Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu

Fréttir

Fréttir FÍ - RSS

10.10.2008

Fjölskyldu- og bjartsýnisganga FÍ

Ferðafélag Íslands efnir til fjölskyldu- og bjartsýnisgöngu á morgun, laugardag, kl. 14.00. Þetta verður létt ganga eftir göngustígum upp í hlíðar Esju og verður lagt upp frá bílaplaninu við Mógilsá og síðan verður boðið upp á veitingar þegar komið er aftur niður. Þegar vandi steðjar að er fátt betra en að ganga með fjölskyldunni eða í góðra vina hópi úti í íslenskri náttúru. Þátttaka er ókeypis og allir velkomnir að taka þátt í þessari fjölskyldu- og bjartsýnisgöngu Ferðafélagsins.

Reyndir fararstjórar verða í göngunni og enginn þarf að fara lengra en hentar hverjum og einum. Göngutíminn er því alveg að vali hvers og eins, allt frá því að rölta upp í skóginn til göngu á fjallið sjálft. Stígarnir neðst upp frá bílaplaninu eru breiðir og sléttir og hverjum fullfrískum manni og börnum færir. Við hvetjum fólk til að klæða sig vel og hafa góða skó á fótum. Veitingarnar verða heitt kakó og bakkelsi og þá gefst tími til að spjalla saman áður en haldið er heim.

Fararstjóri verður Ólafur Örn Haraldsson, forseti Ferðafélagsins.

Hittumst full af bjartsýni og baráttuanda við Esjurætur kl. 14.00 á morgun, laugardag.


PÓSTLISTASKRÁNING

Með reglulegu millibili sendir skrifstofa FÍ út yfirlit yfir félagsstarf, ferðir og annað það sem spennandi kann að vera fyrir áhugfólk um ferðalög og náttúru.
Eitt fjall á vikuFerðafélag barnannaSkráðu þig í FerðafélagiðLaugavegurinnSkálar - yfirlitskortFerðaáætlun 2010Safnaðu fjöllum með FÍ

Slóðin mín:

Forsíða » Fréttasíða

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Information in other languages

  • Information in English
  • Informationen auf Deutsch

Mynd