Beint á leiđarkerfi vefsins
Fara á forsíđu

Fréttir

Fréttir FÍ - RSS

27.8.2009

Mikil ţátttaka í starfsemi Ferđafélagsins

Gríðarlegur vöxtur hefur orðið á öllum sviðum hjá Ferðafélagi Íslands (FÍ) í sumar, að sögn Ólafs Arnar Haraldssonar, forseta FÍ. Það á jafnt við um þátttöku í ferðum, aðsókn að skálum og spurn eftir bæklingum og árbókum félagsins.

27.8.2009

Ţórisgil í Brynjudal-Glymur í Botnsdal 13. september

Ferðafélagið stendur fyrir gönguferð í Þórisgil og yfir í Botnsdal 13. september nk.  Sjá nánar undir ferðir og í þessari frétt.

26.8.2009

Árbók FÍ 2012 - Skagafjörđur vestan vatna

Á dögunum rituðu Páll Guðmundsson framkvæmdastjóri FÍ og Páll Sigurðsson lagaprófessor við Háskóla Íslands undir ritsamning þess efnis að Páll Sigurðsson skrifar árbók FÍ 2012 um Skagafjörð. Þá liggja fyrir ritsamningar við árbókarhöfunda fram til ársins 2013.  Áríð 2010 fjallar árbók FÍ um Torfajökulssvæðið og Friðland að fjallabaki, 2011 um Dalina, 2012 um Skagafjörð og 2013 um Vopnafjörð og Melrakkasléttu.  Höfundar eru Árni Björnsson þjóðháttarfræðingur, Ólafur Örn Haraldsson forseti FÍ, Páll Sigurðsson lagaprófessor og Hjörleifur Guttormsson náttúrufræðingur.

19.8.2009

Vatnaleiđin - nýtt frćđslurit FÍ komiđ út.

Vatnaleiðin, nýtt fræðslurit FÍ er nú komið út og er hið 15. í ritröðinni.   Reynir Ingibjartsson skrifar leiðarlýsingu og fróðleik. Fjölmargir lögðu til myndir í ritið sem er 82 bls og hefur að geyma fjölda korta af gönguleiðum á svæðinu.  Ólafur Valsson sá um kortagerð og Sögumiðlun, Gyða Björnsdóttir braut um ritið.   Í útgáfunefnd FÍ sitja Birgir Guðmundsson, Pálmi Bjarnason og Birgir Sigurðsson.  Ritið er fáanlegt á skrifstofu FÍ sem og í öllum helstu bókaverslunum.

17.8.2009

Í slóđ Jónasar yfir Nýabćjarfjall

Ferðafélag Skagfirðinga og Ferðafélagið Hörgur gengust sameiginlega fyrir göngu yfir Nýjabæjarfjall. Var gengið frá Skatastöðum í Austurdal í Skagafirði yfir í Villingadal í Eyjafirði laugardaginn 25. júlí og tók ferðin 14 tíma.

15.8.2009

Allir út - allir í Heiđmörk

Ferðafélag Barnanna stendur fyrir fjölskylduhátíð í Heiðmörk í dag og hefst dagskráin kl. 14.  Meðal annars er boðið upp á ratleik, gönguferðir, Ingó úr Veðurguðunum og grænmetisveislu. Ljóst er að veðurblíða mun leika við borgarbúa í dag og því um að gera fyrir alla að drífa sig út og skella sér upp í Heiðmörk.  Þátttaka er ókeypis og allir velkomnir.

12.8.2009

Fjölskyldu- og útivistarhátíđ í Heiđmörk

Ferðafélag Íslands stofnaði nýlega Ferðafélag barnanna. Markmið hins nýja félags er að stuðla að heilbrigðri útivist fyrir fjölskyldur í náttúru landsins. Aðalbakhjarl Ferðafélags barnanna er Nýja Kaupþing.

Að þessu tilefni er efnt til fjölskyldu- og útivistarhátíðar í Heiðmörk  n.k. laugardag 15. ágúst kl 14 - 16.

12.8.2009

Borgfirsku Alparnir á morgun sunnudag

Ferðafélag Íslands hefur alltaf kappkostað að bjóða almenningi upp á ferðir um Ísland og þá ekki síður um þá hluta sem eru síður þekktir en hinar allra vinsælustu ferðamannaslóðir. Á morgun, sunnudaginn 16. ágúst verður boðið upp á gönguferð sem ber yfirskriftina: Borgfirsku alparnir: Háleiksvatn og Grjótárvatn.

5.8.2009

Fjölskylduferđ í Ţórsmörk um nćstu helgi

María, María í Þórsmörk

Í kjölfar þess að íslenskt fjármálakerfi hrundi til grunna hafa margir Íslendingar endurmetið viðhorf sitt til þess hver eru þau raunveruleg verðmæti sem lífið býður upp á.

Að vonum líta margir til fortíðar með eftirsjá þegar lífið var einfaldara, fábrotnara og einhvern veginn skemmtilegra.

5.8.2009

Borgfirsku alpanir

Ferðafélag Íslands hefur alltaf kappkostað að bjóða almenningi upp á ferðir um Ísland og þá ekki síður um þá hluta sem eru síður þekktir en hinar allra vinsælustu ferðamannaslóðir. Um miðjan ágúst í sumar verður boðið upp á gönguferð sem ber yfirskriftina: Borgfirsku alparnir: Háleiksvatn og Grjótárvatn.

1.8.2009

Ferđafélag barnanna á Laugaveginum

Fullbókað var í ferð Ferðafélags barnanna um Laugaveginn sem lauk í gær í Þórsmörk.. Alls tíu foreldrar og 12 börn voru í hópnum sem gekk Laugaveginn með hefðbundnum hætti á fjórum dögum.  Þá er einnig fullbókað í  unglingaferð FÍ Halló Bolungarvík - Reykjarfjörður sem hefst eftir verslunarmannahelgi.

PÓSTLISTASKRÁNING

Međ reglulegu millibili sendir skrifstofa FÍ út yfirlit yfir félagsstarf, ferđir og annađ ţađ sem spennandi kann ađ vera fyrir áhugfólk um ferđalög og náttúru.
Eitt fjall á vikuFerđafélag barnannaSkráđu ţig í FerđafélagiđLaugavegurinnSkálar - yfirlitskortFerđaáćtlun 2010Safnađu fjöllum međ FÍ

Slóđin mín:

Forsíđa » Fréttasíđa

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Information in other languages

  • Information in English
  • Informationen auf Deutsch

Mynd