Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu

Fréttir

Fréttir FÍ - RSS

27.3.2009

Páskaferð um Snæfellsnes

Brottför kl.8  frá Mörkinni 6 og ekið vestur að Hofi í Staðarsveit þar sem gist verður í fólk labba litilsvefnpopkaplássi, 8 saman í íbúð, 2 saman í hverju rými. Farið verður í styttri og lengri gönguferðir um hið magnaða svæði “Undir Jökli” og ennfremur stefnt að göngu á Snæfellsjökul.
 

26.3.2009

Páskaferðir

Enn er laust í páskaferðirnar okkar.

  • Páskaferð á Snæfellsnes 9-11.apríl
  • Hornstrandir um páska 9-13.apríl

24.3.2009

Fjallaskíðanámskeið

Fjallaskíðanámskeið
26.mars bóklegt, 28-29.mars verklegt.

Grunnnámskeið í fjallaskíðamennsku

Tilgangur þessa námskeiðs er að kynna fyrir þátttakendum þá ótrúlegu möguleika til útivistar og ferðalaga að vetri til sem opnast með fjallaskíða og Telemark útbúnaði og kunnáttu. Námskeiðið er eitt kvöld þar sem að farið er yfir búnað og aðferðafræði ásamt því að undirbúa þátttakendur fyrir verklega þáttinn sem fer fram á tveimur dögum. Í lok þessa námskeiðs eiga þátttakendur að búa yfir grunnþekkingu á fjallaskíðamennsku og geta tekið þátt í almennum fjallaskíðaferðum með sér vanara fólki.

20.3.2009

Aukaferð á Hvannadalshnúk 6. júní

Fullbókað er í ferð FÍ á Hvannadalshnúk um Hvítasunnuhelgina.  Nú hefur verið sett upp aukaferð 6. júní og er fyrirkomulag, undirbúningur og skipulag allt hið sama.  Undirbúningsfundur fyrir ferðina er 27. maí.  Bent er á undirbúning og æfingagöngur fyrir ferðina undir lýsingu á ferðinni hér á heimasíðunni.

20.3.2009

Stofnfundur Ferðafélagsdeildar á Þórshöfn.

Til stendur að stofna ferðafélagsdeild fyrir Langanes, Bakkaflóa og Þistilfjörð.  Stofn- og kynningarfundur deildarinnar verður haldinn í Hafliðabúð á Þórshöfn, þriðjudagskvöldið 24. mars kl. 20:00-21:00. Ólafur Örn Haraldsson forseti FÍ og Páll Guðmundsson framkvæmdastjóri FÍ verða gestir á fundinum og kynna starfsemi félagsins.

20.3.2009

Fyrirlestur hjá Nafnfræðifélaginu - örnefni á Þingvöllum

Einar Á.E. Sæmundsen fræðslufulltrúi þjóðgarðsins á Þingvöllum heldur fyrirlestur laugardaginn 21. mars í stofu 130 í Öskju, húsi Háskóla Íslands, kl. 13.15.

19.3.2009

Fjallabók FÍ - safnaðu fjöllum með Ferðafélaginu

Fjallabók FÍ er verkefni sem nú er að hefjast hjá Ferðafélaginu.  Í verkefninu eru allir hvattir til að ganga á fjöll og skrá í sérstaka Fjallabók FÍ.  Þegar þú hefur gengið á 10 fjöll og fyllt út í bókina og með undirskrift ferðafélaga þá fá þátttakendur viðurkenningu frá Cintamani í árslok.  Öll fjöll eru gild í verkefnið en aðeins má skrá hvert fjall einu sínni

15.3.2009

Fullbókað á Hvannadalshnúk - aukaferð 6. júní

Fullbókað er nú í hina sívinsælu ferð FÍ á Hvannadalshnúk um Hvítasunnuhelgina.  Haraldur Örn Hvanndals 07Ólafsson er fararstjóri í ferðinni ásamt vöskum hópi línustjóra, þe aðstoðarfararstjóra. Þegar eru um 100 manns skráðir í ferðina og fjöldi á biðlista. Nú hefur verið upp aukaferð á Hvannadalshnúk 6. júní.  Hámarskfjöldi í þá ferð eru 80 manns.

15.3.2009

Aðalfundur FÍ 18. mars

Aðalfundur Ferðafélags Íslands verður haldinn miðvikudaginn 18. mars kl. 20 í sal félagsins Mörkinni 6.  Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf.
Stjórnin.

15.3.2009

Jöklaöryggisnámskeið fyrir fararstjóra FÍ - og félagsmenn

Tilgangur þessa námskeiðs er að efla kunnáttu og vitund farastjóra FÍ á sviði öryggismála og fagmennsku í fararstjórn í jöklaferðum, t.d fyrir farastjórn á Hvannadalshnjúk. Í lok þessa námskeiðs eiga þátttakendur að hafa lært stöðluð vinnubrögð sem gera þeim kleift að bregðast við óvæntum aðstæðum af öryggi og staðfestu. Þetta námskeið er mikilvægur þáttur í viðleitni FÍ til að tryggja þátttakendum í ferðum sínum bestu mögulegu þjónustu og öryggi. Þekking og kunnátta fararstjóra er lykillinn að vel heppnaðri Ferðafélagsferð. Leiðbeinandi er UIAGM-IFMGA fjallaleiðsögumaðurinn Jökull Bergmann

15.3.2009

Verklegi hluti vaðnámskeiðs um næstu helgi

Verklegi hluti vaðnámskeiðs sem vera átti átti 7. -8. mars en var frestað vegna aðstæðna verður haldið um næstu helgi, 21. - 22. mars.

13.3.2009

Ferðafélag Árnesinga stofnað á Selfossi í gær

Ný deild í Ferðafélagi Íslands, Ferðafélag Árnesinga, var stofnuð á Selfossi í gær.  Stjórn félagsins var kjörin á fundinum og var Jón B. Bergsson kjörinn formaður.  Ólafur Örn Haraldsson forseti FÍ og Páll Guðmundsson framkvæmdastjóri voru gestir á fundinum og greindu frá starfsemi Ferðafélags Íslands

12.3.2009

Esjan alla daga - fimmta gangan í dag

Í kvöld fimmtudag kl. 18.00 verður fimmta gangan á Esjuna, ,,Esjan alla daga 8. - 12. mars" og því FÍ Esjan alla daga by Ferdafelag Islands.tilfalið fyrir alla að skella sér á Esjunni eftir vinnu og klappa fyrir þeim sem eru búnir að ganga á Esjuna fimm daga í röð. Einnig verður gengið á Esjuna á morgun föstudag, en sett var upp aukaferð vegna fjölda fyrirspurna þannig að fleirri gætu náð fimm göngudögum í röð á Esjuna.  Þeir þátttakendur sem tekið hafa þátt í öllum fimm gönguferðunum fá í dag glæsileg verðlaun frá Ferðafélagi Íslands.  Sjá myndir

12.3.2009

Ungmennastarf FÍ - Fjallaskóli FÍ og ,,allir út." Skúli Björnsson ráðinn verkefnisstjóri.

Skúli Björnsson hjá Sportís/Cintamani hefur verið ráðinn verkefnisstjóri hjá Ferðafélagi Íslands.  Skúli mun hafa umsjón með ungmennaverkefni FÍ sem fengið hefur vinnuheitið ,,allir út“. 

12.3.2009

Fréttapóstur FÍ 11. mars.

Fréttapóstur frá FÍ 11. mars.  Fréttapóstur er sendur út á póstlista 1 - 2svar i viku.  Hægt er að skrá Göngugleði skíði 500sig á póstlistann hér á heimasíðunni og fá þá reglulega fréttir af starfi FÍ, ferðum, félagslífi og fl.

11.3.2009

Aðalfundur FÍ 18. mars

Aðalfundur Ferðafélags Íslands verður haldinn miðvikudaginn 18. mars kl. 20 í sal félagsins Mörkinni 6.  Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf.
Stjórnin.

10.3.2009

GPS staðsetningartæki og rötun - námskeið

Almennt námskeið fyrir byrjendur og þá sem vilja upprifjun í notkun á staðsetningartækjum. Farið er yfir notkun á staðsetningartækjum og þátttakendur æfa sig í að finna punkta og setja inn í tækin og merkja út á korti. Þátttakendur hafa með sér eigin GPS tæki. Námskeiðið er tvö kvöld inni og svo ein útiæfing.

10.3.2009

Fullbókað í fjölmargar ferðir sumarsins - örfá sæti laus í nokkrar.

Ljóst er að landsmenn verða á faraldsfæti innanlands í sumar.  Fullbókað er nú í fjölmargar sumarleyfisferðir FÍ.  Má þar nefna flestallar Hornstrandaferðir félagsins, sem og ferðir bæði um vesturland og norðurland.  Laugavegurinn og Fimmvörðuháls njóta vinsælda.  Þá er nú orðið fullbókað í ferðir FÍ á Hvannadalshnúk með Haraldi Erni Ólafssyni en um Hvítasunnuhelgiina fara 100 göngugarpar með FÍ á hæsta tind landsins.

10.3.2009

Esjan alla daga - góð þátttaka - myndir

Góð þátttaka er í Esjunni alla daga, 5 daga Esjuátaki FÍ sem nú stendur yfir.  Tæplega 30 manns tóku

Esjan alla daga 8. - 13. mars by Ferdafelag Islands.þátt í gönguferðinni í gær á Esjuna í ágætisveðri.  Gengið verður á Esjuna alla daga vikunnar, og hljóta þeir sem taka þátt í öllum gönguferðunum glæsileg verðlaun frá FÍ. 
Sjá myndir úr gönguferð gærdagsins. 

9.3.2009

Ferðafélagið gefur út tímarit - leit að nafni

Ferðafélag Íslands hefur ákveðið að hefja útgáfu tímarits sem dreift verður til allra félagsmanna þeim að kostnaðarlausu. Í tímaritinu sem ætlað er að komi út tvisvar sinnum á ári nánar tiltekið vor og haust verður fjallað um margvíslegt efni sem tengist Ferðafélagi Íslands, starfi þess og viðfangsefnum  sem og ýmsu öðru fróðlegu er tengist útiveru, fjallamennsku og ferðamennsku.

9.3.2009

Esjan alla daga - 8. - 12. mars

Ferðafélagið stendur fyrir gönguferðum á Esjuna, ,,Esjan alla daga - 8. - 12.mars. "  Þá verður gengið á Esjuna 5 daga í röð. Lagt er af stað kl. 18.  Fararstjóri í ferðunum er Þórður Marelsson. Þátttaka er ókeypis fyrir félagsmenn FÍ en annars kostar kr. 1000 í hverja göngu.  Þeir sem taka þátt í öllum fimm göngunum fá glæsileg verðlaun frá Ferðafélaginu,  árbók FÍ að eigin vali að verðmæti kr. 5000 og dagsferð með FÍ í júní, júlí eða ágúst.

3.3.2009

EJS með gjöf til Skagfjörðsskála í Langadal

EJS hefur fært Ferðafélagi Íslands öryggisgjallarhorn til notkunar í skála félagsins í Langadal í Þórsmörk.  Gjallarhorn þetta er með sérstaktri öryggissírenu og hentar vel til að ná til ferðamanna úr langri fjarlægð ef á þarf að halda.   Ísar Guðni Arnarson starfsmaður EJS færði framkvæmdastjóra FÍ gjöfina á skrifstofu FÍ á dögunum með þeim óskum að tækið myndi reynast vel í Þórsmörk,  í fjölbreyttu starfi skálavarða þar, sem daglega sinna margvíslegum öryggis- og björgunarstöfum.  Ferðafélag Íslands sendir EJS bestu þakkir fyrir gjöfina.


PÓSTLISTASKRÁNING

Með reglulegu millibili sendir skrifstofa FÍ út yfirlit yfir félagsstarf, ferðir og annað það sem spennandi kann að vera fyrir áhugfólk um ferðalög og náttúru.
Eitt fjall á vikuFerðafélag barnannaSkráðu þig í FerðafélagiðLaugavegurinnSkálar - yfirlitskortFerðaáætlun 2010Safnaðu fjöllum með FÍ

Slóðin mín:

Forsíða » Fréttasíða

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Information in other languages

  • Information in English
  • Informationen auf Deutsch

Mynd