Fréttir
28.12.2009
Ferđaáćtlun FÍ 2010 í lokavinnslu
28.12.2009
Skrifstofa lokuđ milli jóla og nýárs
Skrifstofa Ferðafélags Íslands er lokuð milli jóla og nýárs. Sérstakur vaktsími skála FÍ er 845 1214. Jólakveðja
23.12.2009
Vaktsími skála
23.12.2009
Skrifstofan lokuđ á ađfangadag
22.12.2009
Smákökuganga á sólstöđum
Tæplega 20 manns tóku þátt í sérstakri sólstöðugöngu Ferðafélags Íslands sem farin var sunnudaginn 20.des. Gengið var á Kerhólakamb á Esju og farið upp frá Esjubergi. Þetta er gamalkunnug leið sem naut mikilla vinsælda á árum áður. Seinna var lagður göngustígur frá Mógilsá að Þverfellshorni og þá lögðust göngur á Kerhólakamb af. Þátttakendur höfðu meðferðis sýnishorn af jólabakstri og skiptust á smákökum þegar upp á fjallið var komið. Leiðin upp á Kerhólakamb er jafna brattari en sú á Þverfellshornið en útsýni af kambinum er að mörgu leyti víðara og betra þar sérstaklega til vesturs.
Ţað var tindahöfðinginn Þórhallur Ólafsson sem leiddi gönguna fyrir Ferðafélagið og þrátt fyrir norðanstreng efst á fjallinu var veður gott og göngumenn sælir með afrek sitt á sólstöðum vetrar.
Sólstaðnir göngumenn á Kerhólakambi á sunnudaginn.
22.12.2009
Göngugleđi 13. desember - ferđasaga
14.12.2009
Ferđaáćtlun FÍ 2010 - gjafakort í ferđir
14.12.2009
Vetrarsólstöđuganga FÍ / jólasmákökuganga
14.12.2009
Göngugleđi - ferđasaga 6. desember
8.12.2009
Ferđafélag barnanna býđur til leiksýningar
8.12.2009
Fréttapóstur 8. des
7.12.2009
Hádegisgöngur halda áfram
Hádegisgöngur Ferðafélags Íslands hófust í síðustu viku. Þeim verður fram haldið og er gengið kl. 12.00 á þriðjudögum frá Árbæjarlaug og Elliðaárdal og nágrenni og kl. 14.00 á fimmtudögum frá Nauthólsvík eftir ýmsum leiðum við sjóinn.
Ferðafélagið annast leiðsögn og fararstjórn en göngurnar eru sniðnar við allra hæfi og ætlað að hvetja fólk til holllrar og reglulegrar útiveru í félagsskap fólks með áþekk áhugamál. Öll ferðalög stór og smá hefjast á einu skrefi og kannski reynist þátttakan hádegisgöngum FÍ upphafið að stærri afrekum á sviði útivistar og gönguferða.
1.12.2009
Mjór er mikils vísir
Ţetta eru þátttakendur í fyrstu hádegisgöngu Ferðafélags Íslands sem gengin var 1. desember frá Árbæjarlaug. Genginn var hringur um Elliðaárdal í logni og nokkru frosti. Eins og sést á myndinni voru þátttakendur ekki ýkja margir en mjór er mikils vísir og við þetta tækifæri var rifjað upp að í fyrstu morgungöngu Ferðafélagsins fyrir fjórum árum voru fimm þátttakendur. Í vor tók nokkur hundruð þátt í morgungöngum.
Næsta ganga hefst í Nauthólsvík á fimmtudag kl. 14.00 og Ferðafélagið vonast til þess að sjá eins marga og vettlingi geta valdið.
Nýjar auglýsingar
Leit
Mynd























