Fréttir
7.1.2010
Eitt fjall á viku - upplýsingar
Markmið
- Ganga á 52 fjöll á árinu•Stunda relgulega útiveru og hreyfingu
- Taka þátt í skemmtilegum félagsskap
- Setja sér ýmis önnur markmið um bætt líkamlegt form, þol og þrek, styrkjast, léttast osvfrv.
Fyrirkomulag
- Eitt fjall á viku, samtals 52 fjöll á árinu.
- Fyrstu 6 gönguferðirnar eru á sunnudögum kl. 11, næstu 6 gönguferðirnar eru á laugardagsmorgnum kl. 9, næstu 6 eru á miðvikudögum kl. 18 og næstu 6 eru á fimmtudögum kl. 18. Á þremur vikum ársins er safnað 10 fjöllum ţannig að færi gefist á 10 vikna sumarfríi. Í sumarfríinu eru heimaverkefni sem eru eitt fjall á viku, að eigin vali en bent verður sérstaklega á 10 fjöll víða um land og sérstaklega er bent á ferðaáætlun deilda FÍ.
Búnaður
- Góðir gönguskór
- Göngufatnaður/hlífðarfatnaður/ vatns og vindheldur, auka peysa, ull eða fleece
- Legghlífar
- Bakpoki
- Sólglerauga
- Göngustafir
- (fararstjórar hafa með sér ýmsan öryggisbúnað, gps tæki, talstöðvar, sjúkrakassi, góða skapið ofl.
Fjöllin 52
•Helgafell Arnarfell •Úlfarsfell Búrfell •Mosfell Vörðufell •Grímarsfell Mosfell •Húsfell Fjallið eina •Skálafell Eyjar í Hraunhafi •Móskarðshnúkar (Þórmörk – helgarferð) •Valahnúkar Valahnúkur •Keilir Rjúpnafell •Helgafell – Mosó Réttarfell •Vífilsfell Útigönguhöfði •Hrafnabjörg Háutindar •Hekla Snæfellsjökull •Ţverfellshorn •Stóra Kóngsfell •Akrafjall •Hengill •Hvannadalshnúkur •Herðubreið •Botnssúlur Ármannsfell •Búrfell •Skálafell – Hellisheiði •Ţorbjörn •Skarðsmýrarfjall •Kvígindisfell Kerling •Skjaldbreiður •Hlöðufell •Laugarvatnsfjall •Gullkista – Miðdalsfjalli •Heiðartoppur Hoffell •Miðdegishnúkur við Kleifarvatn •Festarfjall Tröllakirkja •Heiðarhorn •Hvalfell •Stóri Meitill •Geitafell Einhyrningur •Ingólfsfjall •Jórutindur - Dyrafjöll Sveinstindur
Ţátttökugjald í verkefninu
- Kr. 1000 á fjall, alls kr. 52.000 sem ganga þarf frá í upphafi verkefnis
- Skipta má greiðslum niður í allt að fjórar greiðslur.
- Í öllum ferðum er farið á einkabílum. Ţátttakendur taka þátt í sameiginum ferðakostnaði
- Hægt að fá styrki frá vinnuveitanda/stéttarfélögum til þátttöku í verkefninu.
Nýjar auglýsingar
Leit
Mynd






















