Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu

Fréttir

Fréttir FÍ - RSS

30.4.2009

Sæludagar í Hlöðvík - laus sæti

Fullbókað er nú í flestar Hornstrandaferðir Ferðafélags Íslands. Enn er þó laust plláss í tvær ferðir og er önnur þeirra Sæludagar í Hlöðuvík með Guðmundi Hallvarðssyni umsjónarmanni Hornstrandaferða FÍ og leiðtoga Hornstrandafara.

30.4.2009

Morgungöngur FÍ hefjast 4. maí.

Mánudaginn 4. maí hefjast árlegar morgungöngur Ferðafélags Íslands. Að vanda vakna þátttakendur við fyrsta hanagal og safnast saman í Mörkinni við húsakynni FÍ klukkan sex stundvíslega á hverjum morgni. Þaðan aka menn saman og deila ef til vill bílum að upphafsstað göngu. Einnig er hægt að mæta við upphafsstað göngu hvern dag ef það hentar þátttakendum betur. Alla daga er lagt af stað úr Mörkinni klukkan sex.

27.4.2009

Næsta örganga 29. apríl

Næsta örganga um nágrenni Grafarholts verður miðvikudaginn 29. apríl. Gengið verður frá hitaveitugeymunum eftir göngustígnum sunnan byggðarinnar að Sæmundarskóla - með Reynisvatni norðanverðu - um austurhlíðar Reynisvatnsássins - yfir ásinn niður að Reynisvatni austanverðu.  Þeir sem stytta vilja gönguna geta bæst í hópinn við Sæmundarskóla u.þ.b. kl 19:20.   Skólinn er sem næst á horni Gvendargeisla og Biskupsgötu - austast í byggðinni.

25.4.2009

Fullbókað í sögugöngu, ástir og afbrýði, kænska og karlmennska

Fullbókað er í fyrstu sumarleyfisferð FÍ , sögugöngu um Vesturland þar sem ástir og afbrýðisemi,Sigrún kænska og karlmennska koma mikið við sögu. Sigrún Valbergsdóttir er fararstjóri í ferðinni og Magnús Jónsson leiðsögumaður.  Tæplega 40 manns eru skráðir í ferðina og fjölmargir á biðlista.  Sigrún fararstjóri var afar ánægð með undirtektirnar. ,,,Þetta er mjög skemmtilegt viðfangsefni og þegar við göngum um þessar söguslóðir lifnar leiksviðið allt við með lýsingum Magnúsar," segir leikstjórinn Sigrún.  Þegar er fullbókað í fjölmargar sumarleyfisferðir FÍ og skráning í ferðir aldrei verið meiri.

25.4.2009

Ganga um Gálgahraun á Álftanesi 25. apríl kl 14

Ágætu félagar í  Ferðafélagi Íslands.  Laugardaginn 25. apríl n.k. kl. 14  verður gengið í um óspillt Gálgahraun á Álftanesi. 

24.4.2009

Ferð á Krísuvíkurberg með Reykjanesfólkvangi aflýst

Ferrð FÍ á Krýsuvíkurberg, sunnudaginn 26. apríl í samstarfi við Reykjanesfólkvang hefur verið aflýst en svo virðist sem flestir ætli að vaka á kosninganótt og skráning í ferðina ekki nægjanleg.

24.4.2009

Vinnuferð í Þórsmörk 1. - 3. maí

Ferðafélagið óskar eftir 12 sjálfboðaliðum úr röðum félagsmanna í vinnuferð í Langadal í Þórsmörk Þórsmörk1. - 3. mai.  Á meðal verkefna er að gangsetja skálann fyrir sumarið, þrífa, mála, sllipa, lakka, viðra, bera borð, setja upp flaggstöngina og fleira. Vinnustjóri í ferðinni er Broddi Kristjánsson skálavörður.  Ferðafélagið sér um uppihald og ferðakostnað í ferðinni en fær í staðinn vinnu sjálfboðaliða í ca 8 tíma á dag. Áhugasamir sendi tölvupóst á fi@fi.is eða hafi samband við Ingunni á skrifstofu FÍ.

23.4.2009

Gleðilegt sumar

Ferðafélag Íslands óskar félagsmönnum sínum og landsmönnum öllum gleðilegs sumars. Nú vaknar  sumarið og sólin brosir til okkar af meiri birtu og hljýju á hverjum degi.  Gróðurinn lifnar og snjóa leysir í fjöllum og ferðafélagar streyma út í guðs græna náttúruna.  Á dagskrá Ferðafélags Íslands er að finna fjölmargar ferðir þar sem allir eiga að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Þegar sumarið heilsar og kallar til okkar með undirspili náttúrunnar er ekki hægt annað en svara kallinu, skrá sig inn og drífa sig út.

23.4.2009

Esjan alla daga - fimm daga í röð - 20. -24. apríl. Esjuganga í dag 23. apríl

Esjan alla daga, fimm daga í röð hefst mánudaginn 20. apríl.  Þá verður gengið á Þverfellshorn 5 daga í röð.  Lagt er af stað frá bílastæðinu kl 18.  Þátttaka er ókeypis, allir velkomnir. 

22.4.2009

Örgöngur í Grafarholti

Lauf4Miðvikudagana 22. apríl, 29. apríl, 6.maí,13. maí og 20.maí verða farnar gönguferðir um nágrenni Grafarholts.  Þetta verða stuttar ferðir sem taka  eina og hálfa til tvær klukkustundir.  Í áætlun Ferðafélagsins kallast þær örgöngur.   Í fyrstu göngunni verður gengið frá hitaveitugeymunum á Holtsskyggni - eftir stíg yfir golfvöllinn - upp á Hádegisholt - um Lyngdalsklauf  - um Skálina - niður brekkuna með Nesjavallaleiðslunni.   Þátttaka er ókeypis, allir velkomnir.

22.4.2009

Trúss í ferðum komið úr böndunum

Trússferðir hafa notið vaxandi vinsældum undanfarin ár.  Í þessum ferðum er farangur og vistir fluttur pegloná milli staða en göngufólk gengur aðeins með léttan dagpoka með nesti og hlífðarfatnaði. Vinsældir trússferða eru eðlilegar. Þær gefa fleirum kost á að ferðast um svæði með þægilegum hætti og njóta útivistar og náttúru.   Þrátt fyrir að trússferðir séu allra góðra gjalda verðar má segja að þær hafi smám saman farið úr böndunum hjá ferðahópum  hér á landi.

18.4.2009

Örgöngur FI í Grafarholti

Miðvikudagana 22. apríl, 29. apríl, 6.maí,13. maí og 20.maí verða farnar gönguferðir um nágrenni Grafarholts.  Þetta verða stuttar ferðir sem taka  eina og hálfa til tvær klukkustundir.  Í áætlun Ferðafélagsins kallast þær örgöngur.   Göngurnar hefjast kl 19:00.  Göngustjórnar verða Guðlaug Sveinbjarnardóttir og Höskuldur Jónsson.  Gengið verður í öllum veðrum.  Gönguleiðir liggja að mestu leyti um malarstíga en að nokkru um óraskað land.  Hafið góða skó.   Fylgist með fréttum á vef Ferðafélags Íslands.  Vera má að röð ferða breytist vegna veðurs.

16.4.2009

Ferðafagnaður á Helgafell

Á ferðafagnaði á laugardaginn bjóðum við upp á gönguferð á Helgafell, lagt af stað á einkabílum kl. 10 frá Mörkinni, lagt af stað í gönguferðina kl. 10.30 frá Kaldárseli.
Fararstjóri frá FÍ, þátttaka ókeypis, allir velkomnir.

15.4.2009

Esjuganga á fimmtudag 16. apríl

Boðið er upp á Esjugöngu með fararstjóra fimmtudaginn 16. apríl kl. 18. Lagt er af stað frá bílastæðinu við Mógilsá.  Fararstjóri er hinn síungi Þórður Marelsson og sér hann um upphitnun og teygjur við hæfi.  Þátttaka er ókeypis og allir velkomnir.

15.4.2009

Styttist í morgungöngur FÍ

Nú styttist óðum í að morgungöngur FÍ hefjist en þá verður gengið á fjöll í nágrenni Reykjavíkur við fyrsta hanagal, eða klukkan sex að morgni.  Morgungöngur FÍ eru nú sjötta árið í röð og hafa notið mikilla vinsælda árrisulla göngumanna.  Alls mættu fimm í fyrstu gönguna 2004 en nú hafa um 300 manns tekið þátt í gönguvikunni, en gengið er á fjöll 5 daga í róð fyrstu vikuna í maí.

15.4.2009

150 manns á myndakvöldi FÍ

Góð mæting var á myndakvöld FÍ í kvöld þegar um 150 manns mættu á myndasýningu um Austurdal í Skagafirði, sem og sýningu frá fjallgöngum Þórhalls Ólafssonar á 151 tind í fjallabók Ara Trausta og Péturs Þorleifssonar.  Gísli Heimir Konráðsson sýndi myndir úr Austurdal, en Þórhallur ásamt Guðmundi Jónssyni sýndu myndir úr fjallgöngum á tindana 151.

14.4.2009

Myndakvöld miðvikudaginn 15. apríl

Myndakvöld FÍ miðvikudagskvöld 15. apríl um Austurdal í Skagafirði. Sýndar verða myndir og sagt frá dalnum. Kynntar verða gönguferðir um dalinn, bæði dags- og helgarferðir. Austurdalur er afar friðsæll, býr yfir mikilli náttúrufegurð og lætur engan ósnortinn sem um hann fer.  Gísli Rúnar Konráðsson sýnir.  Einnig verða sýndar myndir frá ferðum Þórhalls Ólafssonar á 151 tind.  Guðmundur Jónsson  og Þórhallur sýna myndir og segja frá verkefninu.  Myndakvöldið hefst kl. 20.  Aðgangseyrir kr. 600. Innifalið kaffi og meðlæti. Allir velkomnir.

7.4.2009

Ferðafélagið styrkir Barnaspítala hringsins

Ferðafélagið stóð fyrir góðgerðargöngu á Esjuna sl. fimmtudag.  Alls tóku 59 þátt í göngunni og var þátttökugjald kr. 500.  Alls safnaðist því 29.500 í gönguferðinni og hefur félagið ákveðið að styrkja Barnaspíltala hringsins um þessa upphæð.

7.4.2009

Tungl ganga á Esjuna 9. apríl

FÍ stendur fyrir tungl göngu á Esjuna að kvöldi Skírdags 9. apríl kl. 21.00.  Allir þátttakendur fá gefins páskaegg af bestu gerð og auk þess verður dregið úr hópi þátttakenda og hljóta vinningshafar sérstaka páskagjöf frá Ferðafélaginu.

6.4.2009

Páskaferð á Hornstrandir

Enn eru nokkur sæti laus í páskaferð FÍ á Hesteyri, skíðaferð.  Fararstjórar í ferðinni eru Sigrún Valbergsdóttir og Bragi Hannibalsson.

5.4.2009

Landmannalaugar og Þórsmörk um páskana

Skálar FÍ í Landmannalaugum og Þórsmörk verða opnir um páskana og skálaverðir að störfum í bros-100báðum skálum.  Skálarnir verða því heitir og notalegir og heitt kaffi og kakó á könnunni hjá skálavörðum.  Boðið er upp á gönguferðir í næsta nágrenni skálanna og því tilvalið að skella sér í ferð til fjalla og upplifa íslenska náttúrufegurð eins og hún gerist best.

3.4.2009

Skíðaganga á Pálmasunnudag

Ferðafélagið stendur fyrir gönguskíðaferða á Pálmasunnudag. Ekið til Þingvalla þar sem gerður skíðagangaverður stuttur stans í kirkjunni og  saga hennar rifjuð upp. Þaðan ekið inn að Svartagili þar sem skíðagangan hefst. Gengið verður upp á milli Botnssúlna og Ármannsfells, norður fyrir Hvalfell yfir Hvalvatn, ef aðstæður leyfa, og komið niður hjá Stóra-Botni í Botnsdal.

1.4.2009

Esjan 107 - góðgerðarganga á Esjuna 2. apríl

Esjan 107 - Ferðafélagið stendur fyrir sérstakri gönguferð á Esjuna 2. apríl sem fengið hefur nafnið Á toppi hekluEsjan 107.
Þátttakendur mæta kl. 18.00 og greiða með 5 grásleppum þátttökugjald sem rennur óskert til góðgerðarmála. Allir sem þátt taka fá úthlutað númerum sem þeir geyma og er jafnframt happdrættismiði.  Dregið verður úr þátttökunúmerum strax að lokinni göngu á Esjuna.


PÓSTLISTASKRÁNING

Með reglulegu millibili sendir skrifstofa FÍ út yfirlit yfir félagsstarf, ferðir og annað það sem spennandi kann að vera fyrir áhugfólk um ferðalög og náttúru.
Eitt fjall á vikuFerðafélag barnannaSkráðu þig í FerðafélagiðLaugavegurinnSkálar - yfirlitskortFerðaáætlun 2010Safnaðu fjöllum með FÍ

Slóðin mín:

Forsíða » Fréttasíða

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Information in other languages

  • Information in English
  • Informationen auf Deutsch

Mynd