Beint á leiđarkerfi vefsins
Fara á forsíđu

Fréttir

Fréttir FÍ - RSS

30.1.2010

,,Eigum ađ vera hugsjónafélag," segir forseti FÍ

„Mikið líf og fjör er í stafsemi Ferðafélags Íslands þessi misserin og starfið fjölbreytt, skemmtilegt og gefandi.  Þar kemur til stóraukinn áhugi fólks á útveru og ferðalögum en ekki síður að almenningur telur grunngildin í starfsemi félagsins nú eiga erindi við sig," segir Ólafur Örn Haraldsson forseti Ferðafélags Íslands í tilefni af útgáfu ferðaáætlunar FÍ.

30.1.2010

,,Hressilegar áskoranir," segir formađur ferđanefndar

Margar nýungar eru í ferðaáætlun Ferðafélags Íslands fyrir árið 2010. Má þar nefna nokkrar sumarleyfisferða félagsins hafa ekki áður verið á dagskrá og einnig er boðið upp á fjölmargar helgar- og dagsferðir sem ekki hafa boðist áður. Nýjungar eru dæmis daglegar jökulgöngur úr Þórsmörk á Eyjafjallajökul snemma sumars og einnig ferðir um Friðland að fjallabaki sem er umfjöllunarefni Árbókar FÍ í ár. „Yngra fólk leitar í auknum mæli til okkar og er opið fyrir hressilegum áskorunum, eins og verkefninu 52 fjöll sem við fórum af stað með í ársbyrjun. Ferðafélagið mætir vaxandi áhuga yngra fólks með mikilli ánægju," segir Sigrún Valbergsdóttir formaður ferðanefndar Ferðafélags Íslands.

30.1.2010

Mikill áhugi og eitthvađ viđ allra hćfi

,,Það er ánægjulegt að sjá aukinn áhuga landsmanna á gönguferðum, fjallgöngurm og útiveru almennt.  Við höfum skynjað þennan aukna áhuga nú sl. ár en sumarið 2009 var metár hin síðari ár hjá félaginu, " segir Páll Guðmundsson framkvæmdastjóri FÍ.  ,, Í nýútkominn ferðaáætlun er boðið upp á fjölbreyttar ferðir, allt frá léttum gönguferðum í byggð yfir í erfiðar fjallgöngur á hæstu tinda landsins, og allt frá barnavagnagöngum yfir í eldri borgara ferðir, þannig að allir eiga að geta fundið eitthvað við sitt hæfi í ferðaáætlunni, "segir Páll

24.1.2010

156 göngugarpar á Mosfell í roki og rigningu.

DSC_0226 by Ferdafelag Islands.

Myndir úr eiit fjall á viku - Mosfell eru nú komnar á myndabanka FÍ. Tæplega 160 þátttakendur tóku þátt í gönguferðinni í dag í rigningu og sudda og sást lítið til næstu fjalla af tindi Mosfells.

23.1.2010

Nýársglađningur FÍ til félagsmanna

Silja-120Ferðafélag Íslands hefur náð hagstæðum samningum við Cintamani og býður nú öllum félagsmönnum sínum glæsilega Cintamani peysu úr techno - strechts með merki FÍ og íslenska fánanum í saumað á kr. 10.000 en söluvirði slíkrar peysu úr verslun er kr. 22.000.  Aðeins er um einn lit að velja, sérstakan Ferðafélagslit, fallega blár. Félagsmenn geta pantað peysu á skrifstofu félagsins fyrir 10. febrúar.  Hægt er að máta peysur á skrifstofunni Mörkinni 6 og skoða litinn á peysunni.

21.1.2010

Stofnun áhugamannafélags um jarđfrćđi

Hugmyndin er að hittast nokkrum sinnum á ári, ýmist á fræðslufyrirlestrum eða í vettvangsferðum, og leita til sérfræðinga um að koma með innlegg, allt eftir áhuga og/eða aðstæðum hverju sinni, t.d. ef einhverjir þeir atburðir verða sem kalla á að um þá sé fjallað. Við viljum að yfirbyggingin verði sem allra minnst og reglur félagsins einfaldar í sniðum, svo jafnvel verði hægt að komast hjá því að leggja á félagsgjöld og halda utanum slík leiðindi. Þetta á bara að vera gaman.

21.1.2010

Húsfyllir á myndakvöldi

Um 150 manns mættu á myndakvöld Ferðafélags Íslands á miðvikudagskvöld. Þar voru sýndar myndir úr skíðaferðum um fjöll og jökla að vetrarlagi. Einar Ragnar Sigurðsson sýndi myndir úr ferðum um Laugaveginn á skíðum og ferð þvert yfir Vatnajökul sumarið 1997.
Páll Ásgeir Ásgeirsson sýndi myndir úr skíðaferðum um Síðuafrétt og inn í Öskju veturna 2008 og 2009. Fjöldi gesta endurspeglar mikinn áhuga á ferðum af þessu tagi og nokkrar umræður urðu um búnað og skipulag í ferðum af þessu tagi.

17.1.2010

Eitt fjall á viku - Úlfarsfell - myndir

Ulafarsfell-jan-2010

Tæplega 150 göngugarpar tóku þátt í gönguferð FÍ í morgun á Úlfarsfell í verkefninu ,, Eitt fjall á viku."  Myndir úr gönguferðinni eru komnar á myndabanka FÍ hér á heimasíðunni, sjá hér 

14.1.2010

Borgaraganga Hornstrandafara FÍ

Árleg BORGARGANGA Hornstrandafara Ferðafélags Íslands verður sunnudaginn 17. janúar 2010.
Mæting kl 10:30 við innganginn í sal F. Í., Mörkinni 6.
Að lokinni kynningu aka þátttakendur á eigin bílum að upphafsstað göngu, sem er miðsvæðis í Reykjavík.

10.1.2010

Fjölmenni í fyrstu göngunni: ,,Eitt fjall á viku,"

Helgafell-jan-2010Alls tóku 147 þátttakendur þátt í fyrstu göngu Ferðafélags Íslands í verkefninu Eitt fjall á viku sem hófst í morgun með gönguferð á Helgafell. Að auki voru þó nokkrir sem höfðu lagt af stað á undan hópnum og nokkrir komu of seint en alls voru því um 180 manns á ,,tindi" Helgafells.  Aðstæður voru góðar og veður millt og fallegt.  Páll Guðmundsson fararstjóri segir ánægjulegt að sjá hvað aldurshópurinn var breiður;  ,, yngsti þátttakandinn Viktor Aron var sjö en elsti 70 árum eldri eða 77 ára. Næsta ganga er sunnudaginn 17. janúar en skráningu lýkur 20. janúar. ,, Á Helgaf"elli hrópuðum við fimmfallt húrra fyrir fjallinu og töldum upp í 52 og niður aftur en í verkefninu ætlum við að ganga á 52 fjöll og nú eru bara 51 eftir,"   Sjá myndir

10.1.2010

Borgaraganga Hornstrandafara FÍ

Árleg nýársganga Hornstrandaafara Ferðafélags Íslands veður farin 17. jánúar nk.

10.1.2010

Ólafur Örn verđur framkvćmdastjóri Ţingvallanefndar

Ólafur Örn Haraldsson forseti Ferðafélags Íslands hefur verið ráðinn í starf framkvæmdastjóra Þingvallanefndar og þjóðgarðsvarðar á Þingvöllum. Þetta var samþykkt einróma á fundi Þingvallanefndar í gær samkvæmt tilkynningu frá nefndinni. 78 manns sóttu um starfið. Ólafur lauk um síðastliðin áramót störfum sem verkefnisstjóri þjónustumiðstöðvar vegna jarðskjálfta á Suðurlandi og jarðskjálftasjóðs.

9.1.2010

Eitt fjall á viku - Helgafell fyrsta ganga

Á morgun sunnudaginn 10. janúar verður gengið á Helgafell ofan Hafnarfjarðar í verkefinu ,,Eitt fjall á viku." Lagt er af stað frá bílastæðinu við Kaldársel kl. 11.00.  Þegar ekið er á leið út úr Hafnarfjarðarbæ til Keflavíkur er skilti merkt Kaldársel sem vísar veginn og er ekið framhjá hesthúsahverfi Hafnarfjarðar áleiðis að Helgafelli en annað skilti merkt Kaldárseli vísar veginn.  Gera má ráð fyrir 20 - 30 mínútum í akstur úr Reykjavík að Kaldárseli.   Lagt er af stað í gönguna stundvíslega kl. 11.  Áætlaður göngutími á fjallið og til baka að bílastæði eru tæpir tveir tímar.  Mætið vel búin, í góðum gönguskóm og útivistarfatnaði, með húfu og vettlinga.  Gott er að hafa bakpoka með nestisbita og drykk.  Ferðafélagið gefur kost á tveimur prufugöngum í verkefninu en staðfesta þarf þátttöku með greiðslu fyrir 20. janúar.  Þeir sem vilja sameinast í bíla geta hist í Mörkinni 6 kl. 10.30 eða við bensínstöð N - 1 í Hafnarfirði  við ´Reykjanesbraut kl. 10.45

7.1.2010

Eitt fjall á viku - upplýsingar

Hér má finna upplýsingar um verkefnið ,,Eitt fjall á viku".  Föstudaginn 8. janúar opnar linkur á heimasíðu FÍ með öllum upplýsingum verkefnið, fjöllin 52, dagssetningar og tíma, brottfararstaði, búnað ofl. 

Linkurinn verður www.fi.is/eittfjall og opnar kl. 14 9. janúar.

7.1.2010

Hátt í fimmhundruđ manns á kynningu FÍ ,,eitt fjall á viku"

Hátt í 500 manns mættu á kynningu Ferðafélags Íslands í kvöld þegar verkefnið ,,Eitt fjall á viku" var kynnt.  Aldrei hafa fleiri verið samankomnir í sal félagsins sem tekur 320 manns í sæti en salurinn var yfirfullur af áhugasömu fjallafólki. Þegar hafa á annað hundrað manns skráð sig í verkefnið en fyrsta gangan í verkefninu þar sem gengið verður á eitt fjall í viku, allt árið 2010, alls 52 fjöll, verður nk sunnudag, þegar gengið verður á Helgafell.  Skráningartími í verkefnið er til 20. janúar en gefinn er kostur á að mæta í tvær fjallgöngur til prufu, en eftir það þarf að staðfesta þátttöku með greiðslu.

5.1.2010

Ţrettándagleđi í Grafarvogi - Ferđafélag barnanna

Hin árlega þrettándagleði Grafarvogsbúa verður haldin miðvikudaginn 6. janúar.  Ferðafélag barnanna mætir á svæðið og tekur þátt í dagskránni sem er eftirfarandi:  kl. 17: kakó- og kyndlasala í Hlöðunni, skólahljómsveit Grafarvogs leikur létt lög. kl. 17.30 Blysför undirbúin við Hlöðuna; álfakóngur, Grýla, jólasveinar og aðrar kynjaverur sjá um að kveikja í brennunni. kl. 18. Gengið aftur niður að Hlöðunni þar sem verður fjöldasöngur og önnur skemmtilegheit. Fólk er hvatt til að taka með sér restar af flugeldum og skjóta upp á sérmerktu svæði.  Bílastæði við Gylfaflöt og Bæjarflöt.

4.1.2010

Eitt fjall á viku - nýársverkefni Ferđafélags Íslands

Ferðafélag Íslands hefur hrundið af stað verkefninu ,,Eitt fjall á viku" en í verkefninu verður gengið á eitt fjall á viku allt árið 2010 og því samtals 52 fjöll á árinu. Meðal annars verður gengið á öll fjöll í nágrenni Reykjavíkur en einnig verður gengið á fjöll víða um land. ,,Við viljum með þessu hvetja fólk til að hreyfa sig og stunda útiveru og fjallamennsku en fjallgöngur eru ein allra besta likamsrækt sem völ er á," segir Páll Guðmundsson framkvæmdastjóri FÍ sem verður fararstjóri í öllum ferðunum 52.  ,,Hugmyndin er komin frá konu minni Auði Kjartansdóttur sem var að hvetja mig til að hreyfa mig meira og relgulegar.  Við göngum á bæði létt fjöll en einnig á sum af stærri fjöllum landsins og má nefna sem dæmi að við göngum t.d. á Helgafell, Úlfarsfell og Grímarsfell en einnig á Heklu, Snæfellsjökul og Hvannadalshnúk. Undirbúningsfundur fyrir verkefnið verður haldinn fimmtudaginn 7. janúar kl. 20 í sal FÍ Mörkinni 6 og fyrsta fjallgangan verður sunnudaginn 10. janúar en þá verður gengið á Helgafell.

PÓSTLISTASKRÁNING

Međ reglulegu millibili sendir skrifstofa FÍ út yfirlit yfir félagsstarf, ferđir og annađ ţađ sem spennandi kann ađ vera fyrir áhugfólk um ferđalög og náttúru.
Eitt fjall á vikuFerđafélag barnannaSkráđu ţig í FerđafélagiđLaugavegurinnSkálar - yfirlitskortFerđaáćtlun 2010Safnađu fjöllum međ FÍ

Slóđin mín:

Forsíđa » Fréttasíđa

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Information in other languages

  • Information in English
  • Informationen auf Deutsch

Mynd