Beint á leiđarkerfi vefsins
Fara á forsíđu

Fréttir

Fréttir FÍ - RSS

31.3.2010

Skrifstofa FÍ opin um páskana

Skrifstofa Ferðafélags Íslands í Mörkinni 6 verður opin frá kl. 08.00 til 10.00 alla morgna yfir páskana. Á þeim tíma verður hægt að bóka pláss í gosskoðunarferðir og greiða fargjöld. Skoðunarferðir fara úr Mörkinni 6 kl. 09.00 alla páskadagana.

31.3.2010

Dagsferđir FÍ í Ţórsmörk um páskana / gosskođunarferđir

Ferðafélag Íslands býður upp á dagsferðir í Þórsmörk alla páskana, rútuferðir með fararstjórum. Lagt er af stað frá Mörkinni 6 kl. 9 alla daga, skírdag, föstudaginn langa, laugardag, páskadag og annan í páskum. 
Ţegar er fullbókað í ferð á skírdag og hratt bókast í ferðir aðra daga. Fyrstir koma, fyrstir fá.
Ekið er í Skagfjörðsskála í Langadal í Þórsmörk.  Boðið er upp á gönguferðir með leiðsögn bæði á Valahnúk og upp á Morinsheiði að gosstöðvunum. 
Gönguferð á Valahnúk tekur innan við klukkustund. Þaðan er gott útsýni yfir Þórsmörk og bein sjónlína að gosstöðvunumum 6 km. Gönguferð um Morinsheiði, upp Bröttufönn að gosstöðvunum tekur um 6 klst. og er um allbratt land á köflum að fara. Vegalengdin er 10 km. fram og til baka og hækkun nemur 800-900 metrum.
Nauðsynlegt er að vera vel búinn í ferðinni, með góðan hlífðarfatnað, góða gönguskó og nesti. Frost getur náð 15-18 stigum efst á fjallinu.
Brottför úr Þórsmörk er kl. 10 um kvöldið svo fólk geti séð eldgosið í myrkri og því nauðsynlegt að hafa nægt nesti til heils dags.
Verð í ferðina er kr. 10.000 / 12.000.  Frítt fyrir börn og unglinga yngri en 16 ára. Skráning og greiðsla á skrifstofu FÍ.

31.3.2010

Páskahátíđ í Esjuhlíđum

Samstarf Esjustofu og Ferðafélags Íslands

2. apríl föstudagurinn langi kl:14:00
Hátíðarmessa við Esjustofu. Gunnar Kristjánsson sóknarprestur í Brautarholtskirkju messar. Eftir messu verður gengið að Steini við Þverfellshorn undir forustu Þórðar Marelssonar
3. apríl laugardagur kl:11:00
Páskaeggjaleit í Esjuhlíðum, Heyrst hefur að nokkur egg séu af stærstu gerð!  Ganga undir forustu Þórðar Marelssonar, í átt að Gunnlaugsskarði, og jafnvel upp í skarð, jafnvel alla leið, fer eftir veðri og vindum.

4. apríl sunnudagur páskadagur kl:11:00
Gengið upp að Steini undir forystu Þórðar Marelssonar, létt morgunganga.
Útitónleikar við Esjustofu, gítarleikur og söngur fjallamannsins fríska.
5. apríl mánudagur annar í páskum
Óvissuferð í Esjunni kl. 11:00, mæting við Esjustofu, undir stjórn Þórðar Marelssonar

Daglega verður dregið út að borða fyrir 2. í  Esjustofu

Vertu með í góðri Esjugöngu

30.3.2010

Opiđ inn í Ţórsmörk

Skagfjordsskali

Vegurinn inn í Þórsmörk verður opnaður fyrir umferð á hádegi í dag. Ferðafélag Íslands er með skálaverði og leiðsögumenn í Langadal og þar geta ferðamenn fengið leiðsögn og ráðgjöf og leitað gistingar. Verslunin í Langadal  verður einnig opin. Helga Garðarsdóttir, Þórhallur Ólafsson og Broddi Hilmarsson eru til þjónustu reiðubúin.
Boðið verður upp á gönguferðir upp á Valahnúk sem er afbragðs góður útsýnisstaður til eldstöðvanna en einnig verður hægt að fá leiðsögn upp á Morinsheiði og Bröttufönn og standa þar í návígi við eldgos og hraunfossa.
Vegurinn inn í Þórsmörk er úfinn og torfær eftir vatnavexti og umhleypinga vetrarins og að mati Almannavarna aðeins fær breyttum jeppum og öflugum rútum. Umferð er ekki leyfð inn í Hvannárgil eða Hrunagil.
Búast má við mikilli umferð inn í Mörk næstu daga en veðurspá er hagstæð til skoðunarferða upp að gosinu.

29.3.2010

Yfirlit yfir gönguleiđina á Fimmvörđuháls

Yfirlit-gosstodvar-280

Jakob Hálfdánarson félagi í Ferðafélaginu hefur unnið nokkrar glærur sem sýna kennileiti á gönguleiðinni og staðsetningu gossins. Glærurnar gefa ágæta mynd af leiðinni.

Skoða glærur Jakobs >>

29.3.2010

Frćđslukvöld um Fimmvörđuháls

Miðvikudagskvöldið 31. mars heldur Ferðafélag Íslands fræðslukvöld um eldgosið á Fimmvörðuhálsi. Þar koma Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur og Steinunn Jakobsdóttir jarðeðlisfræðingur og skýra í máli og myndum frá eldgosinu, þróun þess og líklegri framvindu.
Haraldur Sigurðsson er heimsþekktur eldfjallafræðingur sem hefur á langri starfsævi unnið að rannsóknum á eldfjöllum víða um heiminn og sett fram kenningar og niðurstöður sem vakið hafa athygli um víða veröld. Haraldur hefur sett á fót Eldfjallasafnið í Stykkishólmi og veitir því forstöðu auk þess að sinna rannsóknum og fyrirlestrahaldi.
Haraldur heldur úti síðu á netinu um eldfjöll og virkni þeirra.
Steinunn Jakobsdóttir jarðeðlisfræðingur er verkefnastjóri jarðváreftirlits á Veðurstofu Íslands en sú stofnun vakir yfir öllum eldfjöllum Íslands.
Fræðslukvöldið hefst kl. 20.00 og aðgangur er ókeypis og öllum heimill meðan húsrúm leyfir. Ekki eru kaffiveitingar eins á á myndakvöldum félagsins.

27.3.2010

Útsýnisferđ á Ţórólfsfell-eldur í ljósaskiptum

Ferðafélag Íslands efnir til útsýnisferðar á Þórólfsfell í Fljótshlíð á morgun sunnudag. Brottför er úr Mörkinni 6 með rútum kl. kl.16.00. Þórólfsfell er innst í Fljótshlíð og þaðan er bein sjónlína til gosstöðvanna. Stefnt er að því að fylgjast með umbrotunum í ljósaskiptunum en allir sem séð hafa segja þá sjón sérstaklega tilkomumikla.
Gengið verður á Þórólfsfellið sem er hæg ganga og mun taka um klukkustund. Nauðsynlegt er að vera á góðum skóm, með göngustafi og vel klæddur því norðanáttin er köld. Heitt á brúsa og sætmeti í nesti er auðvitað meðferðis og góður sjónauki gæti komið sér vel.
Verð í ferðina er 5000 krónur en ókeypis fyrir börn og unglinga yngri en 16 ára. Yfirleiðsögumaður ferðarinnar er Leifur Þorsteinsson, þrautreyndur fararstjóri FÍ til margra ára. Honum til aðstoðar á göngu á fjallið verða eins margir fararstjórar og þarf.
Búast má við að leiðangurinn snúi ekki til Reykjavíkur aftur fyrr en seint um kvöldið.

26.3.2010

Gosmökkurinn sést af Esjunni

Thordur-MarelssonÍ gær, 25. mars. gekk hópur undir fararstjórn Þórðar Marelssonar á Esjuna. Strax upp við stein og síðar á Þverfellhorni sá hópurinn vel gosmökk og gufur sem stíga upp frá gosstöðvunum á Fimmvörðuhálsi. Ætla má að á meðan veður helst gott verði hægt að sjá gosmökkinn stíga frá eldstöðinni úr töluverði fjarlægð. Þetta er skemmtileg viðbót við annars frábært útsýni af Esjunni.

26.3.2010

Veginum inn í Landmannalaugar hefur veriđ lokađ

VegagerdinVegna hættu á aurbleytu og utanvegaakstri hefur veginum inn í Landmannalaugar verið lokað og allur akstur um hann bannaður. Ferðamenn sem áhuga hafa á því að ferðast um hálendisvegi er bent á að hafa samband við Vegagerðina í síma 1777 vegna lokanna á fleiri hálendisvegum.

24.3.2010

Heimilt ađ fara gangandi á Fimmvörđuháls

Gonguleid-280
 
Fólki er heimilt að fara gangandi upp á Fimmvörðuháls en gerir það á eigin ábyrgð.  Ferðafélag Íslands tekur undir með deildarstjóra almannavarna hjá ríkislögreglustjóra að gönguferð á Fimmvörðuháls á þessum árstíma sé aðeins fyrir vana og  vel útbúna göngumenn.  Vegalengd frá Skógum upp á Fimmvörðuháls er um 11 km og hæðarhækkun um 1000 metrar.  Þá er göngufæri mjög þungt á köflum um þessar mundir.  Fimmvörðuháls er að auki vel þekktur sem mikið  veðravíti ef svo ber undir og veður á hálsinum getur verið mun verra en í byggð.  Páll Guðmundsson framkvæmdastjóri FÍ segir að félagið muni á næstunni bjóða upp á gönguferðir að gosstöðvum með fararstjórum til að tryggja öryggi göngumanna.

24.3.2010

Frćđslukvöld FÍ um gosiđ á Fimmvörđuháls

Ferðafélag Islands stendur fyrir fræðslukvöldi um eldgosið á Fimmvörðuhalsi nk miðvikudagskvöld kl. 20 í sal felagsins Mörkinni 6.  Þá mæta vísindamenn og kynna gosið í máli og myndum fyrir ferðafólki.

24.3.2010

Árbók FÍ 2009 tilnefnd til bókmenntaverđlaun Hagţenkis

Árbók Ferðafelags Islands 2009 um Vestmannaeyjar sem Guðjon Armann Eyjolfsson hefur verið tilnefnd til bokmenntaverðlaun Hagþenkis.

24.3.2010

Skíđaferđum aflýst

Skíðaferðum aflýst

Skíðaferðum FÍ,  frá Þingvöllum yfir í Hvalfjörð, skíðadögum á Hesteyri og gönguskíðaferð í Landmannalaugar hefur verið aflýst vegna snjóleysis, krapa ofl.

22.3.2010

"Fylgjumst grannt međ framvindu mála"

"Við fylgjumst grannt með framvindu mála í gosinu á Fimmvörðuhálsi," segir Ólafur Örn Haraldsson forseti Ferðafélagsins.
"Við hvetjum alla ferðalanga til að gæta fyllsta öryggis og fara að fyrirmælum almannavarna. Við höfum vakandi auga með framvindu mála ekki síst vegna þeirra eigna Ferðafélagsins sem eru í námunda við gosið. Enn sem komið er virðist sem betur fer ekki stafa nein hætta að þeim."
Minnt skal á að vegurinn inn í Þórsmörk er enn lokaður og ekkert sem bendir til að því verði aflétt um sinn. Gosið tekur stöðugum breytingum og án efa fylgjast allir áhugamenn um náttúru Íslands spenntir með.

21.3.2010

70 fengu páskaegg

Páskaeggjaganga - vinningur

70 manns tóku þátt í páskaeggjagöngu Ferðafélags Íslands og Góu á Móskarðshnúka í vonskuveðri i dag. Allhvass vindur var af austri og gekk á með dimmum éljum. Jókst veðurhæðin talsvert eftir því sem ofar dró og varla stætt í hviðum þegar komið var upp á brún. Allstór hluti hópsins gekk þó að heita má alla leið en nokkrir sneru frá við Bláhnúk. En allir fengu páskaegg að launum og konan á myndinni var svo heppin að fá þetta risaegg í sérstöku happdrætti að lokum.

21.3.2010

Húsfyllir á myndakvöldi

Christopher Lund og Haukur Snorrason troðfylltu sal Ferðafélags Íslands á myndakvöldi í gærkvöldi. Myndir þeirra félaga vöktu mikla athygli og aðdáun, sérstaklega myndir Lunds frá Langasjó og nágrenni. Loftmyndir Hauks fengu einnig sterk viðbrögð og líflegar frásagnir þeirra félaga kölluðu á fjölda spurninga úr sal. Firnagóð stemmning og fróðleikur að ógleymdum kaffiveitingum í hléi. Talnaglöggir töldu að rúmlega 200 manns hefðu verið á staðnum.

18.3.2010

Útivera kemur út á ný

Tímaritið Útivera kemur út á ný nú á vormánuðum. Það er fyrirtækið Athygli sem gefur blaðið út og ritstjóri þess verður Valþór Hlöðversson en í þriggja manna ritnefnd sitja Gunnar Hólm Hjálmarsson, Ragnheiður Davíðsdóttir og Páll Ásgeir Ásgeirsson.
Útivera mun eins og áður fjalla um útiveru, ferðalög, fjallgöngur og íslenska náttúru í sem víðustum skilningi.

16.3.2010

Fyrirlestur um ferđ á Everest

Fimmtudaginn 18. mars, verður sérstakur fyrirlestur á Hótel Hilton Nordica sem er haldinn á vegum Félags Íslenskra Fjallalækna Ţar mun Michael P. Grocott,  halda fyrirlestur um ferð sína og félaga sinna á Mt. Everest vorið 2007, The Xtreme Everest Expedition.

8.3.2010

Ferđafélag Austur-Skaftfellinga 30 ára

Ferðafélag Austur-Skaftfellinga var stofnað 9. mars 1980 og er því 30 ára um þessar mundir. Rannveig Einarsdóttir, formaður félagsins sagði í samtali við heimasíðu FÍ að félagsmenn horfðu glaðir til framtíðar á þessum tímamótum og rífandi gangur væri í starfinu.
Félagið rekur einn skála, Múlaskála í Lónsöræfum og hefur gistináttum þar fjölgað verulega milli ára og mikið bókað í sumar.
Sunnudaginn 14. mars kl. 14.00  verður afmæliskaffi í Nýheimum á Höfn þar sem félagsmenn og velunnarar fagna saman og deila minningum og myndum. Dregið verður í lukkuleik Strandgöngu sem staðið hefur yfir og  ferðadagskrá komandi sumars kynnt.

3.3.2010

Útivist eldri og heldri borgara

4. mars hófust gönguferðir fyrir eldri og heldri borgara á vegum Ferðafélags Íslands. Gönguferðirnar eru á þriðjudögum og fimmtudögum og hefjast ávallt kl. 14.00. Á þriðjudögum hittast þátttakendur við Árbæjarlaug en þaðan er auðvelt að komast inn á kerfi gangstíga sem teygir sig um allan Elliðaárdal og upp að Elliðavatni.
Á fimmtudögum hittast menn og konur svo við Nauthól í Nauthólsvík kl. 14.00 og þaðan liggja stígar meðfram sjónum í báðar áttir og hlykkjast ennfremur um alla Öskjuhlíðina.
Ferðafélagið leggur til fararstjóra í þessar gönguferðir og hefur Alfreð Hilmarsson tekið þetta verkefni að sér fyrir félagið en Alfreð er vaskur göngugarpur sem er enn léttur á fæti þótt árunum fjölgi. Þetta verkefni er unnið í samvinnu við Valitor sem hefur átt náið og gott samstarf við Ferðafélag Íslands í nokkur ár.
Allar rannsóknir sýna að fátt er betri heilsubót til sálar og líkama en að taka sér hressandi gönguferð með skemmtilegu fólki. Í þessum ferðum er vegalengd og gönguhraði stilltur í samræmi við virðuleika þátttakenda og meðalaldur hópsins hverju sinni.

PÓSTLISTASKRÁNING

Međ reglulegu millibili sendir skrifstofa FÍ út yfirlit yfir félagsstarf, ferđir og annađ ţađ sem spennandi kann ađ vera fyrir áhugfólk um ferđalög og náttúru.
Eitt fjall á vikuFerđafélag barnannaSkráđu ţig í FerđafélagiđLaugavegurinnSkálar - yfirlitskortFerđaáćtlun 2010Safnađu fjöllum međ FÍ

Slóđin mín:

Forsíđa » Fréttasíđa

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Information in other languages

  • Information in English
  • Informationen auf Deutsch

Mynd