Fréttir
29.5.2009
Laugavegur fjölskylduferð - ferðasaga
Eftir að hafa rætt um Laugavegsgöngu nokkuð lengi var haldinn fjölskyldufundur á vormánuðum þar
sem lagst var yfir Íslandskort og leiðin kynnt börnunum, en heimilisfaðirinn Þórður var búinn að far leiðin í tvigang og því nokkuð vanur maður. Sjá myndir Fjölskylduferð um Laugaveginn verður farin í lok júlí 2009.
26.5.2009
Nýr ritstjóri tekur við heimasíðu FÍ
Örlygur Steinn Sigurjónsson blaðamaður hefur verið ráðinn ritstjóri á heimasíðu FÍ. Örlygur starfaði lengi sem blaðamaður á Morgunblaðinu og hefur lengi stundað fjallamennsku og ferðalög um Ísland. Örlygur er einnig starfandi fararstjóri hjá Ferðafélaginu og nýkominn af Hrútfjallstindum og Þverártindsegg, auk þess sem hann er í fararstjórahópi FÍ á Hvannadalshnúk.
26.5.2009
Grein um Lónsöræfi eftir Leif Þorsteinsson
Ef fjallasvæðið innan Stafafells í Lónssveit verður lagt undir Vatnajökuls-þjóðgarð er líklegt að til verði gönguleið sem að mínu mati skartar öllum þeim fjölbreytileika sem finna má í Íslenskri náttúru. Þar eru gil og gljúfur, fagrir gróðursælir dalir, litfagrar skriður og háir fossar stundum allt fyrir auganu á samtímis.
25.5.2009
Menningarsjóður VISA styrkir FÍ til starfs fyrir eldri borgara
Stjórn Menningarsjóðs VISA hefur úthlutað 12 styrkjum í ár. Þetta er í þrettánda sinn sem úthlutað er úr sjóðnum en alls hafa 104 styrkir verið veittir frá upphafi, flestir til menningarmála. Stjórn sjóðsins ákvað að í ár skyldi styrkfjárhæðinni varið til menningar-, líknar-og velferðarmála.
Að þessu sinni hlutu eftirtaldir styrk úr sjóðnum: Ferðafélag Íslands hlaut styrk til að hvetja eldri borgara til hreyfingar og útiveru og standa fyrir verkefni því tengdu.
25.5.2009
Ferðafélag Barnanna - undirbúningsstjórn kom saman í dag
Undirbúningsstjórn að Ferðafélagi Barnanna sem verður deild í Ferðafélagi Íslands kom saman á fundi á skrifstofu FÍ í dag. Ferðafélag Barnanna mun starfa á öllu landinu og stofnaðar verða barnadeildir um allt land. Markmið Ferðafélags Barnanna er fyrst og fremst að gefa börnum og unglingum tækifæri til njóta þess að vera í náttúru landsins og hafa gaman.
25.5.2009
Skálavarðanámskeið tókst vel
Skálavarðanámskeið FÍ um helgina tókst vel en um var að ræða þriggja daga námskeið fyrir skálaverði félagsins, bæði bóklegt og verklegt þar sem farið var yfir alla helstu þætti í starfi skálavarðar. Páll Guðmundsson framkvæmdastjóri FÍ segir að námskeiðið hafi verið lærdömsríkt og ekki síst skemmtilegt fyrir skálaverðina að hittast og fara saman yfir verkefni sumarsins.
18.5.2009
Frábært á Þverártindsegg í sögulegri ferð FÍ
Rúmlega 30 manns tóku þátt í ferð Ferðafélags Íslands á Þverártindsegg þann 16 maí. Þetta
tignarlega fjall sem er rúmir 1550 metrar á hæð nýtur vaxandi vinsælda meðal sístækkandi hóps fjallafara. Farin var stutt og brött leið upp úr Eggjardal sem gengur inn úr Kálfafellsdal og þvert yfir skriðjökulinn Skrekk og um bratta hryggi og fannir á tindinn.
Sjá myndir á myndabanka FÍ.
18.5.2009
Vað - námskeiðsferð í Þórsmörk um næstu helgi
Ferðafélag Íslands býður til vað-námskeiðsferðar um Þórsmerkurvötnin með gistingu í
Skagfjörðsskála. Kennt verður að leita vaðs í ám og menn æfa sig í að vaða straumvatn. Sjá myndir úr fyrri vaðnámskeiðm FÍ
18.5.2009
Fyrsta fimmtindagangan - Tröllakirkja
Fyrsta gangan af fimm tinda ferðum FÍ var á laugardag sl. þegar gengið var á Tröllakirkju. Ekið var á
einkabílum að Hítárvatni. Veðurblíða lék við þátttakendur sem voru rúmlega 20 og nutu þeir útýnis eins og það gerist best á tindi Tröllakirkju. Þær fjórar tindaferðir sem nú eru eftir eru: Helgrindur 23. maí, Kirkjufelll 6. júní, Tröllakrikja á Holtavörðuheiði 13. júní og Botnssúlur 22. ágúst. Sjá myndir úr ferðinni á myndabanka FÍ.
17.5.2009
Ölkelduháls og Grændalur 6. júní
Í sumar mun Ferðafélag Íslands og Landvernd standa fyrir tveim gönguferðum um hrauna-, eldfjalla-
og hverasvæði í nágrenni borgarinnar. Ferðirnar verða farnar laugardagana 6. og 13. júní. Áður en lagt verður af stað verður boðið upp á fræðsluerindi um landið sem ferðast verður um. Greint verður frá mótun þess og myndun, áformum um nýtingu og möguleika til verndunar
17.5.2009
120 þátttakendur í barnavagnagöngu FÍ á föstudag
Lokagangan í barnavagnaviku FÍ var á föstudag sl. Þá mættu 120 manns í góðu veðri í
laugardalnum og rúmlega 50 barnavagnar og varð til hin myndarlegasta halarófa af barnavögnum. Auður Kjartansdóttir fararstjóri segir að boðið verði upp á barnavagnagöngur í allt sumar einu sinni í viku og verði þær auglýstar nánar á næstunni á heimasíðu FÍ. Sjá myndir úr gönguferðinni á myndabanka FÍ.
12.5.2009
Örganga miðvikudaginn 13. maí kl. 19. Fjórða örgangan í Grafarholti.
Fjórða örgangan verður miðvikudaginn 13. maí kl. 19.00. Gengið verður frá hitaveitugeymunum á Grafarholtinu eftir göngustígum sunnan byggðarinnar og upp Leirdalinn. Þar verður vikið frá stígnum og gengið um óraskað land fram á Nónás. Þaðan haldið til baka inn á stíginn, gengið austur Vellina og inn á stíg sem liggur niður að Reynisvatni. Við vatnið er haldið til vinstri og fylgt stígum að mestu að hitaveitugeymunum. Þátttaka er ókeypis, allir velkomnir.
11.5.2009
Matjurtanámskeið
Næstu tvo miðvikudaga verður síðasta matjurtanámskeiðið sem við verðum með á þessu vori, og í kvöld og næsta mánudag verðum við með námskeið um Ávaxtatré.Á námskeiðinu er fjallað um sáningu, ræktun og umönnun í ræktun matjurta. Greint er frá hefðbundnum og óhefðbundnum ræktunaraðferðum, jarðvegi og áburðargjöf, sýndar mismunandi gerðir ræktunarbeða, karma og skjólgjafa.
11.5.2009
Hálendiskort frá Vegagerðinni - hálendisvegir lokaðir.
Vegagerðin hefur nú gefið út hálendiskort með lokunum hálendisvega og eru allir helstu hálendisvegir nú lokaðir. Lokað er því í skála Ferðafélagsins, t.d. Landmannalaugar, Nýjadal, Hvítárnes og aðra skála FÍ á Kjalvegi. Opið er í Þórsmörk og eru skálaverðir mættir til starfa í Langadal. Sjá hálendiskortið hér
10.5.2009
Barnavagnavika FÍ 11.- 15 maí - dagskrá
Barnavagnavika FÍ stendur yfir 11.- 15. maí. Þá verður boðið upp á léttar og þægilegar gönguferðir eftir góðum göngustígum fyrir barnafólk með barnavagna og kerrur. Gönguferðirnar hefjast allar klukkan 16.00 og sjá má dagskrá vikunnar hér að neðan.
8.5.2009
Logn og blíða hljómaði á Úlfarsfellinu í morgungöngu dagsins
Nýtt met var slegið á Úlfarsfelli í fimmtu og síðustu morgungöngu Ferðafélags Íslands á þessu ári. Alls reyndust 115 göngugarpar vera mættir í stífum norðanvindi en björtu og köldu veðri.
8.5.2009
Vefbirting landfræðilegra gagna
LÍSA, samtökin halda námskeið þriðjudaginn 19.maí 2009 um undirbúning landfræðilegra gagna fyrir birtingu á vef. Námskeiðið verður haldið í Háskóla Íslands kl. 13:15 - 17:15. Námskeiðið er ætlað þeim sem vinna með landupplýsingar, og eru að hanna vefkort og vefsjár.
7.5.2009
Metþátttaka í morgungöngu á Helgafell
Met var slegið í morgungöngu Ferðafélagsins á Helgafelli í Mosfellssveit dag. 106 manns voru
mættir og var stuðst við talningu löggilts endurskoðanda í hópnum. Strekkingsvindur var af norðri en göngugarpar FÍ létu það ekki á sig fá...
Myndir úr morgungöngunum eru nú á myndabanka FÍ
7.5.2009
Rúmlega 70 í örgöngu í Grafarholti
Rúmlega 70 manns tóku þátt í örgöngu FÍ í Grafarholtinu í kvöld. Gengið var í einmuna blíðu frá hitaveitugeymunum í Grafarholti, niður meðfram golfvelli GR, yfir holtið að Rauðavatni og meðfram golfvellinum tilbaka, allt eftir ljómandi góðum göngustígum...
7.5.2009
Boðið uppá morgunverð á Úlfarsfelli í fyrramálið
Ferðafélagið býður öllum morgunglöðum göngugörpum í morgunverð á ,,tindi" Úlfarsfells í fyrramálið í morgungöngu FÍ. Frábær þátttaka hefur verið í morgungöngunum alla þessa viku þrátt fyrir hressilegt veður á köflum. Að venju bjóða fararstjórarnir Páll Ásgeir og Rósa upp á eitthvað spennandi þegar upp verður komið, fyrir utan alla ánægjuna og vellíðunina sem fylgir fjallgöngu í morgunsárið....,
7.5.2009
Myndlist í náttúru / náttúra í myndlist
Á sýningunni MINJAR, náttúra í myndlist og myndlist í náttúru, gefur að líta verk sem flest eru unnin sérstaklega fyrir húsakynni Náttúrufræðistofu Kópavogs. Tengsl náttúru og myndlistar eru hér í brennipunkti í breiðum skilningi,
7.5.2009
Áhugvert nám tengt útivist og ferðamennsku
Kæri ferðafélagi,
Ég vil vekja athygli ykkar á spennandi samnorrænu útivistarnám sem heitir Nordisk Friluftsliv. Nú er tekið á móti umsóknum í námið og er umsóknarfrestur til 15. maí.
6.5.2009
105 á Vífilsfell í morgungöngu FÍ í morgun
Í morgun mættu 105 á Vífilfellið í frábæru veðri. Nokkurt brölt var á mönnum við að komast alla leið á toppinn því enn er svolítill snjór í fjallinu. En allt fór vel að lokum og menn voru syngjandi kátir í sólinni.
5.5.2009
Þriðja Örgangan miðvikudaginn 6. maí
Þriðja örgangan verður miðvikudaginn 6. maí. Gengið verður frá hitaveitugeymunum á Grafarholti með hitaveituröri Nesjavallaveitu upp á brekkubrún. Þaðan gengið um Grafarsel suður að Rauðavatni - með norðanverðu vatninu að Lyngdal - suður í Skálina og þar niður á göngustíg sem liggur yfir Golfvöllinn að hitaveitugeymunum. Þátttaka er ókeypis, allir velkomnir.
5.5.2009
70 manns í hressilegri morgungöngu á Keili
Tæplega 70 manns tóku þátt í morgungöngu Ferðafélagsins í morgun á Keili þótt veður væri nokkuð hryssingslegt. Þetta var vaskur hópur sem gekk snúðugt og hvíldarlítið á fjallið. Á morgun miðvikudag verður gengið á Vífilsfell og lagt af stað að venju kl. 6 í fyrramálið frá Mörkinni 6.
4.5.2009
100 manns í fyrstu morgungöngu FÍ
Rúmlega 100 manns vour mættir í fyrstu morgungöngu FÍ í morgun á Helgafell en morgungöngur standa nú yfir þessa vikuna. Páll Ásgeir Ásgeirsson var ánægður með gönguna þar sem veðurspá var ekki góð. Nú er bara að stilla vekjaraklukkuna og mæta á morgun þar sem gengið verður á Keili.
Nýjar auglýsingar
Leit
Mynd























