Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu

Fréttir

Fréttir FÍ - RSS

21.1.2010

Húsfyllir á myndakvöldi

Um 150 manns mættu á myndakvöld Ferðafélags Íslands á miðvikudagskvöld. Þar voru sýndar myndir úr skíðaferðum um fjöll og jökla að vetrarlagi. Einar Ragnar Sigurðsson sýndi myndir úr ferðum um Laugaveginn á skíðum og ferð þvert yfir Vatnajökul sumarið 1997.
Páll Ásgeir Ásgeirsson sýndi myndir úr skíðaferðum um Síðuafrétt og inn í Öskju veturna 2008 og 2009. Fjöldi gesta endurspeglar mikinn áhuga á ferðum af þessu tagi og nokkrar umræður urðu um búnað og skipulag í ferðum af þessu tagi.
Þarna voru margir ungir og áhugasamir skíðagarpar en í hópi gesta mátti einnig sjá marga þeirra sem fást við skíðaferðir af þessu tagi,  eiga marga svaðilför að baki og eru enn á ferðinni þegar ofan gefur snjó á snjó. Þarna voru líka jöklafræðingar og vísindamenn og nokkrir af elstu og virtustu félögum Jöklarannsóknarfélags Íslands,  nafntogaðir fararstjórar og fjallarefir.

PÓSTLISTASKRÁNING

Með reglulegu millibili sendir skrifstofa FÍ út yfirlit yfir félagsstarf, ferðir og annað það sem spennandi kann að vera fyrir áhugfólk um ferðalög og náttúru.
Eitt fjall á vikuFerðafélag barnannaSkráðu þig í FerðafélagiðLaugavegurinnSkálar - yfirlitskortFerðaáætlun 2010Safnaðu fjöllum með FÍ

Slóðin mín:

Forsíða » Fréttasíða

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Information in other languages

  • Information in English
  • Informationen auf Deutsch

Mynd