Beint á leiđarkerfi vefsins
Fara á forsíđu

Fréttir

Fréttir FÍ - RSS

25.2.2010

Námskeiđ um Vatnajökulsţjóđgarđ

Vatnajökulsþjóðgarður er víðfeðmur og fjölbreytilegur. Hann er stærsti þjóðgarður Evrópu, hátt í 14 þúsund ferkílómetrar að stærð. Á námskeiðinu mun Oddur Sigurðsson, jarðfræðingur fjalla um náttúru norðausturhorns garðsins, nánar tiltekið Snæfell, Eyjabakka og umhverfi. Aðallega verður fjallað um gerð og aldur jarðlaga á svæðinu, landmótun, eðli og sögu jöklanna og jarðhita sem fáir veita athygli. Auk þess verður komið inn á gróðurfar og dýralíf á svæðinu. Snæfell setur mjög svip sinn á umhverfið og verður ekki um landið fjallað nema nefna það sérstaklega. Nokkrum gönguleiðum á fjallið verður lýst.

25.2.2010

Innbrot í bíla á útivistarsvćđum

Borist hefur ábending frá félagsmanni í Ferðafélagi Íslands vegna innbrota í gærdag í bíla á bílastæðinu við Mógilsá við Esjurætur.

25.2.2010

Eitt fjall á viku - 27. febrúar

Sjá upplýsingar um ferðir hópanna í Eitt fjall á viku.

24.2.2010

Esjan fjóra daga í röđ

FÍ fjör í Esjunni - vertu til er vorið kallar á þig er hafið en það felst í því að ganga á Esjuna fjóra daga í röð. Í gær, þriðjudag  fór hópurinn upp í allhvössum vindi en ágætlega björtu veðri. Mönnum þótti talsvert streð að baksa upp með vindinn í fangið og var því látið nægja að fara upp að Steini.
Í dag miðvikudag verður haldið áfram og ástæða til að hvetja fólk til að mæta í þetta hressilega verkefni. Veðurspáin fyrir daginn er áhugaverð, spáð er norðlægri átt og síðdegis gæti orðið einhver ofankoma.  En gott skap og hlýr fatnaður er rétta veganestið í fjallgöngur að vetri.
 Fararstjóri er Þórður Marelsson.  Lagt er af stað frá Esjustofu kl. 18 alla daga.  Takið með ykkur höfuðljós og góðan búnað. 

23.2.2010

Fjallabók FÍ - ţátttakendur 2009

Sl. ár stóð Ferðafélag Íslands fyrir verkefni þar sem þátttakendur söfnuðu fjöllum í til þess gerða Fjallabók FÍ.  Nú hefur póstkassinn sem hefur að geyma allar Fjallabækur ársins 2009 verið opnaður og er nöfn þátttakenda og þeirra sem skráðu niður 10 fjöll sem þeir gengu á árinu að finna hér að neðan.  Þáttakendur fá í verðlaun FÍ buff, FÍ spilastokk og fræðslurit að eigin vali.

Aðalheiður Stefánsdóttir, Anna Lára Eðvarðsdóttir, Borgþór Harðarson, Corina Hoffmann, Elínborg Kristinsdóttir, Erlingur Jensson, Fanney Bj. Karlsdóttir, Halla Rún Erlingsdóttir, Hanna María Þorgeirsdóttir, Heiðdís Lilja Erlingsdóttir, Ingibjörg Sveinsdóttir, Jónína Pálsdóttir, Katrín Haraldsdóttir, Margrét Hallgrímsdóttir, Ómar Smári Kristinsson, Sigríður Lóa Jónsdóttir, Sigurður E. Kristjánsson, Snæfríður M. Björnsdóttir, Sveinn B. Sveinsson, Trausti Sigurðsson, Þórhallur Hálfdánarson.

23.2.2010

Áhugavert blogg um náttúruvernd

Páll Ásgeir Ásgeirsson stjórnarmaður í Ferðafélagi Íslands og fararstjóri er atkvæðamikill bloggari og birtast skrif hans á vefsvæðinu Eyjunni.
Undanfarna daga hafa birst þar nokkrar færslur þar sem fjallað er um náttúruvernd og utanvegaakstur í víðu samhengi, viðhorf manna til náttúrunnar og verndar hennar.
Snarpar umræður hafa orðið í athugasemdakerfi síðunnar þar sem sitt sýnist hverjum en ljóst af viðbrögðum að hér er á ferðinni málefni sem fólki er mjög hugfólgið.
"Mér finnst vert að reyna að ræða þessi mál og reyna að vekja fólk til umhugsunar," sagði Páll Ásgeir í samtali við heimasíðu FÍ.
Slóðin á bloggsíðu Páls Ásgeirs http://blog.eyjan.is/pallasgeir/ og þar geta áhugasamir lesið umræddar færslur.

21.2.2010

Nú er frost á fróni

„Nú er frost á fróni, frýs í æðum blóð“ orti Kristján Jónsson fjallaskáld undir heitinu „Þorraþrællinn 1866“ og birti í Þjóðólfi 28. febrúar sama ár. Sjá frétt eftir Trausta Jónsson á vef veðurstofunnar. 

21.2.2010

Ástarpungar og kleinur

,,Ég var að springa úr mæði á leiðinni upp en að springa úr monti á leiðinni niður," sagði stoltur göngugarpur nýkominn af tindi Móskarðshnúka í gönguhópi Austurbæinga í verkefninu Eitt fjall á viku.  Gengið var á hæsta tind Móskarðshnúka  og útsýni fjallahringsins stórkostlegt í frosnum himni. Þegar niður var komið biðu ástarpungar og kleinur göngumanna.  
Ţrír fjallahópar FÍ gengu á fjöll í gærdag, Austurbær gekk á Móskarðshnúka, Vesturbær gekk á Skálafell og Nágrannar gengu á  Húsfell, alls um 150 manns.   Sjá myndir í myndabanka FÍ með því að smella á nöfn hópanna.

18.2.2010

Fjallaskíđanámskeiđ

Fjallaskíðanámskeið,1 dagur2 námskeið  27 og 28 febrúar.
Mæting í Mörkinni kl 08:00
Einn dagur á fjöllum þar sem að farið er yfir grunn þætti fjallaskíðamennsku s.s mat á snjóflóðahættu, snjóflóðaleit, uppsetningu á öruggri leið og almenna vetrarfjallamennsku.
Ţetta örnámskeið er ætlað sem verkleg kynning á sportinu og fer fram í nágrenni borgarinnar þar sem aðstæður eru bestar á þeim tímapunkti.
Fjallaskíða og öryggisbúnaður fæst leigður á staðnum fyrir þá sem ekki eiga. Verð: 15.000.- Utan búnaðar
 

18.2.2010

Fjallaskíđamennska í samstarfi viđ Jökul Bergmann

Kynningarkvöld um fjallaskíðamennsku Í samstarfi við Íslenska Alpaklúbbinn: 25 Febrúar kl 20:00
Jökull Bergmann sýnir magnaðar myndir og videó þar sem fjallaskíðamennska er í aðalhlutverki,ásamt því sem fólki gefst tækifæri til að skoða allan þann sérhæfða búnað sem fylgir sportinu og fá ráðleggingar frá eina faglærða fjallaleiðsögumanni landsins. Spennandi tækifæri til þess að kynna sér þetta magnaða sport. 
Allur ágóði rennur í viðgerðasjóð vegna endurbóta á Bratta, skála Íslenska Alpaklúbbsins í Botnsúlum sem er kjörin áfangastaður fjallaskíðafólks á suð vestur horninu.Verð: 500.- eða frjáls framlög

18.2.2010

Ađsóknarmet á myndakvöldi

Myndakvöld FÍ með Helga Björnssyni jöklafræðingi og Þóru Ellen Þórhallsdóttur líffræðingi sló aðsóknarmet vetrarins en 250 gestir mættu til að hlýða á erindi hjónanna og myndasýningar. Gestir fræddust um eðli jökla, íhuguðu hvort fæddur myndi sá Íslendingur sem fengi að sigla inn í Esjufjöll eftir Breiðamerkurfirði og sátu andaktugir undir fyrirlestri Þóru Ellenar um verðmæti íslensks landslag, sérstöðu þess og ýmsar rannsóknir því tengdar.
Hinar sívinsælu kaffiveitingar voru á sínum stað. Sigurvegari í ljósmyndasamkeppni FÍ tók á móti verðlaunum og menn hittu gamla ferðafélaga, treystu vinaböndin og skiptust á skoðunum og fréttum úr heimi fjallaferða og útivistar.

15.2.2010

Niđurstađa dómnefndar í ljósmyndasamkeppni FÍ


Nú hefur dómnefnd skilað inn niðurstöðu í ljósmyndasamkeppni FÍ sem haldin var fyrir áramót.  Vinningsmyndin var tekin í Langadal í Þórsmörk og ljósmyndarinn er Ármann Guðjónsson. 
Í texta ljósmyndara með myndinni segir:, ,, Mynd tekin við bústað skálavarða í Langadal 23. ágúst, lítill sætur yrðlingur hvílir sig í sólinni,"
Í niðurstöðuorðum dómnefndar segir: 
"Dómnefnd þótti myndin hafa til að bera það þrennt sem hæfir góðri náttúrumynd; sterka mynduppbyggingu, fallega birtu og hún er tekin á réttu augnabliki. Þá leiðir grunnur fókus (dýptarskerpa) myndarinnar augu áhorfandans beint í auga dýrsins og skapar þannig umsvifalaust tengingu við viðfangsefnið. Þá er tófan táknmynd náttúru Íslands sem eina villta spendýrið á landinu."

14.2.2010

Pönnukökur og kleinur á Móskarđshnúkum

Galvaskur hópur Nágranna (stundum nefndir þorparar), einn af þremur hópum FÍ í Eitt fjall á viku,  gengu á Móskarðshnúka í dag og skiptist þar á skin og skafrenningur. Nágrannar telja rúmlega 60 þátttakendur í Eitt fjall á viku og eru eins og nafnið á hópnum gefur til kynna íbúar í nágrannasveitarfélögum Reykjavíkur og reyndar víðar því að einn þátttakandi kemur alla leið frá Vík í Mýrdal í hverja fjallgöngu einu sinni í viku.  Eftir ýmis konar sprell og skemmtilegheit stýrt af hinum glaðbeittu fararstjórum Nágranna var hópurinn hinn brosmildasti á austurtindi Móskarðshnúka. Kökunefnd hafði síðan hrært í nokkra skammta af kleinum og pönnukökum og var þeim raðað í sig af bestu lyst þegar niður var komið. Sjá myndir í myndabanka FÍ 

14.2.2010

FÍ Í FJALLINU

Ţrír hópar Eitt fjall á viku skunduðu á fjöll í dag. Nágrannar gengu á Móskarðshnúka, Austurbær á Skálafell og Vesturbær á Húsfell, alls um 140 göngugarpar. Nágrannar fögnuðu göngu á Móskarðshnúka með pönnukökum og kleinum þegar niður var komið og Austurbæingar gerðu tilraun til að skrifa FÍ í Skálafell að tillögu elsta göngugarpsins Elínborgar Kristinsdóttur. Alls eru tæplega 170 þátttakendur í verkefninu og nú er fyrstu 6 fjallgöngunum lokið og aðeins 46 fjöll eftir.  Göngudagarnir færast nú yfir á laugardagsmorgna kl. 9 og verða 6 gönguferðir á laugardögum og þá verður skipt yfir á miðvikudaga. Fyrir utan pönnukökubakstur og kleinugerð stefnir hópurinn nú að einum sameiginlegum danstíma í Ferðafélagssalnum og ýmislegt fleira skemmtilegt er í bígerð.
Sjá myndir í myndabanka FÍ  

12.2.2010

Ferđafélagar, útivistarunnendur og fjallagarpar bođnir á sýningu í World Class Laugum

Laugardaginn 13. febrúar kl. 14 – 17 býður World Class í Laugum í samstarfi við Ferðafélag Íslands upp á sýningu á skiltum sem Ferðafélag Íslands hefur sett upp á vinsælustu gönguleiðum landsins, Laugveginum og Fimmvörðuhálsi og auk þess á Hvannadalshnúk.
Sjá skilti

10.2.2010

FÍ fjör í Esjunni nćstu mánuđi

Ferðafélag Íslands býður upp á FÍ fjör í Esjunni næstu mánuði.  Um er að ræða ókeypis gönguferðir með fararstjórn á Esjuna, nokkrar ferðir í mánuði fram á sumar.  FÍ fjör er því tilvalinn vettvangur fyrir ferðafélaga sem eru að undirbúa verkefni sumarins, hvort heldur krefjandi fjallgöngu á Hvannadalshnúk eða sumarleyfisferð.  FÍ fjör verður undir nokkrum fyrirsögnum  eftir mánuði og er fyrsta FÍ fjör prógrammið undir heitinu ,,vertu til er vorið kallar á þig," í tilefni af veðurblíðunni undanfarið.  Fararstjóri er Þórður Ingi Marelsson.

10.2.2010

Ferđafélag Ísafjarđar endurvakiđ

Fyrsta gönguferð Ferðafélags Ísafarðar var farin á sunnudag en félagið var nýlega endurreist. Það var upphaflega stofnað 1949. Um 50 manns mættu í gönguna ásamt 3 ferfætlingum og var fararstjórn í höndum Þrastar Jóhannessonar. Gengið var frá skála Skíðafélags Ísafjarðar á Seljalandsdal og upp á Sandfell og um nágrenni þess. Aðalfundur félgsins var nýlega haldin og er stefnt að framhaldsaðalfundi fyrir 1. mai. Hermann Níelsson leiðir starf undirbúningsnefndar.

7.2.2010

Stórir hópar á ţremur fjöllum og göngugleđin á fjórđa.

Ţrír stórir hópar voru í dag á þremur fjöllum í verkefninu ,,Eitt fjall á viku."  Þáttakendum hefur nú verið skipt niður í þrjá hópa, austurbæ, vesturbæ og nágranna. Einhver kom með þá hugmynd að nágrannar yrðu kallaðir þorparar, en nágrannanafnið stendur enn um sinn.  Göngugleðin var fjórði hópurinn frá FÍ í dag á fjöllum en myndarlegur hópur hélt á Hvalfell á meðan hóparnir þrír gengu á Skálafell, Móskarðshnúka og Húsfell. 
Sjá myndir á myndabanka

IMG_3509 by Ferdafelag Islands.

4.2.2010

Eitt fjall á viku, sunnudagur 7. febrúar,

Eitt fjall á viku sunnudaginn 7. febrúar, sjá upplýsingar hér á heimasíðunni, www.fi.is/eittfjall

3.2.2010

Eins og heitar lummur

"Ég man ekki eftir öðrum eins viðtökum," sagði Páll Guðmundsson framkvæmdastjóri Ferðafélags Íslands. Frá því að áætlun FÍ var dreift til félagsmanna og almennings s.l föstudag hefur síminn á skrifstofu félagsins ekki hætt að hringja. Á fáeinum dögum eru 6-8 ferðir algerlega uppseldar og óðum að fyllast í nokkrar í viðbót.
Hinn sívinsæli Laugavegur milli Landmannalauga og Þórsmerkur selst hraðast en Hornstrandaferðir njóta einnig mikilla vinsælda svo og háfjallagöngur á Hvannadalshnúk, Hrútfjallstinda og Þverártindsegg.

2.2.2010

Námskeiđ; vetrarferđir og fjallamennska

FÍ býður upp á námskeið 6. - 7. febrúar sem hugsað er sem kynning á vetrarferða- og fjallamennsku fyrir útivistarfólk sem vill víkka sjóndeildarhringinn og takast á við vetraraðstæður. Farið er yfir grundvallaratriði s.s. leiðarval, mat á snjóflóðahættu, veðurfræði, göngu og klifur á mannbroddum, notkun ísaxa og annars öryggisútbúnaðar. Námskeiðið er fyrir alla í ágætis líkamlegu formi og engrar reynslu af vetraferðamennsku er krafist. Námskeiðið fer fram í Skíðadal á Tröllaskaga og verður einn af fjölmörgum tindum svæðisins klifinn á námskeiðinu. Umsjónarmaður er Jökull Bergmann. 

2.2.2010

Göngu- og fjallaćfingar fyrir ferđafélaga

Heilsuborg býður nú ferðafélögum upp á fjallgöngunámsskeið fyrir sumarið.  Námskeiðin eru tilvalin fyrir göngu- og fjallgöngufólk tl að komast í form fyrir sumarið.  Ný námskeið eru að hefjast.

PÓSTLISTASKRÁNING

Međ reglulegu millibili sendir skrifstofa FÍ út yfirlit yfir félagsstarf, ferđir og annađ ţađ sem spennandi kann ađ vera fyrir áhugfólk um ferđalög og náttúru.
Eitt fjall á vikuFerđafélag barnannaSkráđu ţig í FerđafélagiđLaugavegurinnSkálar - yfirlitskortFerđaáćtlun 2010Safnađu fjöllum međ FÍ

Slóđin mín:

Forsíđa » Fréttasíđa

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Information in other languages

  • Information in English
  • Informationen auf Deutsch

Mynd