Skíðagöngufélagið Ullur og Skíðasamband Íslands standa fyrir Skíðagöngunámskeiði í Bláfjöllum.
Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem vilja auka hæfni sýna á gönguskíðum. Farið verður í undirstöðuatriði skíðagöngunnar, meðferð skíðabúnaðar auk þess að skautaskrefið verður tekið lítillega fyrir.  Félagsmenn í Ferðafélagi Íslands fá aflátt á námskeiðið.

14.1.2009

Ársfundur Hornstrandafara F.Í.

Ágætu  Hornstrandafarar !! Ársfundur Hornstrandafara 2009 verður haldinn laugardaginn 17. janúar kl. 14.00 í Mörkini 6 stóra salnum niðri.

8.1.2009

Borgarganga um gamla vesturbæinn

Borgarganga Ferðafélags Íslands og Hornstrandafara FÍ er  að þessu sinni um gamla vesturbæinn í Reykjavík.

6.1.2009

Göngugleði - ferðasaga 28. des

Við lögðum bílnum skammt frá kirkjunni í Brautarholti á Kjalarnesi og héldum í áttina að Presthúsatöngum en þar ganga reisulegir drangar út í sjó.  Síðan gengum við með ströndinni í átt að Nesvík og tókum kaff eftir rúml. klukkustundar göngu. Áfram héldum við með ströndinni framhjá gömlum rústum og að Borgarvík. Þar beygðum við í áttina að Brautarholtsborg, gengum á hana (47 m !) og síðan í áttina að bílnum.

5.1.2009

Skráðu þig inn - drífðu þig út

Fjölmargir virðast hafa strengt það áramótaheit að ætla að ganga í Ferðafélagið.  Fyrstu daga ársins hefur verið góð skráning nýrra félagsmanna í félagið.  Fátt er betra en að stunda heilbrigða útivist og fjallamennsku og er er þátttaka í Ferðafélaginu kjörin til þess. Félagsmennn í Ferðafélagi Íslands geta tekið þátt í fjölbreyttri ferðadagskrá félagsins, tekið þátt í námskeiðum og félagsstarfi FÍ, fá árbók félagsins innifalda í árgjaldi, fá afslátt í skála og ferðir FÍ sem og afslátt í fjölda útivistarverslana. Því er um að gera að hefja nýja árið með því að skrá sig inn og drífa sig út.   Hægt er að skrá sig með því að senda tölvupóst á fi@fi.is eða hringja í síma 568-2533.

5.1.2009

Ódýrar ferðir innanlands

Ferðaáætlun FÍ kemur út 25. janúar nk. Í áætluninni verður að finna fjölbreytt úrval gönguferða um landið.  Fjölmargar nýungar er að finna í áætluninni en áhersla Ferðafélagsins er að bjóða upp á ódýrar ferðir þar sem allir eiga að geta fundið eitthvað við sitt hæfi og nú ekki síst fjölskyldufólk.  Í áætluninni er að finna ferðir um allt land, bæði ný og ókönnuð svæði sem og sígidlar ferðir um sívinsæl svæði. Má þar nefna ferðir um Laugaveginn, Fimmvörðuháls, í Þórsmörk, á Hvannadalshnúk, um Hornstrandir, í Héðinsfjörð og Fjöður, um Víknaslóðir svo fátt eitt sé nefnt.  Þá verða morgungöngurnar á sínum stað í maí og nú verður boðið upp á sérstaka barnavagnaviku í apríl.

5.1.2009

Fjallkakvöld FÍ

Fjallakvöld FÍ hefjast í lok janúar. Fjallakvöldin verða haldin í sal FÍ einu sinni í mánuði og þar gefst útivistarunnendum og ferðafólki kostur á að hittast, spá og spjalla, bæði í ferðir, búnað, leiðir og margt fleira.  Á hvert fjallakvöld munu nokkrir valinkunnir reynsluboltar mæta og miðla af reynslu sinni og þekkingu. Boðið verður upp á kaffi og fjallakakó.  Dagskrá Fjallakvölda Fí verða auglýst nánar á næstunni.

5.1.2009

Námskeið hjá FÍ i vetur

Ferðafélagið stendur fyrir námskeiðum í vetur, bæði fyrir fararstjóra félagsins og félagsmenn. Á meðjal námskeiða sem verða haldin má nefna gps námskeið, námskeið í skyndihjálp, fjallamennska 1, vaðnámskeið, jöklaöryggisnámskeið, námskeið um gönguskíðamennsku, snjóflóðanámskeið og námskeið um ferðamennsku og búnað.  Námskeiðin hefjast í byrjun febrúar og verða nánar auglýst síðar.

5.1.2009

Gervihnattasímar til leigu hjá FÍ

Ferðafélagið býður nú félagsmönnum gervihnattasíma til leigu í ferðir um sambandslaus svæði.   Athugið að símarnir eru eingöngu leigðir út til félagsmanna fyrir kr. 1500 sólarhringinn auk kr. 3000 stofnleigugjalds auk þess sem leigutaki greiðir fyrir notkun símans.  Þá er innheimt tryggingargjald ef síminn verður fyrir skemmdum.


PÓSTLISTASKRÁNING

Með reglulegu millibili sendir skrifstofa FÍ út yfirlit yfir félagsstarf, ferðir og annað það sem spennandi kann að vera fyrir áhugfólk um ferðalög og náttúru.
Eitt fjall á vikuFerðafélag barnannaSkráðu þig í FerðafélagiðLaugavegurinnSkálar - yfirlitskortFerðaáætlun 2010Safnaðu fjöllum með FÍ

Slóðin mín:

Forsíða » Fréttasíða

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Information in other languages

  • Information in English
  • Informationen auf Deutsch

Mynd