Beint á leiđarkerfi vefsins
Fara á forsíđu

Fréttir

Fréttir FÍ - RSS

10.11.2009

Sjáđu tindinn, ţarna fór ég

Næsta myndakvöld Ferðafélags Íslands verður tileinkað háum fjöllum og haldið undir yfirskriftinni: Sjáðu tindinn, þarna fór ég. Myndakvöldið fer fram miðvikudagskvöldið 18. nóvember n.k. og verður að vanda haldið í sal Ferðafélagsins í Mörkinni 6 og hefst kl. 20.00. Í hléi eru kaffiveitingar með bakkelsi samkvæmt hefð.
Fyrrihluti myndasýningarinnar er í umsjá Guðmundar Jónssonar sem stundum er kallaður Gummi stóri. Guðmundur er í hópi reyndra fjallamanna þrátt fyrir ungan aldur og hefur getið sér gott orð sem fararstjóri fyrir Ferðafélagið í göngum á há fjöll. Guðmundur sýnir myndir úr ferðum á Hrútfjallstinda og Þverártindsegg og einhver fleiri fjöll sem freista brattgengra.
Seinni hluti sýningarinnar er í umsjá Haraldar Arnar Ólafssonar sem sýnir myndir úr göngum á Hvannadalshnúk eftir ýmsum leiðum og fleiri tinda í öskju Öræfajökuls. Haraldur er reyndasti fjallamaður Íslands fyrr og síðar og stjórnar göngum á Hvannadalshnúk á hverju vori fyrir Ferðafélag Íslands.
Ţeir sem hyggja á krefjandi fjallgöngur á vori komanda ættu að mæta á þessa myndasýningu. Þarna gefst færi á að sjá myndir af freistandi fjallatoppum og ná tali af kunnáttumönnum á þessu sviði.
Guðmundur Jónsson

Guðmundur Jónsson stýrir leiðangri á Þverártindsegg síðastliðið vor. Menn setja á sig brodda þegar skammt er eftir á tindinn.


PÓSTLISTASKRÁNING

Međ reglulegu millibili sendir skrifstofa FÍ út yfirlit yfir félagsstarf, ferđir og annađ ţađ sem spennandi kann ađ vera fyrir áhugfólk um ferđalög og náttúru.
Eitt fjall á vikuFerđafélag barnannaSkráđu ţig í FerđafélagiđLaugavegurinnSkálar - yfirlitskortFerđaáćtlun 2010Safnađu fjöllum međ FÍ

Slóđin mín:

Forsíđa » Fréttasíđa

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Information in other languages

  • Information in English
  • Informationen auf Deutsch

Mynd