Fréttir
27.7.2010
Dásemdir Djúpárdals
23 manna hópur gekk um helgina um Núpaheiði, Kálfafellsfjall og Fossabrekkur í Djúpárdal undir leiðsögn Páls Ásgeirs og Rósu Sigrúnar. Þessi ferð ber yfirskriftina: Á vit fossana í Djúpárdal en hápunktur hennar er að koma í Fossabrekkur og standa við fótskör Bassa, sem er stærstur fossa í Djúpá. Hann steypist fram í hamrakór þar sem einnig falla fram fossandi ferskvatnslindir úr aragrúa fossa í hrauninu.
Í ferðinni eru ennfremur rannsakaðar fjölbreyttar myndir stuðlabergs, komið í eftirsóttustu hellutaksnámu sunnanlands og í lok ferðar gæða menn sér á alvöru kjötsúpu eldaðri af húsmæðrum í Fljótshverfi.
Sjá myndir hér.
27.7.2010
Hópmynd úr Ţjórsárverum

Ţað var fríður hópur göngugarpa sem kom úr 6 daga ferð FÍ í Þjórsárver sl. sunnudag. Gísli Már Gíslason og Þóra Ellen Þórhallsdóttir vistfræðingar voru fararstjórar.
26.7.2010
Norđur viđ fjölvindahaf
26.7.2010
Áheitaganga gekk vel
22.7.2010
30 manns í Ţjórsárver međ Ţóru Ellen og Gísla Má
fararstjórum. Þóra Ellen og Gísli Már eru í hópi fremstu vistfræðinga landsins og hafa bæði stundað rannsóknir í Þjórsárverum um langt skeið. Á upphafsdegi ferðarinnar lék veðurblíðan við ferðalanga og útsýnið og náttúrufegurðin var himneskt.
22.7.2010
Lónsörćfi - Stafafellsfjöll - Tröllakrókar
Ferðafélag Íslands býður upp á gönguferð í Lónsöræfi um verlsunarmannahelgina með Örlygi Steini Sigurjónssyni sem fararstjóra. Örlygur er fyrrverandi formaður Íslenska alpaklúbbsins og í hópi reyndustu fjallamanna landsins. Gönguferð um Lónsöræfi er ógleymanleg ganga um stórkostlegt landsvæði. Örfá sæti eru laus í ferðina.
19.7.2010
Útileguhelgi fjölskyldunnar á Ţingvöllum um nćstu helgi
15.7.2010
Gengiđ um Fljótafjöllin Helgarferđ 22 – 25. júlí 2010
Ţað eru laus pláss í ferðina Gengið um Fljótafjöllin Helgarferð sem farin er dagana 22 - 25. júlí 2010
22-7 fimmtudag komið í Bjarnargil á eiginvegum.
23-07
Blákápugarður skoðaður og rætt um söguna. Gengið upp á Barðshyrnu og fram (Skipið) Brekkufjall. Gengið að þeim stað sem fararstjóri upplifði mikið náttúruundur fyrir 5 árum og sagt frá. Gengið niður Skeiðsdal að Skeiðsfossvirkjun, hún skoðuð.
Göngutími ca 6-7 tímar.
13.7.2010
Áheitaganga Ferđafélags Mýrdćlinga
18. júlí nk. Stendur Ferðafélag Mýrdælinga fyrir áheitagöngu til fjáröflunar vegna endurbyggingar Deildarárskóla sem stendur undir Barði í Höfðabrekkuafrétti.
13.7.2010
Göngur um Langanesbyggđ og nágrenni
13.7.2010
Ferđir um Laugaveginn
Á morgun miðvikudag leggur af stað fríður hópur í Laugavegsgöngu með FÍ og er það þriðji hópur sumarsins og nú eru fram undan vikulegar ferðir og má segja að sumarumferðin sé hafin af fullum þunga. Að sögn skálavarða á Laugaveginum hefur umferð verið að aukast jafnt og þétt en skálar FÍ opnuðu óvenjusnemma í sumar. Aðstæður á Laugaveginum eru góðar og útlt fyrir að umferð um Laugaveginn nú yfir hásumarið og fram á haust verði með besta móti. Fjölmargir skálar eru fullbókaðir fram í ágúst.
13.7.2010
40 manns í Fjörđur og Bjarnafellsskriđur
7.7.2010
Samstarfssamningur FÍ og Valitors
7.7.2010
Laugavegurinn - myndir
Nú eru komnar inn myndir af fyrstu Laugavegsferð FÍ sem farin var í byrjun júlí. Myndir smá skoða með því að smella hér
6.7.2010
Mikilvćgi útiveru
Sjá nánar á www.allirut.is
6.7.2010
Gönguferđir eldri og heldri borgara
5.7.2010
Nafnasamkeppni Ferđafélags barnanna
Ferðafélag barnanna minnir á að huldustelpan og vinur hennar huldustrákurinn leita eftir nafni. Við hvetjum alla krakka til að senda inn hugmyndir að nöfnum fyrir þau bæði og það eru vegleg verðlaun í boði.
Hægt er að senda inn á netfangið: fb@fi.is eða senda inn hér á www.allirut.is
5.7.2010
Ferđafélag barnanna

Ferðafélag barnanna er nú á sínu öðru ári, starfandi sem deild í Ferðafélagi Íslands. Ferðafélag barnanna er með sér heimasíðu www.allirut.is og má þar finna upplýsingar um ferðir og viðburði, sem og ýmsar góðar upplýsingar um búnað og fleira fyrir börn og fjölskyldufólk. Hægt er að skrá í sig í Ferðafélag barnanna allirut.is og fá þátttakendur þá félagsskírteini og góð kjör, bæði í ferðir og ýmsar verslanir.
5.7.2010
Vel heppnuđ fuglaskođunarferđ ţann 3.júlí
1.7.2010
AĐ RATA RÉTTA LEIĐ!
Fagnaðu með okkur og undirbúðu ævintýri sumarsins!
Í dag opnar Forlagið nýja og stórglæsilega kortadeild í verslun sinni að Fiskislóð 39. Af því tilefni verður opnunarhátíð í dag kl. 16-20 þar sem kynnt verður frábært úrval landakorta og ferðabóka.
Nýju Atlaskortin verða fáanleg á sérstöku kynningarverði. Grillaðar pylsur og Svali verða í boði kl. 18-20 og heitt á könnunni fyrir gesti og gangandi. Fararstjórar og fulltrúar Ferðafélags Íslands munu mæta á staðinn og kynna nýútkomna árbók félagsins, Friðland að Fjallabaki, sem og ferðir sumarsins. Allir Velkomnir!
1.7.2010
Upplifun á Fimmvörđuhálsi
Helgina 10-11 júlí mun Ferðafélag Íslands bjóða upp á fyrstu gönguna yfir Fimmvörðuháls. Til undirbúnings fóru tveir fararstjórar FÍ í sérstakan könnunarleiðangur upp á hálsinn að gosstöðvunum og nýju gígunum Magna og Móða. Helstu niðurstöður þessa könnunarleiðangurs eru þessar: Færðin er allgóð, 10 cm þykkt lag af sandi og ösku liggur yfir Skógaheiði og Fimmvörðuhálsi. Efst á hálsinum liggur lagið á stórum svæðum ofan á snjó og þar helst það rakt og fyrir vikið gætir ekki foks. Ný leið yfir hraunið rétt við gígana er afar áhugaverð og litríkar útfellingar gleðja augað og það gerir heitt hraun undir fótum göngumanns einnig. Sjá myndir hér að neðan.
30.6.2010
Trölladyngja - Sogin - Hverinn 4. júlí
Dagskráin hefst kl. 10 og verður lagt af stað í ferðina kl. 10.30 og komið tilbaka um kl. 16-17.00.
30.6.2010
Árbók FÍ 2010 komin út - Friđland ađ Fjallabaki
Árbók Ferðafélags Íslands 2010 er nú komin út og fjallar að þessu sinni um FriðlandFjallabaki en þar eru Landmannalaugar og nágrenni í öndvegi. Höfundur bókarinnar er Ólafur Örn Haraldsson forseti FÍ. Friðland að Fjallabaki er eitt fegursta svæði Íslands og náttúrufar þar einstakt á heimsvísu. Bók, sem fjallar um slíkt svæði, nær aldrei að fanga viðfangsefnið til fulls en reynt hefur verið að birta lesandanum sem flest af áhugaverðum einkennum friðlandsins.
28.6.2010
Laus pláss á "Óeiginlega Laugaveginum"
Ţrjú pláss eru laus í ferðina Óeiginlegur Laugavegur. Þetta er sérstök og umtöluð ferð sem farin var í fyrsta sinn í fyrra. Gengið er um fáfarnar slóðir austan og vestan hins hefðbundna Laugavegar en gist í skálum og farangur fluttur.
Fararstjórar eru: Páll Ásgeir Ásgeirsson og Rósa Sigrún Jónsdóttir.
23.6.2010
Nokkur sćti laus!!!S-10 „Ţar ríkir fegurđin ein ..." - síđari hluti
Ţað voru að losna nokkur sæti í ferðina S-10 „Þar ríkir fegurðin ein ..." - síðari hluti
Jökulfirðir, Höfðaströnd, Grunnavík og Snæfjallaheiði
Sem farin er dagana 7.-11. júlí
23.6.2010
Fjögurra vita ganga frá Stafnesi ađ Garđskaga
22.6.2010
Međ barniđ á bakinu á Esjuna
Á morgun, miðvikudaginn 23.júní kl 15 verður farið á Esjuna með barnið á bakinu.
Fararstjóri verður Auður Kjartansdóttir. Áður en haldið verður af stað í gönguna verður örlítil umræða um notkun burðarpokans og svo verður gengið um hlíðar Esjunnar.
22.6.2010
Fjölmenni í Jónsmessugöngu á Esjuna
Andinn var góður hjá gönguhópnum á vegum Ferðafélags Íslands sem gekk Esjuna í kvöld til að verða vitni að sumarsólstöðunum. Hátt í 80 manns gengu fjallið en ekki fóru allir á tindinn, að sögn Þórðar Marelssonar fararstjóra. Aðspurður hvort þetta sé árviss viðburður segir Þórður svo ekki vera. Undanfarin ár hafi verið gengið á Heklu eða Snæfellsjökul á vegum Ferðafélags Íslands þennan dag ársins. Hópurinn sem gekk Esjuna að þessu sinni var á vegum TM en fyrirtækið bauð viðskiptavinum sínum í gönguna.
22.6.2010
Nokkur laus pláss í ferđina: S-5 Á skálavakt frá Ađalvík til Hrafnfjarđar
Ţað eru nokkur laus pláss í ferðina S-5 Á skálavakt frá Aðalvík til Hrafnfjarðar sem farin er 30. júní til 7. júlí.
Til að fá meiri upplýsingar um ferðina vinsamlega hafið samband við skrifstofu í síma 568-2533 eða sendið tölvupóst á fi@fi.is
21.6.2010
Almannaréttur og útivist
Hver er réttur og hverjar eru skyldur þeirra sem ferðast um Ísland? Í lögum um náttúruvernd eru ákvæði sem fjalla um almannarétt, umgengni og útivist. Þar segir að öllum sé heimilt að fara um landið og njóta náttúru þess svo fremi að gengið sé vel um og þess gætt að spilla engu. Heimilt er að fara um óræktuð eignarlönd án sérstaks leyfis. Rétthöfum lands er heimilt að takmarka með merkingum ferðir manna um eignarlönd. Lönd í eigu ríkisins, svo sem náttúruverndar- og skógræktarsvæði, eru öllum opin með fáum undantekningum. Hægt er að takmarka umferð tímabundið, svo sem yfir varptíma eða vegna gróðurverndar.
21.6.2010
Gönguferđ á Esjuna međ TM á sumarsólstöđum
19.6.2010
Hátíđ í Heiđmörk - gönguferđ um landnemareit FÍ
Skógræktarfélag Reykjavíkur fagnar 60 ára afmæli Heiðmerkur um þessar mundir. Að því tilefni verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá fyrir alla fjölskylduna á vegum félagsins í Heiðmörk. Hátíðin stendur yfir og eru allir atburðir þar ókeypis og hefjast þeir kl. 20:00 á hverju kvöldi í heila viku. Sem dæmi má nefna fuglaskoðun með Jakobi Sigurðssyni, tálgunarnámskeið fyrir börn og fullorðna með Ólafi Oddssyni, veiðinámskeið og grillaður fiskur með Jóni Kristjánssyni, gönguferð um landnemareit Ferðafélags Íslands undir leiðsögn Auðar Kjartansdóttur sem endar á hjá Norðmönnum í þeirra ,,hyttu“ á Torgeirsstöðum.
Nánari upplýsingar um dagskrána má finna hér.
16.6.2010
Dalirnir kalla
Ferðafélag Íslands í samstarfi við Út og vestur býður nú upp á nokkrar áhugaverðar ferðir í Dölunum, bæði helgarferðir og lengri ferðir. Ferðafélagið gefur út árbók um Dalina á næsta ári og kynnir nú og í kjölfar útgáfu árbókarinnar svæðið með gönguferðum og fræðslu. Árni Björnsson þjóðhátttarfræðingur ritar texta bókarinnar og Jón Jóel Jónsson í út og vestur verður fararstjóri í ferðum sumarsins. Sjá nánar á www.utogvestur.is og eins undir ferðir hér á heimasíðunni.
16.6.2010
Rigningar breyta ađstćđum hratt í Ţórsmörk - allt ađ grćnka
16.6.2010
Vinnuferđ í Emstrur - ađstćđur ađ snarbatna
16.6.2010
7 Tindar í Eyjum
Hressileg fjallganga á 7 tinda að kvöldi föstudagsins 18. júní.
Gangan hefst við tjörnina inni í Herjólfsdal kl. 21.00.
Lagt verður á Dalfjall, þaðan yfi r Eggjar niður Hánna, upp á Klif,
Heimaklett, Eldfell, Helgafell og Sæfell.
Engin skylda er að ganga á öll fjöllin, hver og einn gerir bara það sem hann
treystir sér í . Gott er að hafa með sér nesti í góðum og þægilegum bakpoka.
Áætlaður göngutími fer eftir ásigkomulagi hvers og eins (3-5 klst.)
Ţátttökugjald er krónur 2000 og rennur óskipt til Krabbavarnar Vestmannaeyjum.
Hlakka til að sjá sem fl esta
Hafdís Kristjáns - sími 863 4224
15.6.2010
Leggjabrjótur, forn ţjóđleiđ á 17. júní
Gengin forn þjóðleið frá Svartagili í Þingvallasveit, inn eftir Öxarárdal, yfir Leggjabrjót og niður að Stóra-Botni í Botnsdal í Hvalfirði. Nánar í: Gönguleiðir upp úr botni Hvalfjarðar, útg. FÍ 2007
Göngutími 5 - 6 klst.
Fararstjóri: Leifur Þorsteinsson.
Verð kr. 6.000 / 8.000
Innifalið: Rúta og fararstjórn
Skráning og greiðsla fyrir lok miðvikudags 16. júní.
15.6.2010
FÍ Cintamani peysur tilbúnar til afgreiđslu
14.6.2010
Laus sćti í ferđina: Framhjágangan mikla, I. hluti. Í fótspor Ţórbergs Ţórđarsonar
Ferðin Framhjágangan mikla, I. hluti. Í fótspor Þórbergs Þórðarsonar er farin dagana 22.-26. júlí.
Genginn er fyrsti hluti frægrar göngu Þórbergs Þórðarsonar þegar hann ætlaði að banka uppá hjá elskunni sinni á Bæ í Hrútafirði. Hann stakk af frá borði farþegaskipsins Hólar í Norðurfirði og lagði á heiðarnar suður eftir. Þegar hann kom að Bæ þá brást honum kjarkur og hélt ferð sinni áfram fótgangandi alla leið til Reykjavíkur.
10.6.2010
FÍ og Landvernd á Ölkelduháls
Nú er komið að annarri ferð Landverndar og Ferðafélagsins um jarðhitasvæði í næsta nágrenni höfuðborgarinnar. Að þessu sinni verður litast um á Hellisheiði og Ölkelduhálsi áður en gengið verður niður í Reykjadal en um hann rennur ein af glæsilegri varmám landsins, Reykjadalsá. Þar gefst göngufólki kostur á að hvíla lúin bein og baða sig í ylvolgri ánni. Þaðan verður gengið áfram niður dalinn og upp Hverakjálka til baka. Jarðskjálftasprungur skoðaðar á Bitru.
10.6.2010
Safetravel hleypt af stokkunum í Krýsuvík
Í hádeginu í dag skrifuðu 17 aðilar, er koma að ferðaþjónustu á einn eða annan hátt, undir samstarfssamning í Krýsuvík um öryggismál ferðamanna.
Fjöldi ferðamanna sem ferðast um landið hefur verið að aukast með hverju árinu. Tölur frá Ferðamálastofu sýna að 90% íslendinga ferðuðust innanlands síðasta sumar og um 500.000 erlendir ferðamenn heimsóttu landið.
Bjartsýnustu spár segja að árið 2018 geti fjöldi erlendra ferðamanna verið kominn í eina milljón. Áætlað er að tekjur af erlendum ferðamönnum hér á landi hafi verið 155 milljarðar árið 2009 sem er um 21% raunaukning frá árinu á undan og er ferðaþjónustan nú orðin ein af stærstu gjaldeyrisskapandi greinum þjóðarinnar með um 18% hlutdeild.
8.6.2010
Nokkur sćti laus! Jónsmessa og Jóga á Hornströndum - Hlöđuvík
Ţað voru að losna nokkur sæti í ferðina S-2 Jónsmessa og Jóga á Hornströndum - Hlöðuvík
Sem farin er dagana 23.-28. júní.
7.6.2010
Esjudagur FÍ og VISA
Laugardaginn 12, júní n.k frá kl 13 - 16 verður hinn árlegi Esjudagur Ferðafélags Íslands og VISA haldinn. Boðið upp á gönguferðir á Esjuna í fylgd fararstjóra frá FÍ. Fjallamenn mæta, ratleikur, skógarganga o.fl.
Sjáumst á laugardag.
Við bendum ykkur á að það gengur strætó frá Háholti Mosfellsbæ leið 57 yfir daginn. Nánari upplýsingar á www.straeto.is
Ţátttaka er ókeypis, allir velkomnir. Nánar auglýst síðar.
6.6.2010
Skýrsla úr Ţórsmörk
Ţegar komið var inn undir Gígjökul og hvergi sá á dökkan díl heldur kolgrátt öskumistur blasti við á allar hendur má segja að menn hafi upplifað visst áfall.
3.6.2010
Á ystu nöf-námskeiđ viđ yfirdrifinni lofthrćđslu
Líður þér mjög illa þegar þú ert hátt uppi eins og á svölum eða brúm, í lyftum eða stigum eða forðastu háar hæðir eins og þú frekast getur?
Hefur lofthræðsla hamlandi áhrif á daglegt líf þitt?
Hefur þig dreymt um að fara í fjallgöngur en ekki haft þig í það vegna lofthræðslu?
Kvíðameðferðarstöðin stendur nú fyrir tveggja vikna námskeiði við yfirdrifinni lofthræðslu í samstarfi við Ferðafélag Íslands. Markmið námskeiðsins er að draga úr lofthræðslu svo að fólk eigi hægar um vik að fara ferða sinna, hvort sem er í daglegu amstri eða þegar farið er á vit ævintýra. Um er að ræða úrræði sem er byggt á aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar og skiptist námskeiðið í fræðslu, æfingar, vettvangsferðir og heimaverkefni auk þess sem farið verður í fjallgöngu undir lok námskeiðs.
Stjórnendur námskeiðsins eru Sigurbjörg J. Ludvigsdóttir sálfræðingur, Helena Jónsdóttir cand.psych. og Páll Ásgeir Ásgeirsson, leiðsögumaður. Námskeiðið hefst þriðjudaginn 15. júní 2010 og stendur yfir í 2 vikur en hópurinn mun hittast 2 sinnum í viku í 2 klukkustundir í senn (þriðjudaga og föstudaga kl. 8-10). Skráning fer fram hjá Kvíðameðferðarstöðinni í síma 534-0110/822-0043 eða með tölvupósti á kms@kms.is en skráningu lýkur 12. júní n.k.
1.6.2010
Unglingar á ferđ og flugi
Í þessari ferð verður sameiginlegur matur bæði morgunmatur og heitur kvöldmatur, sem verður sérstaklega á vegum hópsins, en ekki innifalið í fargjaldi ferðarinnar.
Ţað hefur komist hefð á þennann hátt í Hornstrandaferðum FÍ í yfir áratug og skapað mikla ánægju meðal Hornstrandafara FÍ. Þessi sameiginlegi matur stendur saman af morgunmat, sem inniheldur hafragraut og súrmjólk, brauð, álegg og ávexti og af þessu morgunverðarborði útbúa síðan ferðalangar göngunesti dagsins. Kaffi, te og heitur súkkilaðidrykkur er bæði kvölds og morgna.
Í lok hvers göngudags er síðan á boðstólum heitur kvöldverður. Snarl af ýmsu tagi s.s. kex, súkkulaði, rúsínur, harðfiskur, súkkulaðidrykkir, Nes-kaffi, orkudrykkir eða ýmiskonar safar, sér hver um fyrir sig eftir þörfum og smekk. Ferðalangar hjálpast að við undirbúning og frágang máltíða
1.6.2010
Sćludagar í Hlöđuvík 7. - 12. júlí - 4 laus pláss
27.5.2010
Myndir úr FÍ ferđ á Ţverártindsegg
26.5.2010
Ferđ í Fjörđur međ Valgarđi Egilssyni
Látraströnd - Fjörður - Flateyjardalur. Ferðin er 4 göngudagar. Gist er í 3 nætur í eyðibyggðum á Látrum, í Keflavík og á Þönglabakka. Innifalið 2 kvöldmáltíðir, trúss fyrir tjald og svefnpoka. Fararstjóri Valgarður Egilsson. Verð kr. 44.000/49.000. Skráning á skrifstofu FÍ.
26.5.2010
FÍ og Landvernd á Reykjanes
Ekið á Reykjanes um Hafnir. Litast um við Reykjanesvirkjun. Gengið frá bílastæði við Reykjanesvita vestur að gossprungunni frá 1226 og skoðuð ummerki eftir gosið, en gossprungan var bæði á landi og í sjó. Gengið á Valahnúk og horft yfir brimurðina og Reykjanestá. Gengið að hverasvæðinu og litið á Gunnuhver og Reykjanes-Geysi. Skoðaðar skjálftasprungur. Ekið til baka um Grindavík. Nokkur ganga en ekki erfið.
25.5.2010
Örganga 26. maí
25.5.2010
Hvítasunnuferđ FÍ á Hvannadalshnúk
Hvítasunnuferð FÍ á Hvannadalshnúk var farin laugardaginn 22. maí og tóku 80 manns þátt að þessu sinni, að fararstjórum meðtöldum. Ferðin hófst samkvæmt venju í Sandfelli og var lagt af stað á miðnætti aðfaranótt laugardags. Gjarnan er lagt af stað á Hnúkinn milli klukkan 3 og 5 að morgni, en að þessu sinni þótti skynsamlegra að fara fyrr af stað til að forðast snjóbráð á jöklinum, en gert var ráð fyrir töluverðum hita þennan dag.
18.5.2010
Örganga á miđvikudag
Örganga
Ţriðja gangan um nágrenni Grafarholtsins verður miðvikudaginn 19. maí. Lagt verður af stað frá vatnsgeymunum kl: 19:00. Leið: Gengið um veginn, sem liggur samhliða rörunum frá Nesjavöllum.Þaðan haldið stíg sem liggur um Selbrekkur að Rauðavatni - þaðan vestur með vatninu og upp Lyngdalinn - þaðan um Skálina og á veginn meðfram hitaveiturörinu. Leiðin er að nokkru utan stíga og því ráðlegt að vera í góðum gönguskóm. Þetta er ekki hraðganga. Ætlaðar eru 1 1/2 - 2 klukkstundir til ferðarinnar. Örgöngur eru aldrei felldar niður vegna veðurs.
Fararstjórar: Guðlaug Sveinbjarnardóttir og Höskuldur Jónsson
14.5.2010
Ţriđja útgáfa Hálendishandbókar komin út
Hálendishandbókin - ökuleiðir, gönguleiðir og áfangastaðir á hálendi Íslands er komin út í þriðja sinn. Bókin er orðin sígild sem traustur ferðafélagi á hálendinu og í þessari nýju útgáfu eru uppfærðar upplýsingar, nýjar ljósmyndir og nýjar leiðarlýsingar til nokkurra staða.
Höfundur bókarinnar er Páll Ásgeir Ásgeirsson sem situr í stjórn FÍ og fæst við fararstjórn á vegum félagsins.
14.5.2010
Vettvangsferđir um jarđhitasvćđi á Reykjanesi
14.5.2010
Menningarsjóđur VISA styrkir Ferđafélag Íslands
14.5.2010
Ferđamennska – Rötun – Áttaviti – Skyndihjálp
11.5.2010
Örganga í Grafarholti 12. mai
Örganga
Önnur gangan um nágrenni Grafarholtsins verður miðvikudaginn 12. maí. Lagt verður af stað frá vatnsgeymunum kl: 19:00. Leið: Gengið um stíginn, sem liggur að Reynisvatni - þaðan haldið upp á Velli - þaðan um Leirdalsklauf upp á Grenás - þaðan í Skálina (Paradísardal) - úr Skálinni niður á göngustíginn, sem liggur að - að geymunum. Leiðin er að nokkru utan stíga og því ráðlegt að vera í góðum gönguskóm. Þetta er ekki hraðganga. Ætlaðar eru 1 1/2 - 2 klukkstundir til ferðarinnar. Örgöngur eru aldrei felldar niður vegna veðurs.
Fararstjórar: Guðlaug Sveinbjarnardóttir og Höskuldur Jónsson
11.5.2010
Málţing um gćđa og umhverfismál í ferđaţjónustu
Miðvikudaginn 12. maí kl. 14-16 verður haldið málþing um gæða og umhverfismál í ferðaþjónustu á Grandhótel í Reykjavík.
10.5.2010
Barnavagnavika FÍ 10. - 14. maí
9.5.2010
Heiđríkja á Hvannadalshnúk
Logn og sólskin hélst allan daginn og voru þátttakendur í sjöunda himni í bókstaflegri merkingu og skein gleðin af hverju andliti. Það var Haraldur Ólafsson sem stýrði verkefninu eins og jafnan er í ferðum FÍ á þennan hæsta tind Íslands. Sjá myndir.
7.5.2010
515 alls í morgungöngum
Alls tók 515 þátt í morgungöngunum að þessu sinni sem mun vera metþátttaka. Sjá nýjar myndir hér.
6.5.2010
Vill leyfa ađgengi ferđamanna ađ Gígjökli
Leyfið fólkinu að koma til eldfjallsins,“ sagði Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur á Ferðamálaþingi í fyrradag. Hann hefur stundað rannsóknir á eldfjöllum í fjóra áratugi og skipulagt ferðir fyrir ferðamenn á eldfjallasvæði í um þrjá áratugi. Erindi Haraldar má lesa á bloggi hans, www.vulkan.blog.is. ,,Það er algjörlega magnað að vera hérna, og eins að aka hér inneftir,“ sagði Páll Guðmundsson, framkvæmdastjóri Ferðafélags Íslands. Hann fór inn að Gígjökli í fyrradag ásamt fleirum frá Ferðafélaginu og Vegagerðinni til að kanna aðstæður í Þórsmörk og ástand vegarins.
5.5.2010
101 Mosfell
3.5.2010
Mögnuđ ferđ á Miđfellstind
Um helgina fór 19 manna leiðangur á vegum Ferðafélags Íslands á Miðfellstind í Skaftafellsfjöllum og mun þetta vera í fyrsta sinn sem félagið efnir til ferðar á þennan kyngimagnaða tind. Leiðangursmenn gengu úr Skaftafelli inn í Kjós þar sem settar voru upp tjaldbúðir. Snemma á laugardag var síðan haldið upp með Meingili í Hnútudal og þaðan í skarð við Þumal. Þaðan liggur leiðin inn á jökul norðan við fjöll og austur með þeim að Miðfellstindi. Tindurinn er 1430 metra hár og af honum óviðjafnanlegt útsýni yfir Skaftafellsfjöll og fjallakrans Öræfajökuls allan.
3.5.2010
Metţátttaka í fyrstu morgungöngunni
Morgungöngur FÍ 2010 hófust á mánudagsmorgun kl. 0600. 91 tók þátt í fyrstu göngunni og muna menn ekki eftir svo mikilli þátttöku fyrsta daginn. Undanfarin ár hefur jafnan fjölgað í göngunum eftir því sem líður á vikuna. Veður var hið besta og á toppnum var lesið úr bláu Skólaljóðunum kvæði eftir Jón Helgason við góðar undirtektir.
Sjá myndir.
3.5.2010
Örgöngur FÍ
Fyrsta gangan um nágrenni Grafarholtsins verður miðvikudaginn 5. maí. Lagt verður af stað frá vatnsgeymunum kl: 19:00. Leið: Gengið um stíginn, sem liggur að Hádegismóum - þaðan haldið upp á Hádegisholtið - þaðan um Lyngdalsklaufina í Skálina (Paradísardal) - úr Skálinni niður á göngustíginn, sem liggur að - að geymunum. Leiðin er að nokkru utan stíga og því ráðlegt að vera í góðum gönguskóm. Þetta er ekki hraðganga. Ætlaðar eru 1 1/2 - 2 klukkstundir til ferðarinnar. Örgöngur eru aldrei felldar niður vegna veðurs. Fararstjórar: Guðlaug Sveinbjarnardóttir og Höskuldur Jónsson
29.4.2010
Húsfyllir á myndakvöldi
Húsfyllir var á myndakvöldi Ferðafélags Íslands í gærkvöldi þegar Ólafur Örn Haraldsson forseti FÍ sýndi myndir úr væntanlegri árbók um Friðland að Fjallabaki. Myndir Daníels Bergmann fengu gestir til að grípa andann á lofti og margir sáu þarna nýjar hliðar á landsvæði sem þeir töldu sig þekkja allvel.
Ekki síður vöktu kátínu gamlar myndir úr uppbyggingarstarfi Ferðafélagsins í Landmannalaugum sem vörpuðu ljósi á að hefði ekki Ferðafélag Íslands hafist handa við uppbyggingu á svæðinu um 1950 rynni Jökulgilskvíslin án efa yfir heita lækinn í dag.
Ţetta var síðasta myndakvöld vetrarins en þráðurinn verður tekinn upp aftur á hausti komanda.
26.4.2010
Myndir úr nýrri árbók
Bókin fjallar um Torfajökulssvæðið og Fjallabak og er óhætt að segja að þetta heillandi svæði verði sýnt í nýju ljósi í þessari árbók sem Ólafur Örn hefur skrifað og er væntanleg í hendur félagsmanna í maímánuði n.k.
Árbækur Ferðafélags Íslands eru ótvírætt ein merkasta ritröð um Ísland og náttúru þess sem til er en árbækurnar hafa komið út árlega frá 1929.
Vandaðar ljósmyndir eru aðalsmerki þessarar bókar eins og ávallt og flestar þeirra hefur Daníel Bergmann ljósmyndari tekið en hann hefur lagt gjörva hönd að verki við árbækur síðustu ára. Í ljósmyndasýningunni á miðvikudaginn mun einnig bregða fyrir fjölmörgum eldri myndum sem sýna uppbyggingarstarf og ferðir á svæðinu umhverfis Landmannalaugar í áratugi.
Hér gefst því tækifæri til að skyggnast í væntanlegan fróðleiksmola en ekki síður að líta til baka og minnast við gamla daga.
Samkoman hefst stundvíslega kl. 20.00 í sal Ferðafélagsins í Mörkinni 6. Aðgangseyrir er kr. 600 og kaffiveitingar í hléi. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
23.4.2010
Bakpokanemendur útskrifađir
Um síðustu helgi voru þátttakendur á námskeiðinu: Með allt á bakinu útskrifaðir. Útskrift fólst í stuttri útilegu á Þríhyrningshálsum yfir ofan Fljótshlíð þar sem gengið var kringum Þríhyrning. Nemendur slógu tjöldum undir Hæringsfelli en þaðan var gott útsýni yfir gosið í Eyjafjallajökli. Útsýnið um kvöldið og nóttina var ógleymanleg lífreynsla en þar gekk á með miklum eldingarleiftrum í gosmekkinum.
Ţarna reyndu margir á eigin skinni hve góður búnaður er nauðsynlegur þegar sofið er í tjaldi meðan enn er vetur á almanakinu. Í lok ferðar fóru svo fram skólaslit og afhending prófskírteina. Námskeiðið var í umsjá Páls Ásgeirs Ásgeirssonar og Rósu Sigrúnar Jónsdóttur. Sjá myndir.
23.4.2010
Esjudagur barnanna
Esjudagur barnanna.
Á morgun laugardag verður mikið fjör í hlíðum Esju. Þá verður Esjudagur barnanna haldinn í samstarfi við Ferðafélag Barnanna, Esjustofu og Barnamenningarhátíð.
Ókeypis sætaferðir verða kl 13.15 frá Ferðafélagi Íslands að Mörkinni 6. Kl 14.15 verður leikþáttur frá Færeyjum - Trölla-Pétur og amma hans sem er verulega óþæg og skemmtileg. Síðan verður notið þess sem Esjan og skógur hefur upp á að bjóða - farið í leiki og ratleikurinn verður á sínum stað. Ókeypis veitingar í boði Esjustofu og Ferðafélagsbarnanna.
Komið og njótið Esjunnar - Fjall í borg.
19.4.2010
Staksteinar landsins
Staksteinar landsins, myndir af þeim, nöfn þeirra, saga þeirra og sérkenni.
Á sýningunni mun hann sýna myndir af nafnkenndum steinum og segja og lesa upp sagnir sem þeim eru tengdar. Einnig hvernig „íbúar“ sumra þessara steina hafa haft samskipti við sýnilega íbúa landsins. Og síðast en ekki síst hversu mikilvæg kennileiti þessir staksteinar voru í landinu.
19.4.2010
Skaftárganga - Draumaleiđ göngumannsins
Skaftárganga - draumaleið göngumannsins - 14. - 16. maí . Skemmtileg, þægileg gönguferð með miklum fróðleik um einstaklega fallegt svæði.
Leiðsögumaður: Jón Helgason
Fararstjóri: Broddi Hilmarsson
Frá Skál að Eldmessutanga.15. maí 2010
Söguganga ca 15 km (6 - 7 klt.)
Laugardaginn 15. maí kl. 9.00 er horft á myndina Eldmessu í félagsheimilinu Kirkjuhvoli, Kirkjubæjarklaustri til að skynja betur umhverfi og andrúmsloft í Skaftáreldum og Móðuharðindum.
19.4.2010
Örgöngur FÍ í maí
D-4Örgöngur FÍ - Gönguferðir í Grafarholti og nágrenni 5. maí - 2. júní, á miðvikudögum kl. 19
Fararstjórar: Höskuldur Jónsson og Guðlaug SveinbjarnardóttirStuttar hressandi gönguferðir, 1 - 2 klst., um skemmtileg svæði í Grafarholtinu og nágrenni með leiðsögn. Mæting við hitaveitugeymana í Grafarholti.
Ţátttaka ókeypis, allir velkomnir.
18.4.2010
Útivistarmađur Íslands 2010
Cintamani og FÍ leita að útivistarmanni Íslands
Segðu okkur frá þínu mesta afreki í útivist. Við viljum heyra frá öllum þeim sem stunda útivist, hvort sem það er reglulega eða bara einu sinni á ári.
Verðlaun
Ţyrluskíðaferð fyrir tvo með Arctic Heli Skiing eða Cintamani fatnað fyrir 100.000 kr.
Sendu okkur þína reynslusögu fyrir 7. maí á info@cintamani.is eða í umslagi merktu Útivistarmaðurinn 2010 í Austurhraun 3, 210 Garðabæ.
Pólfarinn Haraldur Örn Ólafsson frá Fjallafélaginu, Jökull Bergmann frá Arctic Heli Skiing, Páll Guðmundsson framkvæmdastjóri Ferðafélags Íslands og Skúli Björnsson framkvæmdastjóri Cintamani velja síðan útivistarmanninn 2010 úr innsendum sögum.
16.4.2010
Norska Ferđafélagiđ í heimsókn hjá FÍ

Kristin Krohn Dewold framkvæmdastjóri DNT
Í vikunni voru forráðamenn Ferðafélags Noregs í heimsókn hjá Ferðafélagi Íslands. Norsku gestirnir fóru meðal annars í heimsókn í Langadal í Þórsmörk og lentu í miklu ævintýri í ferðinni þegar Eyjafjallajökull byrjaði að gjósa. Urðu norðmennirnir innlyksa í Langadal ásamt fulltrúum FÍ og ferðamönnum frá Belgíu sem dvöldu í skálanum. Með í för var einnig norski sendiherrann á Íslandi Margit Tveiten.
Hópurinn var síðan fluttur úr Þórsmörk yfir Markárfljót með leyfi almannavarnarnefndar. Páll Guðmundsson framkvæmdastjóri FÍ segir að heimsóknin sé liður í auknu samstarfi félaganna en Ferðafélag Íslands hafi að undanförnu kynnt sér vel starf DNT (norska Ferðafélagsins) og þar sé margt mjög áhugavert sem FÍ geti lært af og tekið upp í sínu starfi.
,,Ferðafélag Noregs er gríðarlega öflugt félag með um 230 þúsund félagsmenn. Starfsemi þeirra er í grunninn hin sama og starf FÍ og byggir á ferðum, skálauppbyggingu, stikun og merkingu gönguleiða, útgáfustarfi og fræðslu, " Páll segir að Ferðafélag Íslands hafi í upphafi verið stofnað eftir hugmyndum frá Noregi og norska Ferðafélaginu.
16.4.2010
Náttúruverndarţing
Náttúru- og umhverfisverndarsamtök á Íslandi boða til náttúruverndarþings í hátíðarsal Menntaskólans við Hamrahlíð laugardaginn 24. apríl nk. kl. 10.00-15.30.
Náttúruverndarþing er haldið til að leiða saman alla þá sem hafa áhuga á umhverfis- og náttúruverndarmálum. Markmiðið er að skapa öflugan grundvöll samstarfs og umræðu um málefni og baráttuaðferðir náttúruverndarfólks og náttúruverndarsamtaka á Íslandi.
16.4.2010
Langir dagar á Esjunni föstudag, laugardag og sunnudag
15.4.2010
Samgöngur og landvarnir 1500-1900
Félag um átjándu aldar fræði heldur málþing laugardaginn 17. apríl þar sem m.a. verður fjallað um ferðir um fjallvegi fyrr á tíð. Málþingið ber yfirskriftina Samgöngur og landvarnir 1500-1900. Það verður haldið í Þjóðarbókhlöðu, fyrirlestrasal á 2. hæð.
Málþingið hefst kl. 13:00 og því lýkur um kl. 16:30. Flutt verða fimm erindi sem hér segir:
Sprengisandsleiðin forna, einkum á átjándu öld (Björn Teitsson sagnfræðingur);
Ferðir um Kjöl á átjándu og nítjándu öld (Eiríkur Þormóðsson handritavörður);
Fornar leiðir frá Skriðuklaustri (Steinunn Kristjánsdóttir,dósent í fornleifafræði við Háskóla Íslands og Þjóðminjasafn);
Samgöngur í Húnaþingi á átjándu og nítjándu öld (Jón Torfason skjalavörður);
Sýnilegar og ósýnilegar varnir Íslands á átjándu öld (Halldór Baldursson læknir).
Fundarstjóri verður Þóra Kristjánsdóttir list- og sagnfræðingur. Félag um átjándu aldar fræði býður málþingsgestum kaffiveitingar í hléi. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.
14.4.2010
Stjórn FÍ og gestir á leiđ til byggđa úr Ţórsmörk
Stjórn Ferðafélags Íslands og gestir þeirra ásamt öðrum ferðamönnum verða flutt yfir Markarfljót og til byggða með aðstoð björgunarsveitarinnar Dagrenningar. Eins og fram hefur komið voru nokkrir forkólfar norska ferðafélagsins í hópnum og ennfremur norski sendiherrann á Íslandi. Þetta varð til þess að Verdens Gang í Noregi fjallaði sérstaklega um Merkurför sendiherrans.
Ţessi Íslandsheimsókn hefur snúist upp í mikið ævintýri fyrir gestina frá Noregi því eldgos er sannarlega ekki hversdagslegur atburður.
14.4.2010
Stjórn FÍ og gestir kyrrsett í Langadal
Hópurinn sem dvelur í skála Ferðafélags Íslands í Langadal í Þórsmörk er í sambandi við lögreglu á Hvolsvelli og bíður átekta. Vatnavextir úr Gígjökli loka hefðbundinni leið inn í Þórsmörk.
Í morgun voru vangaveltur um að keyra yfir í Húsadal og þaðan yfir Markarfljót ofan mestu vatnavaxtanna. Eins og staðan er núna var það ekki talið til neins að fara yfir í Fljótshlíðina því þar gæti allt lokast ef vatnavextir lokuðu leiðinni Fljótshlíðarmegin.
Ólafur Örn Haraldsson, forseti Ferðafélags Íslands, segir að 38 manns séu í skála FÍ í Langadal, tólf manns úr forystu FÍ, tólf manna hópur frá norska ferðafélaginu, tíu Belgar og þrír Finnar ásamt einum Íslendingi sem er með þeim í för. Til tals hefur komið að sækja hópinn eða hluta hans með þyrlu.
Ólafur sagði að af og til sæist gosmökkurinn fara hátt í loft upp. Um klukkan ellefu í gærkvöldi hefði jörðin skolfið hressilega og skáli Ferðafélagsins í Langadal hristist duglega. Fram til klukkan eitt í nótt hefðu nokkrir kippir fundist.
„Við erum kyrrsett hérna og bíðum bara átekta,“ sagði Ólafur. „Við höfum nóg af mat og gott skap. Það er ró yfir þessu reynslumikla fólki hérna og við skiljum að í augnablikinu þurfa aðrir á meiri hjálp að halda heldur en við.“
12.4.2010
Lokađ í dag 13.apríl
8.4.2010
Slćm veđurspá fyrir Fimmvörđuháls um helgina
8.4.2010
Langir dagar á Esjunni 16. - 17. og 18. apríl
6.4.2010
Óveđur viđ gosstöđvarnar
Óveður við gosstöðvarnar
Töluverð umferð var á gosstöðvunum í gær en þó minni en dagana á undan. Veður var eins og best verður á kosið, hægviðri, léttskýjað og lítið frost. Flestir voru samankomnir á svæðinu um níuleytið í gærkvöldi til að fylgjast með gosinu í ljósaskiptunum. Umferð ökutækja af svæðinu tók að þyngjast um tíuleytið en þá var nánast bíll við bíl á Mýrdalsjökli. Á sjötta tug björgunarsveitarmanna stóð vaktina en síðasti jeppinn fór af Fimmvörðuhálsi um tvöleytið í nótt.
Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni mældust nokkrir litlir jarðskjálftar undir austurhluta Eyjafjallajökuls upp úr miðnætti. Þar undir er uppstreymi kvikunnar en gosóróinn á svæðinu er svipaður og verið hefur undanfarna daga.
Ekkert ferðaveður er við gosstöðvarnar þessa stundina en búist er við stormi á svæðinu. Þar er nú töluverð snjókoma og búist við vindhraða upp á allt að 26 metra á sekúndu. (www.ruv.is)
Ferðafélag Íslands aflýsti ferð að gosstöðvunum í gærdag vegna veðurs.
4.4.2010
Gosskođun mánudags aflýst
Ferðafélag Íslands hefur aflýst boðaðri skoðunarferð að gosstöðvunum á Fimmvörðuháls á morgun mánudag. Veðurspá mánudagsins er frekar slæm og útlit fyrir hvassa austanátt og úrkomu og lítið ekkert skyggni til gosstöðva.
Ferðir páskanna hafa fram að þessu gengið vel og mörg hundruð manns komið í Þórsmörk með Ferðafélagi Íslands og gengið með fararstjórum upp á Morinsheiði og Valahnúk til að njóta útsýnis að gosinu.
Eftir páska verður skoðunarferðum haldið áfram eftir því sem veður og aðstæður leyfa svo og framgangur eldsumbrotanna á Fimmvörðuhálsi.
Útsýni af Valahnúk til gosstöðvanna í gærkvöldi.
1.4.2010
Opiđ í Ţórsmörk á ný
Nú hefir verið opnað að nýju fyrir ferðir almennings í Þórsmörk. Dagskrá Ferðafélags Íslands um páskana verður því eins og áður var auglýst. Skrifstofan er opin kl. 8-10 alla morgna og hægt að skrá sig og greiða fyrir ferð. Mæting í ferð í Þórsmörk er kl. 8.30 og brottför í Þórsmörk kl. 9.00. Lagt upp frá FÍ í Mörkinn 6 í Reykjavík.
31.3.2010
Skrifstofa FÍ opin um páskana
31.3.2010
Dagsferđir FÍ í Ţórsmörk um páskana / gosskođunarferđir
Ţegar er fullbókað í ferð á skírdag og hratt bókast í ferðir aðra daga. Fyrstir koma, fyrstir fá.
Ekið er í Skagfjörðsskála í Langadal í Þórsmörk. Boðið er upp á gönguferðir með leiðsögn bæði á Valahnúk og upp á Morinsheiði að gosstöðvunum.
Gönguferð á Valahnúk tekur innan við klukkustund. Þaðan er gott útsýni yfir Þórsmörk og bein sjónlína að gosstöðvunumum 6 km. Gönguferð um Morinsheiði, upp Bröttufönn að gosstöðvunum tekur um 6 klst. og er um allbratt land á köflum að fara. Vegalengdin er 10 km. fram og til baka og hækkun nemur 800-900 metrum.
Nauðsynlegt er að vera vel búinn í ferðinni, með góðan hlífðarfatnað, góða gönguskó og nesti. Frost getur náð 15-18 stigum efst á fjallinu.
Brottför úr Þórsmörk er kl. 10 um kvöldið svo fólk geti séð eldgosið í myrkri og því nauðsynlegt að hafa nægt nesti til heils dags.
Verð í ferðina er kr. 10.000 / 12.000. Frítt fyrir börn og unglinga yngri en 16 ára. Skráning og greiðsla á skrifstofu FÍ.
31.3.2010
Páskahátíđ í Esjuhlíđum
Samstarf Esjustofu og Ferðafélags Íslands
2. apríl föstudagurinn langi kl:14:00
Hátíðarmessa við Esjustofu. Gunnar Kristjánsson sóknarprestur í Brautarholtskirkju messar. Eftir messu verður gengið að Steini við Þverfellshorn undir forustu Þórðar Marelssonar
3. apríl laugardagur kl:11:00
Páskaeggjaleit í Esjuhlíðum, Heyrst hefur að nokkur egg séu af stærstu gerð! Ganga undir forustu Þórðar Marelssonar, í átt að Gunnlaugsskarði, og jafnvel upp í skarð, jafnvel alla leið, fer eftir veðri og vindum.
4. apríl sunnudagur páskadagur kl:11:00
Gengið upp að Steini undir forystu Þórðar Marelssonar, létt morgunganga.
Útitónleikar við Esjustofu, gítarleikur og söngur fjallamannsins fríska.
5. apríl mánudagur annar í páskum
Óvissuferð í Esjunni kl. 11:00, mæting við Esjustofu, undir stjórn Þórðar Marelssonar
Daglega verður dregið út að borða fyrir 2. í Esjustofu
Vertu með í góðri Esjugöngu
30.3.2010
Opiđ inn í Ţórsmörk
Vegurinn inn í Þórsmörk verður opnaður fyrir umferð á hádegi í dag. Ferðafélag Íslands er með skálaverði og leiðsögumenn í Langadal og þar geta ferðamenn fengið leiðsögn og ráðgjöf og leitað gistingar. Verslunin í Langadal verður einnig opin. Helga Garðarsdóttir, Þórhallur Ólafsson og Broddi Hilmarsson eru til þjónustu reiðubúin.
Boðið verður upp á gönguferðir upp á Valahnúk sem er afbragðs góður útsýnisstaður til eldstöðvanna en einnig verður hægt að fá leiðsögn upp á Morinsheiði og Bröttufönn og standa þar í návígi við eldgos og hraunfossa.
Vegurinn inn í Þórsmörk er úfinn og torfær eftir vatnavexti og umhleypinga vetrarins og að mati Almannavarna aðeins fær breyttum jeppum og öflugum rútum. Umferð er ekki leyfð inn í Hvannárgil eða Hrunagil.
Búast má við mikilli umferð inn í Mörk næstu daga en veðurspá er hagstæð til skoðunarferða upp að gosinu.
29.3.2010
Yfirlit yfir gönguleiđina á Fimmvörđuháls
Jakob Hálfdánarson félagi í Ferðafélaginu hefur unnið nokkrar glærur sem sýna kennileiti á gönguleiðinni og staðsetningu gossins. Glærurnar gefa ágæta mynd af leiðinni.
29.3.2010
Frćđslukvöld um Fimmvörđuháls
Miðvikudagskvöldið 31. mars heldur Ferðafélag Íslands fræðslukvöld um eldgosið á Fimmvörðuhálsi. Þar koma Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur og Steinunn Jakobsdóttir jarðeðlisfræðingur og skýra í máli og myndum frá eldgosinu, þróun þess og líklegri framvindu.
Haraldur Sigurðsson er heimsþekktur eldfjallafræðingur sem hefur á langri starfsævi unnið að rannsóknum á eldfjöllum víða um heiminn og sett fram kenningar og niðurstöður sem vakið hafa athygli um víða veröld. Haraldur hefur sett á fót Eldfjallasafnið í Stykkishólmi og veitir því forstöðu auk þess að sinna rannsóknum og fyrirlestrahaldi.
Haraldur heldur úti síðu á netinu um eldfjöll og virkni þeirra.
Steinunn Jakobsdóttir jarðeðlisfræðingur er verkefnastjóri jarðváreftirlits á Veðurstofu Íslands en sú stofnun vakir yfir öllum eldfjöllum Íslands.
Fræðslukvöldið hefst kl. 20.00 og aðgangur er ókeypis og öllum heimill meðan húsrúm leyfir. Ekki eru kaffiveitingar eins á á myndakvöldum félagsins.
27.3.2010
Útsýnisferđ á Ţórólfsfell-eldur í ljósaskiptum
Ferðafélag Íslands efnir til útsýnisferðar á Þórólfsfell í Fljótshlíð á morgun sunnudag. Brottför er úr Mörkinni 6 með rútum kl. kl.16.00. Þórólfsfell er innst í Fljótshlíð og þaðan er bein sjónlína til gosstöðvanna. Stefnt er að því að fylgjast með umbrotunum í ljósaskiptunum en allir sem séð hafa segja þá sjón sérstaklega tilkomumikla.
Gengið verður á Þórólfsfellið sem er hæg ganga og mun taka um klukkustund. Nauðsynlegt er að vera á góðum skóm, með göngustafi og vel klæddur því norðanáttin er köld. Heitt á brúsa og sætmeti í nesti er auðvitað meðferðis og góður sjónauki gæti komið sér vel.
Verð í ferðina er 5000 krónur en ókeypis fyrir börn og unglinga yngri en 16 ára. Yfirleiðsögumaður ferðarinnar er Leifur Þorsteinsson, þrautreyndur fararstjóri FÍ til margra ára. Honum til aðstoðar á göngu á fjallið verða eins margir fararstjórar og þarf.
Búast má við að leiðangurinn snúi ekki til Reykjavíkur aftur fyrr en seint um kvöldið.
26.3.2010
Gosmökkurinn sést af Esjunni
Í gær, 25. mars. gekk hópur undir fararstjórn Þórðar Marelssonar á Esjuna. Strax upp við stein og síðar á Þverfellhorni sá hópurinn vel gosmökk og gufur sem stíga upp frá gosstöðvunum á Fimmvörðuhálsi. Ætla má að á meðan veður helst gott verði hægt að sjá gosmökkinn stíga frá eldstöðinni úr töluverði fjarlægð. Þetta er skemmtileg viðbót við annars frábært útsýni af Esjunni.
26.3.2010
Veginum inn í Landmannalaugar hefur veriđ lokađ
Vegna hættu á aurbleytu og utanvegaakstri hefur veginum inn í Landmannalaugar verið lokað og allur akstur um hann bannaður. Ferðamenn sem áhuga hafa á því að ferðast um hálendisvegi er bent á að hafa samband við Vegagerðina í síma 1777 vegna lokanna á fleiri hálendisvegum.
24.3.2010
Heimilt ađ fara gangandi á Fimmvörđuháls
24.3.2010
Frćđslukvöld FÍ um gosiđ á Fimmvörđuháls
24.3.2010
Árbók FÍ 2009 tilnefnd til bókmenntaverđlaun Hagţenkis
24.3.2010
Skíđaferđum aflýst
Skíðaferðum aflýst
22.3.2010
"Fylgjumst grannt međ framvindu mála"
"Við fylgjumst grannt með framvindu mála í gosinu á Fimmvörðuhálsi," segir Ólafur Örn Haraldsson forseti Ferðafélagsins.
"Við hvetjum alla ferðalanga til að gæta fyllsta öryggis og fara að fyrirmælum almannavarna. Við höfum vakandi auga með framvindu mála ekki síst vegna þeirra eigna Ferðafélagsins sem eru í námunda við gosið. Enn sem komið er virðist sem betur fer ekki stafa nein hætta að þeim."
Minnt skal á að vegurinn inn í Þórsmörk er enn lokaður og ekkert sem bendir til að því verði aflétt um sinn. Gosið tekur stöðugum breytingum og án efa fylgjast allir áhugamenn um náttúru Íslands spenntir með.
21.3.2010
70 fengu páskaegg
70 manns tóku þátt í páskaeggjagöngu Ferðafélags Íslands og Góu á Móskarðshnúka í vonskuveðri i dag. Allhvass vindur var af austri og gekk á með dimmum éljum. Jókst veðurhæðin talsvert eftir því sem ofar dró og varla stætt í hviðum þegar komið var upp á brún. Allstór hluti hópsins gekk þó að heita má alla leið en nokkrir sneru frá við Bláhnúk. En allir fengu páskaegg að launum og konan á myndinni var svo heppin að fá þetta risaegg í sérstöku happdrætti að lokum.
21.3.2010
Húsfyllir á myndakvöldi
Christopher Lund og Haukur Snorrason troðfylltu sal Ferðafélags Íslands á myndakvöldi í gærkvöldi. Myndir þeirra félaga vöktu mikla athygli og aðdáun, sérstaklega myndir Lunds frá Langasjó og nágrenni. Loftmyndir Hauks fengu einnig sterk viðbrögð og líflegar frásagnir þeirra félaga kölluðu á fjölda spurninga úr sal. Firnagóð stemmning og fróðleikur að ógleymdum kaffiveitingum í hléi. Talnaglöggir töldu að rúmlega 200 manns hefðu verið á staðnum.
18.3.2010
Útivera kemur út á ný
Útivera mun eins og áður fjalla um útiveru, ferðalög, fjallgöngur og íslenska náttúru í sem víðustum skilningi.
16.3.2010
Fyrirlestur um ferđ á Everest
8.3.2010
Ferđafélag Austur-Skaftfellinga 30 ára
Félagið rekur einn skála, Múlaskála í Lónsöræfum og hefur gistináttum þar fjölgað verulega milli ára og mikið bókað í sumar.
Sunnudaginn 14. mars kl. 14.00 verður afmæliskaffi í Nýheimum á Höfn þar sem félagsmenn og velunnarar fagna saman og deila minningum og myndum. Dregið verður í lukkuleik Strandgöngu sem staðið hefur yfir og ferðadagskrá komandi sumars kynnt.
3.3.2010
Útivist eldri og heldri borgara
Á fimmtudögum hittast menn og konur svo við Nauthól í Nauthólsvík kl. 14.00 og þaðan liggja stígar meðfram sjónum í báðar áttir og hlykkjast ennfremur um alla Öskjuhlíðina.
Ferðafélagið leggur til fararstjóra í þessar gönguferðir og hefur Alfreð Hilmarsson tekið þetta verkefni að sér fyrir félagið en Alfreð er vaskur göngugarpur sem er enn léttur á fæti þótt árunum fjölgi. Þetta verkefni er unnið í samvinnu við Valitor sem hefur átt náið og gott samstarf við Ferðafélag Íslands í nokkur ár.
Allar rannsóknir sýna að fátt er betri heilsubót til sálar og líkama en að taka sér hressandi gönguferð með skemmtilegu fólki. Í þessum ferðum er vegalengd og gönguhraði stilltur í samræmi við virðuleika þátttakenda og meðalaldur hópsins hverju sinni.
25.2.2010
Námskeiđ um Vatnajökulsţjóđgarđ
25.2.2010
Innbrot í bíla á útivistarsvćđum
24.2.2010
Esjan fjóra daga í röđ
FÍ fjör í Esjunni - vertu til er vorið kallar á þig er hafið en það felst í því að ganga á Esjuna fjóra daga í röð. Í gær, þriðjudag fór hópurinn upp í allhvössum vindi en ágætlega björtu veðri. Mönnum þótti talsvert streð að baksa upp með vindinn í fangið og var því látið nægja að fara upp að Steini.
Í dag miðvikudag verður haldið áfram og ástæða til að hvetja fólk til að mæta í þetta hressilega verkefni. Veðurspáin fyrir daginn er áhugaverð, spáð er norðlægri átt og síðdegis gæti orðið einhver ofankoma. En gott skap og hlýr fatnaður er rétta veganestið í fjallgöngur að vetri.
Fararstjóri er Þórður Marelsson. Lagt er af stað frá Esjustofu kl. 18 alla daga. Takið með ykkur höfuðljós og góðan búnað.
23.2.2010
Fjallabók FÍ - ţátttakendur 2009
Sl. ár stóð Ferðafélag Íslands fyrir verkefni þar sem þátttakendur söfnuðu fjöllum í til þess gerða Fjallabók FÍ. Nú hefur póstkassinn sem hefur að geyma allar Fjallabækur ársins 2009 verið opnaður og er nöfn þátttakenda og þeirra sem skráðu niður 10 fjöll sem þeir gengu á árinu að finna hér að neðan. Þáttakendur fá í verðlaun FÍ buff, FÍ spilastokk og fræðslurit að eigin vali.
Aðalheiður Stefánsdóttir, Anna Lára Eðvarðsdóttir, Borgþór Harðarson, Corina Hoffmann, Elínborg Kristinsdóttir, Erlingur Jensson, Fanney Bj. Karlsdóttir, Halla Rún Erlingsdóttir, Hanna María Þorgeirsdóttir, Heiðdís Lilja Erlingsdóttir, Ingibjörg Sveinsdóttir, Jónína Pálsdóttir, Katrín Haraldsdóttir, Margrét Hallgrímsdóttir, Ómar Smári Kristinsson, Sigríður Lóa Jónsdóttir, Sigurður E. Kristjánsson, Snæfríður M. Björnsdóttir, Sveinn B. Sveinsson, Trausti Sigurðsson, Þórhallur Hálfdánarson.
23.2.2010
Áhugavert blogg um náttúruvernd
Undanfarna daga hafa birst þar nokkrar færslur þar sem fjallað er um náttúruvernd og utanvegaakstur í víðu samhengi, viðhorf manna til náttúrunnar og verndar hennar.
Snarpar umræður hafa orðið í athugasemdakerfi síðunnar þar sem sitt sýnist hverjum en ljóst af viðbrögðum að hér er á ferðinni málefni sem fólki er mjög hugfólgið.
"Mér finnst vert að reyna að ræða þessi mál og reyna að vekja fólk til umhugsunar," sagði Páll Ásgeir í samtali við heimasíðu FÍ.
Slóðin á bloggsíðu Páls Ásgeirs http://blog.eyjan.is/pallasgeir/ og þar geta áhugasamir lesið umræddar færslur.
21.2.2010
Nú er frost á fróni
21.2.2010
Ástarpungar og kleinur
Ţrír fjallahópar FÍ gengu á fjöll í gærdag, Austurbær gekk á Móskarðshnúka, Vesturbær gekk á Skálafell og Nágrannar gengu á Húsfell, alls um 150 manns. Sjá myndir í myndabanka FÍ með því að smella á nöfn hópanna.
18.2.2010
Fjallaskíđanámskeiđ
Mæting í Mörkinni kl 08:00
Einn dagur á fjöllum þar sem að farið er yfir grunn þætti fjallaskíðamennsku s.s mat á snjóflóðahættu, snjóflóðaleit, uppsetningu á öruggri leið og almenna vetrarfjallamennsku.
Ţetta örnámskeið er ætlað sem verkleg kynning á sportinu og fer fram í nágrenni borgarinnar þar sem aðstæður eru bestar á þeim tímapunkti.
Fjallaskíða og öryggisbúnaður fæst leigður á staðnum fyrir þá sem ekki eiga. Verð: 15.000.- Utan búnaðar
18.2.2010
Fjallaskíđamennska í samstarfi viđ Jökul Bergmann
Jökull Bergmann sýnir magnaðar myndir og videó þar sem fjallaskíðamennska er í aðalhlutverki,ásamt því sem fólki gefst tækifæri til að skoða allan þann sérhæfða búnað sem fylgir sportinu og fá ráðleggingar frá eina faglærða fjallaleiðsögumanni landsins. Spennandi tækifæri til þess að kynna sér þetta magnaða sport.
Allur ágóði rennur í viðgerðasjóð vegna endurbóta á Bratta, skála Íslenska Alpaklúbbsins í Botnsúlum sem er kjörin áfangastaður fjallaskíðafólks á suð vestur horninu.Verð: 500.- eða frjáls framlög
18.2.2010
Ađsóknarmet á myndakvöldi
Hinar sívinsælu kaffiveitingar voru á sínum stað. Sigurvegari í ljósmyndasamkeppni FÍ tók á móti verðlaunum og menn hittu gamla ferðafélaga, treystu vinaböndin og skiptust á skoðunum og fréttum úr heimi fjallaferða og útivistar.
15.2.2010
Niđurstađa dómnefndar í ljósmyndasamkeppni FÍ

Nú hefur dómnefnd skilað inn niðurstöðu í ljósmyndasamkeppni FÍ sem haldin var fyrir áramót. Vinningsmyndin var tekin í Langadal í Þórsmörk og ljósmyndarinn er Ármann Guðjónsson.
Í texta ljósmyndara með myndinni segir:, ,, Mynd tekin við bústað skálavarða í Langadal 23. ágúst, lítill sætur yrðlingur hvílir sig í sólinni,"
Í niðurstöðuorðum dómnefndar segir:
"Dómnefnd þótti myndin hafa til að bera það þrennt sem hæfir góðri náttúrumynd; sterka mynduppbyggingu, fallega birtu og hún er tekin á réttu augnabliki. Þá leiðir grunnur fókus (dýptarskerpa) myndarinnar augu áhorfandans beint í auga dýrsins og skapar þannig umsvifalaust tengingu við viðfangsefnið. Þá er tófan táknmynd náttúru Íslands sem eina villta spendýrið á landinu."
14.2.2010
Pönnukökur og kleinur á Móskarđshnúkum
14.2.2010
FÍ Í FJALLINU
Sjá myndir í myndabanka FÍ
12.2.2010
Ferđafélagar, útivistarunnendur og fjallagarpar bođnir á sýningu í World Class Laugum
Sjá skilti
10.2.2010
FÍ fjör í Esjunni nćstu mánuđi
Ferðafélag Íslands býður upp á FÍ fjör í Esjunni næstu mánuði. Um er að ræða ókeypis gönguferðir með fararstjórn á Esjuna, nokkrar ferðir í mánuði fram á sumar. FÍ fjör er því tilvalinn vettvangur fyrir ferðafélaga sem eru að undirbúa verkefni sumarins, hvort heldur krefjandi fjallgöngu á Hvannadalshnúk eða sumarleyfisferð. FÍ fjör verður undir nokkrum fyrirsögnum eftir mánuði og er fyrsta FÍ fjör prógrammið undir heitinu ,,vertu til er vorið kallar á þig," í tilefni af veðurblíðunni undanfarið. Fararstjóri er Þórður Ingi Marelsson.
10.2.2010
Ferđafélag Ísafjarđar endurvakiđ
7.2.2010
Stórir hópar á ţremur fjöllum og göngugleđin á fjórđa.
Ţrír stórir hópar voru í dag á þremur fjöllum í verkefninu ,,Eitt fjall á viku." Þáttakendum hefur nú verið skipt niður í þrjá hópa, austurbæ, vesturbæ og nágranna. Einhver kom með þá hugmynd að nágrannar yrðu kallaðir þorparar, en nágrannanafnið stendur enn um sinn. Göngugleðin var fjórði hópurinn frá FÍ í dag á fjöllum en myndarlegur hópur hélt á Hvalfell á meðan hóparnir þrír gengu á Skálafell, Móskarðshnúka og Húsfell.
Sjá myndir á myndabanka FÍ
4.2.2010
Eitt fjall á viku, sunnudagur 7. febrúar,
3.2.2010
Eins og heitar lummur
"Ég man ekki eftir öðrum eins viðtökum," sagði Páll Guðmundsson framkvæmdastjóri Ferðafélags Íslands. Frá því að áætlun FÍ var dreift til félagsmanna og almennings s.l föstudag hefur síminn á skrifstofu félagsins ekki hætt að hringja. Á fáeinum dögum eru 6-8 ferðir algerlega uppseldar og óðum að fyllast í nokkrar í viðbót.
Hinn sívinsæli Laugavegur milli Landmannalauga og Þórsmerkur selst hraðast en Hornstrandaferðir njóta einnig mikilla vinsælda svo og háfjallagöngur á Hvannadalshnúk, Hrútfjallstinda og Þverártindsegg.
2.2.2010
Námskeiđ; vetrarferđir og fjallamennska
FÍ býður upp á námskeið 6. - 7. febrúar sem hugsað er sem kynning á vetrarferða- og fjallamennsku fyrir útivistarfólk sem vill víkka sjóndeildarhringinn og takast á við vetraraðstæður. Farið er yfir grundvallaratriði s.s. leiðarval, mat á snjóflóðahættu, veðurfræði, göngu og klifur á mannbroddum, notkun ísaxa og annars öryggisútbúnaðar. Námskeiðið er fyrir alla í ágætis líkamlegu formi og engrar reynslu af vetraferðamennsku er krafist. Námskeiðið fer fram í Skíðadal á Tröllaskaga og verður einn af fjölmörgum tindum svæðisins klifinn á námskeiðinu. Umsjónarmaður er Jökull Bergmann.
2.2.2010
Göngu- og fjallaćfingar fyrir ferđafélaga
30.1.2010
,,Eigum ađ vera hugsjónafélag," segir forseti FÍ
„Mikið líf og fjör er í stafsemi Ferðafélags Íslands þessi misserin og starfið fjölbreytt,
skemmtilegt og gefandi. Þar kemur til stóraukinn áhugi fólks á útveru og ferðalögum en ekki síður að almenningur telur grunngildin í starfsemi félagsins nú eiga erindi við sig," segir Ólafur Örn Haraldsson forseti Ferðafélags Íslands í tilefni af útgáfu ferðaáætlunar FÍ.
30.1.2010
,,Hressilegar áskoranir," segir formađur ferđanefndar
Margar nýungar eru í ferðaáætlun Ferðafélags Íslands fyrir árið 2010. Má þar nefna nokkrar sumarleyfisferða félagsins hafa ekki áður verið á dagskrá og einnig er boðið upp á fjölmargar helgar- og dagsferðir sem ekki hafa boðist áður. Nýjungar eru dæmis daglegar jökulgöngur úr Þórsmörk á Eyjafjallajökul snemma sumars og einnig ferðir um Friðland að fjallabaki sem er umfjöllunarefni Árbókar FÍ í ár. „Yngra fólk leitar í auknum mæli til okkar og er opið fyrir hressilegum áskorunum, eins og verkefninu 52 fjöll sem við fórum af stað með í ársbyrjun. Ferðafélagið mætir vaxandi áhuga yngra fólks með mikilli ánægju," segir Sigrún Valbergsdóttir formaður ferðanefndar Ferðafélags Íslands.
30.1.2010
Mikill áhugi og eitthvađ viđ allra hćfi
skynjað þennan aukna áhuga nú sl. ár en sumarið 2009 var metár hin síðari ár hjá félaginu, " segir Páll Guðmundsson framkvæmdastjóri FÍ. ,, Í nýútkominn ferðaáætlun er boðið upp á fjölbreyttar ferðir, allt frá léttum gönguferðum í byggð yfir í erfiðar fjallgöngur á hæstu tinda landsins, og allt frá barnavagnagöngum yfir í eldri borgara ferðir, þannig að allir eiga að geta fundið eitthvað við sitt hæfi í ferðaáætlunni, "segir Páll
24.1.2010
156 göngugarpar á Mosfell í roki og rigningu.
Myndir úr eiit fjall á viku - Mosfell eru nú komnar á myndabanka FÍ. Tæplega 160 þátttakendur tóku þátt í gönguferðinni í dag í rigningu og sudda og sást lítið til næstu fjalla af tindi Mosfells.
23.1.2010
Nýársglađningur FÍ til félagsmanna
Ferðafélag Íslands hefur náð hagstæðum samningum við Cintamani og býður nú öllum félagsmönnum sínum glæsilega Cintamani peysu úr techno - strechts með merki FÍ og íslenska fánanum í saumað á kr. 10.000 en söluvirði slíkrar peysu úr verslun er kr. 22.000. Aðeins er um einn lit að velja, sérstakan Ferðafélagslit, fallega blár. Félagsmenn geta pantað peysu á skrifstofu félagsins fyrir 10. febrúar. Hægt er að máta peysur á skrifstofunni Mörkinni 6 og skoða litinn á peysunni.
21.1.2010
Stofnun áhugamannafélags um jarđfrćđi
21.1.2010
Húsfyllir á myndakvöldi
Páll Ásgeir Ásgeirsson sýndi myndir úr skíðaferðum um Síðuafrétt og inn í Öskju veturna 2008 og 2009. Fjöldi gesta endurspeglar mikinn áhuga á ferðum af þessu tagi og nokkrar umræður urðu um búnað og skipulag í ferðum af þessu tagi.
17.1.2010
Eitt fjall á viku - Úlfarsfell - myndir
Tæplega 150 göngugarpar tóku þátt í gönguferð FÍ í morgun á Úlfarsfell í verkefninu ,, Eitt fjall á viku." Myndir úr gönguferðinni eru komnar á myndabanka FÍ hér á heimasíðunni, sjá hér
14.1.2010
Borgaraganga Hornstrandafara FÍ
Árleg BORGARGANGA Hornstrandafara Ferðafélags Íslands verður sunnudaginn 17. janúar 2010.
Mæting kl 10:30 við innganginn í sal F. Í., Mörkinni 6.
Að lokinni kynningu aka þátttakendur á eigin bílum að upphafsstað göngu, sem er miðsvæðis í Reykjavík.
10.1.2010
Fjölmenni í fyrstu göngunni: ,,Eitt fjall á viku,"
Alls tóku 147 þátttakendur þátt í fyrstu göngu Ferðafélags Íslands í verkefninu Eitt fjall á viku sem hófst í morgun með gönguferð á Helgafell. Að auki voru þó nokkrir sem höfðu lagt af stað á undan hópnum og nokkrir komu of seint en alls voru því um 180 manns á ,,tindi" Helgafells. Aðstæður voru góðar og veður millt og fallegt. Páll Guðmundsson fararstjóri segir ánægjulegt að sjá hvað aldurshópurinn var breiður; ,, yngsti þátttakandinn Viktor Aron var sjö en elsti 70 árum eldri eða 77 ára. Næsta ganga er sunnudaginn 17. janúar en skráningu lýkur 20. janúar. ,, Á Helgaf"elli hrópuðum við fimmfallt húrra fyrir fjallinu og töldum upp í 52 og niður aftur en í verkefninu ætlum við að ganga á 52 fjöll og nú eru bara 51 eftir," Sjá myndir
10.1.2010
Borgaraganga Hornstrandafara FÍ
10.1.2010
Ólafur Örn verđur framkvćmdastjóri Ţingvallanefndar
9.1.2010
Eitt fjall á viku - Helgafell fyrsta ganga
Á morgun sunnudaginn 10. janúar verður gengið á Helgafell ofan Hafnarfjarðar í verkefinu ,,Eitt fjall á viku." Lagt er af stað frá bílastæðinu við Kaldársel kl. 11.00. Þegar ekið er á leið út úr Hafnarfjarðarbæ til Keflavíkur er skilti merkt Kaldársel sem vísar veginn og er ekið framhjá hesthúsahverfi Hafnarfjarðar áleiðis að Helgafelli en annað skilti merkt Kaldárseli vísar veginn. Gera má ráð fyrir 20 - 30 mínútum í akstur úr Reykjavík að Kaldárseli. Lagt er af stað í gönguna stundvíslega kl. 11. Áætlaður göngutími á fjallið og til baka að bílastæði eru tæpir tveir tímar. Mætið vel búin, í góðum gönguskóm og útivistarfatnaði, með húfu og vettlinga. Gott er að hafa bakpoka með nestisbita og drykk. Ferðafélagið gefur kost á tveimur prufugöngum í verkefninu en staðfesta þarf þátttöku með greiðslu fyrir 20. janúar. Þeir sem vilja sameinast í bíla geta hist í Mörkinni 6 kl. 10.30 eða við bensínstöð N - 1 í Hafnarfirði við ´Reykjanesbraut kl. 10.45
7.1.2010
Eitt fjall á viku - upplýsingar
Hér má finna upplýsingar um verkefnið ,,Eitt fjall á viku". Föstudaginn 8. janúar opnar linkur á heimasíðu FÍ með öllum upplýsingum verkefnið, fjöllin 52, dagssetningar og tíma, brottfararstaði, búnað ofl.
Linkurinn verður www.fi.is/eittfjall og opnar kl. 14 9. janúar.
7.1.2010
Hátt í fimmhundruđ manns á kynningu FÍ ,,eitt fjall á viku"
5.1.2010
Ţrettándagleđi í Grafarvogi - Ferđafélag barnanna
Hin árlega þrettándagleði Grafarvogsbúa verður haldin miðvikudaginn 6. janúar. Ferðafélag barnanna mætir á svæðið og tekur þátt í dagskránni sem er eftirfarandi: kl. 17: kakó- og kyndlasala í Hlöðunni, skólahljómsveit Grafarvogs leikur létt lög. kl. 17.30 Blysför undirbúin við Hlöðuna; álfakóngur, Grýla, jólasveinar og aðrar kynjaverur sjá um að kveikja í brennunni. kl. 18. Gengið aftur niður að Hlöðunni þar sem verður fjöldasöngur og önnur skemmtilegheit. Fólk er hvatt til að taka með sér restar af flugeldum og skjóta upp á sérmerktu svæði. Bílastæði við Gylfaflöt og Bæjarflöt.
4.1.2010
Eitt fjall á viku - nýársverkefni Ferđafélags Íslands
Nýjar auglýsingar
Leit
Mynd























