Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu

Fréttir

Fréttir FÍ - RSS

30.11.2009

Fyrsta hádegisgangan

Þann 1. des hefjast hádegisgöngur Ferðafélagsins og hittast menn við Árbæjarlaug kl. 12.00. Þaðan verður gengið um Elliðaárdal í rúman klukkutíma. Veðurspá er fremur hagstæð og má búast við norðanátt og líklega björtu veðri og nokkru frosti og því rétt að búa sig hlýlega.
Ferðafélagið leggur til fararstjóra í hádegisgöngurnar og verða þeir tveir saman í þessari fyrstu göngu sem fram fer á fullveldisdegi Íslands. Þetta eru Pálar tveir, Páll Guðmundsson, framkvæmdastjóri FÍ og Páll Ásgeir Ásgeirsson rithöfundur og stjórnarmaður í FÍ. Báðir eru þeir vanir fararstjórn en heimasíðunni tókst ekki að afla upplýsinga um nákvæma verkaskiptingu milli þeirra í göngunni.
Ferðafélag Íslands vonast til þess að sjá sem flesta í göngunni.

25.11.2009

Opið hús á afmæli FÍ

Föstudaginn 27. nóv. n.k á Ferðafélag Íslands afmæli og verður 82 ára. Í tilefni dagsins verður opið hús á skrifstofu félagsins í Mörkinni 6 eftir kl. 14.00 á afmælisdaginn og verður gestum og gangandi boðið upp á kaffi og kökur í tilefni dagsins.
Þarna gefst tækifæri til að óska Ferðafélagi Íslands til hamingju með daginn yfir kaffibolla og ná tali af starfsmönnum og ýmsum velunnurum félagsins sem væntanlega fjölmenna á staðinn.

24.11.2009

Göngugleði á sunnudögum - ferðasaga

Sunnudaginn 22. nóvember mættu nokkrir gangendur á vegginn. Eftir nokkrar umræður um ýmsar uppástungur og misheppnaðar tillögur varð að samkomulagi að aka upp að efnisnámum austan við Þormóðsdal, en þær eru sunnan undir Hulduhól (208 m). Ekki urðum við þó varir við huldukonu. Eftir stuttan hringakstur um námuna þar sem gefur að líta skemmtilegt stuðlaberg í námuveggjunum geislað í ýmsum útgáfum var bílnum lagt og gangan hafin inn Seljadal.

24.11.2009

Ævintýrið um Augastein

Felix Bergsson fararstjóri hjá Ferðafélaginu og leikari stendur í ströngu þessa dagana. Leikhópurinn Á senunni kynnir enn á ný hina margrómuðu og yndislega fallegu jólaleiksýningu Ævintýrið um Augastein eftir Felix Bergsson, í samstarfi við Kolbrúnu Halldórsdóttur og Helgu Arnalds, sem verður að nýju sýnd í nóvember og desember 2009 í Hafnarfjarðarleikhúsinu

24.11.2009

GSM samband í Þórsmörk

Fyrir skömmu voru settir upp tvenns konar sendar á Þórólfsfelli, innarlega í Fljótshlíð. Annar tryggir fjarskiptasamband fyrir lögreglu og björgunarsveitir gegnum Tetra kerfið en hinn er sendir fyrir GSM. Með þessu stórbatnar símasamband í Þórsmörk sem fram að þessu hefur verið mjög af skornum skammti og nær sambandslaust þar nema á tilteknum blettum.

19.11.2009

Torfajökull í efsta sæti

Náttúrufræðistofnun Íslands hefur lokið umfangsmiklum rannsóknum á náttúrufari og verndargildi háhitasvæða á Íslandi. Niðurstöðurnar eru nú aðgengilegar almenningi á vef Náttúrufræðistofnunar.
Skemmst er frá því að segja á á lista yfir tíu verðmætustu háhitasvæði landsins er Torfajökulssvæðið í efsta sæti en það er talið einstætt í sinni röð í heiminum.
Þess má geta að næsta árbók Ferðafélags Íslands fjallar um Torfajökulssvæðið og er höfundur hennar Ólafur Örn Haraldsson núverandi forseti félagsins.

19.11.2009

Málþing um náttúruvernd

Föstudaginn 20. nóvember verður haldið málþing um náttúruvernd í Rúgbrauðsgerðinni í Borgartúni 6. Það er Umhverfisstofnun sem heldur málþingið sem ber yfirskriftina: Jarðfræðileg fjölbreytni og landslag: verndargildi og sérstaða Íslands.
Fjöldi áhugaverðra erinda er á dagskrá málþingsins sem hefst kl. 13:00. Má nefna sem dæmi að Þóra Ellen Þórhallsdóttir heldur erindi um verndargildi landslags og Sigmundur Einarsson jarðfræðingur fjallar um verndargildi jarðhitasvæða. Þóra Ellen er vinsæll fararstjóri í ferðum FÍ í Þjórsárver.
Einnig er forvitnilegt erindi Ara Trausta Guðmundssonar um verndargildi eldstöðva og eldstöðvakerfa og Kristján Jónasson og Sveinn Jakobsson fjalla um fágætar steindir og berg á Íslandi.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.

19.11.2009

Húsfyllir á myndakvöldi

Húsfyllir varð á myndakvöldi Ferðafélags Íslands í gærkvöldi og voru 150 manns mættir til að fylgjast með sýningunni. Haraldur Örn Ólafsson og Guðmundur Jónsson (Gummi stóri) sýndu myndir af háfjallagöngum á Hvannadalshnúk, Hrútfjallstinda, Þverártindsegg og Miðfellstind svo nöfn nokkurra fjallarisa sem komu við sögu séu nefnd.
Ljóst er að áhugi á fjallgöngum á brött fjöll er vaxandi í takt við vinsældir Hvannadalshnúks og var reglulega gaman að sjá næstum allan salinn rétta upp hönd þegar spurt var hverjir ætluðu sér að ganga á Þverártindsegg.
myndakvöld nov 09

17.11.2009

Mætum á myndakvöld

Í kvöld miðvikudag 18. nóvember er myndakvöld í sal Ferðafélagsins kl. 20.00. Það ber yfirskriftina: Sjáðu tindinn, þarna fór ég. Þar sýna Haraldur Örn Ólafsson og Guðmundur Jónsson ljósmyndir sem þeir hafa tekið í göngum á nokkur hæstu og tignarlegustu fjöll á Íslandi. Hvannadalshnúkur, Hrútfjallstindar, Þverártindsegg og margir fleiri tindar verða í aðalhlutverkí á þessu fróðlega og skemmtilega myndakvöldi.
Kaffiveitingar í hléi.

12.11.2009

Sunnudagur við Lögberg

Göngugleði FÍ sem starfar á sunnudagsmorgnum stefndi að Lögbergi s.l. sunnudag. Þar var gengið um nágrenni Nátthagavatns og Elliðakots. Alls tók gangan tvo og hálfan tíma og sex kílómetrar lagðir að baki.

11.11.2009

Myndir úr ferðum sumarsins

Verið er að setja inn myndir úr ýmsum ferðum FÍ á liðnu sumri í myndasafn heimasíðunnar. Hægt er að skoða myndir af Óeiginlega Laugaveginum hér og hér. Þessar eru úr fossagöngu um Djúpárdal og hér og hér úr Strandagöngu. Þetta eru aðeins nokkur dæmi úr fjölbreyttu myndasafni Ferðafélags Íslands sem vex jafnt og þétt.
Þeir sem eiga myndasöfn úr skemmtilegum Ferðafélagsferðum vistuð á netinu ættu að senda slóðirnar á lysandi@internet.is og þá mun tengill verða settur inn á heimasíðu FÍ.

10.11.2009

Sjáðu tindinn, þarna fór ég

Næsta myndakvöld Ferðafélags Íslands verður tileinkað háum fjöllum og haldið undir yfirskriftinni: Sjáðu tindinn, þarna fór ég. Myndakvöldið fer fram miðvikudagskvöldið 18. nóvember n.k. og verður að vanda haldið í sal Ferðafélagsins í Mörkinni 6 og hefst kl. 20.00. Í hléi eru kaffiveitingar með bakkelsi samkvæmt hefð.
Fyrrihluti myndasýningarinnar er í umsjá Guðmundar Jónssonar sem stundum er kallaður Gummi stóri. Guðmundur er í hópi reyndra fjallamanna þrátt fyrir ungan aldur og hefur getið sér gott orð sem fararstjóri fyrir Ferðafélagið í göngum á há fjöll. Guðmundur sýnir myndir úr ferðum á Hrútfjallstinda og Þverártindsegg og einhver fleiri fjöll sem freista brattgengra.
Seinni hluti sýningarinnar er í umsjá Haraldar Arnar Ólafssonar sem sýnir myndir úr göngum á Hvannadalshnúk eftir ýmsum leiðum og fleiri tinda í öskju Öræfajökuls. Haraldur er reyndasti fjallamaður Íslands fyrr og síðar og stjórnar göngum á Hvannadalshnúk á hverju vori fyrir Ferðafélag Íslands.

10.11.2009

Valgarður Egilsson heiðraður

10. nóv, var haldið sérstakt málþing til heiðurs Valgarði Egilssyni prófessor. Málþingið er á vegum Rannsóknarstofu Háskólans í meinafræði og þar verða haldin erindi um krabbameinsrannsóknir og frumulíffræði en á því sviði hefur starfsvettvangur Valgarðs verið um langan aldur.

Valgarður
Þótt ótrúlegt megi virðast er sjötugsafmæli Valgarðs skammt undan. Á vettvangi Ferðafélags Íslands er Valgarður þekktur fyrir þindarleysi á göngu, magnaða og litríka fararstjórn og ötult félagsstarf. Ferðir undir leiðsögn Valgarðs um nyrstu byggðir milli Eyjafjarðar og Skjálfanda, Hvanndali og Héðinsfjörð eru þjóðsagnakennd ævintýri sem færri komast í en vilja.
Ferðafélag Íslands árnar Valgarði allra heilla og treystir á liðsinni hans og krafta í framtíðinni.

8.11.2009

Fjölmennt á Heiðarhorni

25 manna hópur á vegum Ferðafélags Íslands gekk á Heiðarhorn á Skarðsheiði laugardaginn 7. nóvember. Ákvörðun um þessa ferð var tekin í skyndingu tveim dögum áður þegar veðurspá leit sérlega vel út. Þeir sem gripu tækifærið urðu ekki fyrir vonbrigðum því veður var stillt, kalt og heiðskírt  en vægur norðan andvari á efsta tindi.
Útsýni af Heiðarhorni er geysilega gott og sér vítt yfir fjöll við Faxaflóa, Borgarfjörð, Snæfellsnes og inn til jökla.
Sjá nánar í myndasafni FÍ.

5.11.2009

Gengið á Skarðsheiði á laugardag

N.k. laugardag 7. nóvember efnir Ferðafélag Íslands til fjallgöngu á Skarðsheiði, nánar tiltekið er stefnan tekin á Heiðarhorn sem er hæsti tindurinn á Skarðsheiðinni.
Spáð er hægri norðanátt á laugardag og því góðar líkur á óviðjafnanlegu útsýni af Heiðarhorninu. Gengið verður á fjallið upp með Skarðsá en farið niður af fjallinu aðra leið og gengið um svokallaða Skessubrunna. Heiðarhornið er 1055 metra hátt og gönguleiðin er um 10 km. löng.
Farið verður með rútu frá Mörkinni 6 að uppgöngustað og er brottför kl. 10.00 á laugardagsmorgun. Fararstjórar eru: Páll Ásgeir Ásgeirsson og Rósa Sigrún Jónsdóttir.
Verð kr. 2000 fyrir félagsmenn en 4000 kr. f aðra.

4.11.2009

Gjald innheimt á ferðamannastöðum?

Unnur Halldórsdóttir, nýkjörinn formaður Ferðamálasamtaka Íslands sagði í fréttum Ríkisútvarpsins að gjaldtaka af gestum á vinsælum ferðamannastöðum væri óhjákvæmileg innan fárra ára. Hægt er að hlusta á viðtalið við Unni hér.
Unnur taldi í sama viðtali líklegt að fjöldi erlendra ferðamanna á Íslandi næði einni milljón árlega innan skamms tíma. Hún taldi rétt að hefja opinskáa umræðu um það hvernig gjaldtöku af þessu tagi yrði best háttað til þess að sem best sátt næðist um málið innan ferðaþjónustunnar.

3.11.2009

Sunnudagsskýrsla gangenda

Sunnudaginn 1. nóvember mættu átta gangendur (sem eiga ekkert skylt við fuglategundina endur) á Vegginn við Mörkina 6. Eftir stutt ráðslag var ákveðið að halda upp í mynni Þrengslanna og ganga þaðan á Lambafell.
Bílum var lagt við einhverjar malargryfjur og haldið á brattann. Eftir eðlilegan klifurtíma var tindi náð og útsýni notið til allra átta. En síðan stefnt til suðurs eftir fellinu endilöngu. Á þeirri leið var fyrra kaffið drukkið og ekki völ á öðru en gera það í sól og blíðu.
Eftir smástopp á suðurenda fellsins sturtuðum við okkur niður brattar skriður og gengum síðan til norðurs með fellinu og að bílunum. Hluti hópsins gekk hélt síðan að Litla-Reykjafelli og gekk á það eins og ekkert væri. Í hlíðum þess var seinna kaffið drukkið og útsýnis notið til vesturs.
Gangan á Lambafell og umhverfi var um 9 km. löng og tók 3 klst. og 45 mín. Hér má sjá myndir.


PÓSTLISTASKRÁNING

Með reglulegu millibili sendir skrifstofa FÍ út yfirlit yfir félagsstarf, ferðir og annað það sem spennandi kann að vera fyrir áhugfólk um ferðalög og náttúru.
Eitt fjall á vikuFerðafélag barnannaSkráðu þig í FerðafélagiðLaugavegurinnSkálar - yfirlitskortFerðaáætlun 2010Safnaðu fjöllum með FÍ

Slóðin mín:

Forsíða » Fréttasíða

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Information in other languages

  • Information in English
  • Informationen auf Deutsch

Mynd