Fréttir
29.6.2009
Af fegurð og leyndardómum Hornstranda
Í nýjasta Fimmtudagsviðtali FÍ hér til hliðar á síðunni, ræðir Sigríður Lóa Jónsdóttir fararstjóri um fegurð og leyndardóma Hornstranda, en hún hefur um árabil ferðast um þetta einstaka gönguland. Margir Hornstrandafarar bíða þess að geta lagt land undir fót og heimsótt svæðið og ættu vonandi að geta stytt biðina með því að lesa frásagnir Siggu Lóu af sérkennilega fámálugum ferðalöngum, veðurtöfum í vatnavöxtum og fleiru skemmtilegu sem fyrir hana hefur borið.
26.6.2009
Ferðafélag Barnanna stofnað
Ferðafélag Íslands boðaði til stofnfundar Ferðafélags Barnanna mánudaginn 22.júní kl .13.30 við rætur Esju – nánar tiltekið við göngustíginn á Þverfellshorn.
Félagsgjald í Ferðafélagi barnanna er kr. 1000. Innifalið í félagsgjaldi er félagskírteini og þátttaka í ferðum og viðburðum og vegum félagsins. Hægt er að skrá sig í Ferðafélag barnanna með því að senda tölvupóst á fi@fi.is og gefa upp nafn og kt, og nafn forráðamanns.
25.6.2009
Afmælisrit Svavars Sigmundssonar 7. september 2009
Svavar Sigmundsson verður sjötugur 7. september 2009. Af því tilefni mun Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum gefa út afmælisrit honum til heiðurs með úrvali greina eftir hann. Valdar hafa verið 35 greinar eftir Svavar og spanna þær undanfarna fjóra áratugi. Meirihluti greinanna fjallar um nöfn og nafnfræði. Sjá eftirfarandi efnisyfirlit. Þar má finna greinar á sex tungumálum (dönsku, ensku, færeysku, íslensku, sænsku og þýsku). Auk þeirra verður í bókinni heildarskrá um útgefin rit Svavars Sigmundssonar. Bókin verður um 300 bls. að stærð.
22.6.2009
Íslandsmet í jöklagöngu í Jónsmessuferð FÍ
Jónsmessuganga FÍ á Snæfellsjökul tókst vel. Alls gengu 251 göngugarpar alla leið upp en þrír þurftu frá að hverfa. Veðrið lék við göngufólk og aðstæður voru afar góðar. Lagt var af stað í gönguferðina á efsta bílastæði upp af Eysteinsdal og gengið upp suðvesturhlið jökulsins. Á leið niður jökul var miðnætursólin með sýningu við sjónarrönd og útsýnið stórkostleg langt inn á hálendi Íslands. Um tíma var líkt og göngumenn gengu í appelsínugulum snó á niðurleið. Komið var niður á milli 3 og 5 og fóru þá flestir heimáleið með rútum. Fjöldi þátttakenda í ferðinni er íslandsmet í fjallgöngu á Íslandi og aldrei hafa fleiri tekið þátt í jöklagöngu sem einn hópur.
15.6.2009
Málþing í minningu Páls Jónssonar 20. júní.
Hálfs dags málþing er varðar helstu hugðarefni Páls Jónssonar, haldið í minningu hans og í tilefni af 100 ára afmæli hans. Fjórir fyrirlesarar – fyrirspurnir í lok – tónlistaratriði inn á milli. Málþingið er haldið 20. júní
15.6.2009
Mannmargt á Fimmvörðuhálsi
Runninn er upp tími gönguferða yfir Fimmvörðuháls á vegum FÍ og var fyrsta ferðin farin um síðustu helgi undir stjórn Steinunnar Leifsdóttur fararstjóra. Göngugarpar voru sex talsins og að auki var 40 manna hópur í sérferð FÍ á Fimmvörðuhálsi, að ógleymdu fjölskyldu- og göngufólki sem gisti í Skagfjörðsskála og naut hlýviðris og gönguferða í Þórsmörk.
15.6.2009
200 manns með FÍ á Snæfellsjökul á Jónsmessunótt
Nú eru aðeins örfá sæti laus með FÍ á Snæfellsjökul. Þá munu 200 göngugarpar ganga á Snæfellsjökul með Ferðafélaginu. ,,Þetta lítur mjög vel, góð þátttaka og veðurspáin virðist ætla að verða okkur hagstæð," segir Páll Guðmundsson framkvæmdastjóri FÍ og fararstjóri í ferðinni. Lagt verður af stað frá Mörkinni 6 kl. 17 á föstudaginn og klukkan 21.00 verður lagt af stað í gönguna sjálfa. Nákvæm ferðatilhögun, sem og list yfir nesti og búnað verður að finna á heimasíðu FÍ frá 17. júní.
15.6.2009
Esjan endilöng - ferðasaga
Það var myndarlegur hópur Ferðafélaga sem gekk Esjuna endilanga í gær sunnudag. Gengið var frá Svínaskarðsá upp á Móskarðshnúka og þaðan um Laufskörð yfir á Esjuna sjálfa og svo eftir henni endilangri með viðkomu á Hábungu sem er hæsti punktur þessa vinsæla fjalls, 914 metrar.
15.6.2009
Fimmtudagsviðtöl á heimasíðu FÍ
Fimmtudagsviðtöl er nýung á heimasíðu FÍ. Á hlekk hér vinstri megin á síðunni er að finna fimmtudagsviðtal fyrir hverja viku.
15.6.2009
Opnun Hellismannaleiðar 25. júní
Ný gönguleið Hellismannaleið verður opnuð 25. júní nk. Opnun gönguleiðarinnar fer fram á Rjúpnavöllum í Landsveit. Frá kl. 10:00 verður opið hús á Rjúpnavöllum, þar sem gestum gefst tækifæri á að skoða ferðaþjónustuna á staðnum og þiggja veitingar.
11.6.2009
Enn einn háfjallasigur FÍ í Öræfunum
Hópur á vegum Ferðafélags Íslands gekk á Hrútsfjallstinda (1.875 m) undir stjórn Guðmundar Freys Jónssonar um síðustu helgi. Þátttakendur voru 21 og var ferðin vel heppnuð í alla staði. Skemmst er frá að segja að allir í hópnum náðu settu marki og komust á Vesturtind og Hátind við bestu aðstæður. Í nýjasta Fimmtudagsviðtali FÍ sem birtist í dag, segir Friðrik Alfreðsson, einn þátttakenda frá ferðinni.
9.6.2009
Frábærlega vel heppnuð FÍ ferð á Hvannadalshnúk
Seinni ferð FÍ á Hvannadalshnúk um nýliðna helgi var frábærlega vel heppnuð og komust allir þátttakendur á tindinn, og fengu feiknagott útsýni. Gangan tók rúmlega 13 tíma og að vanda biðu grillréttir og FÍ húfur Hnúksfaranna í Sandfelli.
9.6.2009
Pálsstefna í Borgarnesi 20. júní
Hálfs dags málþing er varðar helstu hugðarefni ferðafélagans Páls Jónssonar, haldið í minningu hans og í tilefni af 100 ára afmæli hans. Páll Jónsson sat lengi í stjórn FÍ og var ritstjóri árbókar FÍ í fjölmörg ár.
9.6.2009
Ferðafélag barnanna í Noregi 10 ára
Ferðafélag barnanna í Noregi átti 10 ára afmæli á aðfundi norska Ferðaféagsins. Starf Ferðafélags barnanna í Noregi hefur verið afar blómlegt og fjölbreytt og leitt til þess að fjölmörg börn og unglingar hafa tekið þátt í ferðum og útiveru af ýmsu tagi og kynnst norskri náttúru.
9.6.2009
Aðalfundur Ferðafélags Noregs
Aðalfundur Ferðafélags Noregs var haldinn í Bergen í Noregi um helgina. Ferðafélag Noregs er á meðal öflugustu félagasamtaka á norðurlöndum með rúmlega 220 þúsund félagsmenn. Páll Guðmundsson framkvæmdastjóri FÍ var gestur á aðalfundinum.
8.6.2009
Kayak sigling i Drangey 12. júní
Ferðafélag Skagafjarðar stendur fyrir miðnætur kayak siglingu í Drangey þann 12. júní næstkomandi. Áætlað er að leggja af stað undir miðnætti frá Grettislaug og sigla út í eyju, fara hring um eyjuna...
5.6.2009
Mikið grjóthrun í Esjunni eftir jarðskjálftana
Töluvert grjóthrun hefur orðið í klettabeltinu efst í Þverfellshorni í Esjunni. Varð þess fyrst vart eftir síðustu helgi en þá varð allsnarpur jarðskjálfti á Reykjanesi og fannst hann vel á höfuðborgarsvæðinu. .
3.6.2009
78 manns náðu tindi Hvannadalshnúks á sunnudag
Fyrri ferð FÍ á Hvannadalshnúk á þessu vori tókst með ágætum. 78 manna hópur að meðtöldum fararstjórum náðu tindinum kl. 13 á sunnudag, eftir tæplega 9 stunda göngu frá Sandfelli.
3.6.2009
Breyttur Fundarstaður
Hengilssvæðið – Ölkelduháls og Grændalur, laugardaginn 6. júní.
Fararstjórar verða Sigmundur Einarsson, jarðfræðingur, og Björn Pálsson, héraðsskjalavörður á Selfossi. Áður en farið verður af stað verður greint frá hugmyndum Landverndar um eldfjallagarð og fólkvang frá Þingvallavatni, út á Reykjanes. Þá mun Sigmundur Einarsson halda erindi um jarðfræði svæðisins, mótun þess og mydun og Björn Pálsson mun lýsa áformaðri gönguleið í máli og myndum og greina frá örnefnum og sögum af svæðinu.
Mæting á Grand Hótel, sal Háteig A 4 hæð kl. 9:00 og áætluð heimkoma kl. 17:00.
Nýjar auglýsingar
Leit
Mynd























