Fréttir
12.5.2009
Örganga miðvikudaginn 13. maí kl. 19. Fjórða örgangan í Grafarholti.
Örganga
Fjórða örgangan verður miðvikudaginn 13. maí. Gengið verður frá hitaveitugeymunum á Grafarholtinu eftir göngustígum sunnan byggðarinnar og upp Leirdalinn. Þar verður vikið frá stígnum og gengið um óraskað land fram á Nónás. Þaðan haldið til baka inn á stíginn, gengið austur Vellina og inn á stíg sem liggur niður að Reynisvatni. Við vatnið er haldið til vinstri og fylgt stígum að mestu að hitaveitugeymunum.
Veður hindrar ekki för. Notið góða skó. Gönguhraða verður stillt í hóf.
Göngustjórar verða Guðlaug Sveinbjarnardóttir og Höskuldur Jónsson
Nýjar auglýsingar
Til sölu - Fatnaður
Til sölu - Fatnaður
Vantar - Tjöld
Leit
Mynd























