Fréttir
23.2.2009
Æfing í Esju - 5. mars
Ferðafélag Íslands stendur fyrir kvöldgöngum á Esjuna ,,Æfing í Esju” á fimmtudögum. Lagt er af stað frá bílastæðinu við Mógilsá kl. 18. Gert er ráð fyrir að ganga taki 2 – 3 klst. Mikilvægt er að hafa góðan búnað, þe góða gönguskó, hlífðarfatnað, húfu og vettlinga og nú á þessum árstíma að hafa með sér höfuðljós.
Fararstjóri í fyrstu ferðinni fimmtudaginn 5. mars verður Ólafur Örn Haraldsson forseti FÍ.
Þátttaka er ókeypis, allir velkomnir.
23.2.2009
Skiptimarkaður á heimasíðu FÍ
Nú hefur verið opnaður skiptimarkaður á heimasíðu FÍ á notuðum útivistarbúnaði. Markmið skiptimarkaðar á vef Ferðafélags Íslands er að skapa vettvang viðskipta með notaðan útivistarbúnað. Þannig gefst fleirum kostur á að stunda útiveru og fjallamennsku án þess miklu þurfi að kosta til.
15.2.2009
Fjallakvöld 19. febrúar
Næsta Fjallakvöld FÍ er fimmtudaginn 19. febrúar. Á Fjallakvöldum er tilvalið tækifæri til að hittast og spjalla um ferðir og búnað, bækur og skiptast á upplýsingum. Sérfræðingar, bæði fararstjórar og búnaðarfíklar mæta og miðla af reynslu sinni. Þátttaka á Fjallakvöld FÍ er ókeypis og er boðið upp á fjallakakó.
15.2.2009
Laugavegurinn í máli og myndum - næsta myndakvöld
Næsta myndakvöld FÍ er miðvikudaginn 18. febrúar. Þá verður fjallað um Laugaveginn, vinsælustu
gönguleið landsins. Farið verður yfir gönguleiðina, náttúru, jarðfræði og sögu, örnefni, útúrdúra, skála, aðstöðu og þjónustu og ekki síst verður sungið slegið upp dæmigerðri stemmingu á kvöldvökum í Laugavegsferðum.
12.2.2009
Skiptimarkaður FÍ - skíðabúnaður óskst/til sölu - sjá auglýsingar
Skiptimarkaður FÍ - skíðabúnaður til sölu / óskast keyptur,
Skiptimarkaðskerfi FÍ opnar á heimasíðunni á morgun föstudag. Þá setja kaupendur/seljendur sjálfir inn auglýsingu á vefinn. Sjá auglýsingar, sjá nánar.
Til sölu Fischer telemark gönguskíði 200 cm , Laki gönguskíðastafir og leðurgönguskíðaskór nr 41 einnig eru með gormar til að festa á bindingarnar.Mjög lítið notað og í fínu lagiVil fá tilboð í allann pakkann, þar sem ég get lítið svarað í símann á daginn er best að senda mér tölvupóst í netfangið thelmus76@gmail.com
TAKK TAKK Thelma
9.2.2009
Skíðaganga yfir Mosfellsheiði - ferðasaga
Ferðafélag Íslands efndi til skíðagöngu þvert yfir Mosfellsheiði sunnudaginn 8. febrúar. Rúta flutti farþega á Mosfellsheiði og beið þeirra svo við Litlu kaffistofuna í Svínahrauni. Veður var undurfagurt, logn og sólskin nær allan tímann. Snjór reyndist nægur að mestu þótt litlu mætti muna á svæði rétt norðan við Litlu kaffistofuna.
9.2.2009
Hvannadalshnúkur - æfingaprógram
Ferðafélagið stendur fyrir ferð á Hvannadalshnúk um Hvítasunnuna. Ferðir FÍ á Hvannadalshnúk á þessum tíma hafa notið mikilla vinsælda og hafa þátttakendur verið um og yfir 100. Mikilvægt er að undirbúa sig vel fyrir göngu á Hnúkinn því hér er um að ræða eina lengstu samfelldu göngu á einum degi sem boðið er upp á og getur gangan tekið allt að 14 - 16 klst.
9.2.2009
Göngugleði Fí á sunnudögum
Alla sunnudaga í vetur er farið í gönguferð í nágrenni Reykjavíkur. Lagt er af stað frá Mörkinni 6 kl.
10.30 og er þá safnast í bíla og ekið að upphafsstað göngu. Gönguferðin er yfirleitt 3 - 5 klst og gott að taka með sér nesti og heitt á brúsa...
6.2.2009
Skiptimarkaður FÍ - til sölu/óskast keypt
Skiptimarkaður FÍ opnar hér á heimasíðunni á næstu dögum. Um verður að ræða kerfi þar sem kaupendur/seljendur á notuðum skíðabúnaði skrá sjálfir inn auglýsingu og gefa upp nafn og síma og síðan munu viðskptin eiga sér stað milliliaðalaust. Vegna fjölda fyrirspurna eru þó hér birtar auglýsingar sem þegar hafa borist.
5.2.2009
Skíðaferð yfir Mosfellsheiði.
Ferðafélag Íslands efnir til gönguskíðaferðar þvert yfir Mosfellsheiði á sunnudag. Brottför úr Mörkinni 6 kl. 1030 á sunnudagsmorgun 8. febrúar. Þaðan flytur rúta skíðamenn upp á Mosfellsheiði en þaðan verður gengið til suðurs þvert yfir heiðina og endað við Litlu kaffistofuna í Svínahrauni. Þar bíður rútan og flytur hópinn til baka aftur. Vegalengd 16 km og gangan tekur líklega fjóra tíma.
Hafið með ykkur kakó á brúsa og nesti og góða ferðaskapið. Hentar öllum sem vanir eru að ganga á skíðum. Í lengra lagi fyrir byrjendur.
4.2.2009
Skiptimarkaður - notaðar skíðavörur
Ferðafélag Íslands stendur nú fyrir skiptimarkaði á notuðum skíðavörum þar sem hægt er að skipta, kaupa og selja notaðar skíðavörur. Sikiptmarkaðurinn fær sérstakt svæði á heimasíðu FÍ sem opnar á næstu dögum. Fram að því þarf að senda inn tölvupóst á fi@fi.is þar sem skiðabúanður er kynntur til sölu eða óskað er eftir kaupum á búnaði. Gefið er upp nafn og símanúmer og síðan munu skiptin eiga sér stað milliliðalaust.
2.2.2009
Námskeið um skíðagöngu nk. fimmtudagskvöld
FÍ og Skíðagöngufélagið Ullur standa fyrir gönguskíðanámskeiði fimmtudaginn 5. febrúar kl. 20. Á námskeiðinu verður farið yfir það helsta er varðar búnað, fatnað, áburð, skíðasvæði ofl. Kærkomið tækifæri til að læra það helsta um gönguskíði, búnað, tækni og fleira. Á kvöldinu verður jafnframt boðið upp á skiptimarkað á búnaði, sem og sölu á notuðum skíðabúanaði á góðu verði. Þátttaka á námskeiðið er ókeypis, allir velkomnir.
1.2.2009
Fjölbreytt námskeið hjá FÍ í vetur
Ferðafélagið býður upp á fjölbreytt námskeið í vetur er tengjast fjallamennsku, útiveru og
ferðamennsku og má þar nefna meðal annars: gps, jöklaöryggisnámskeið, vaðnámskeið, fjallamennsku 1, snjóflóðafræðslu og skyndihjálparnámskeiði. Nánar um námskeið undir ferðadagskrá hér á heimasíðunni.
1.2.2009
Skiptimarkaður FÍ á notuðum skíðabúnaði
Ferðafélagið stendur nú fyrir skiptimarkaði á notuðum skíðabúnaði. Þar er hægt að selja notaðan skíðabúnað á góðu verði. Búnaðurinn er auglýstur á heimasíðu FÍ. Þeir sem vilja nýta sér þetta tækifæri senda inn lýsingu á fi@fi.is á því sem þeir ætla að selja og gefa upp nafn og símanúmer og síðan munu viðskiptin eiga sér stað milliliðalaust. Á gönguskíðanámskeiði FÍ nk. fimmtudagskvöld er tilvalið að mæta með notaðan skíðabúanað og selja en á fimmtudaginn verður skiptimarkaðurinn opnaður á heimasíðu FÍ.
Nýjar auglýsingar
Leit
Mynd























