Beint á leiđarkerfi vefsins
Fara á forsíđu

Fréttir

Fréttir FÍ - RSS

8.3.2010

Ferđafélag Austur-Skaftfellinga 30 ára

Ferðafélag Austur-Skaftfellinga var stofnað 9. mars 1980 og er því 30 ára um þessar mundir. Rannveig Einarsdóttir, formaður félagsins sagði í samtali við heimasíðu FÍ að félagsmenn horfðu glaðir til framtíðar á þessum tímamótum og rífandi gangur væri í starfinu.
Félagið rekur einn skála, Múlaskála í Lónsöræfum og hefur gistináttum þar fjölgað verulega milli ára og mikið bókað í sumar.
Sunnudaginn 14. mars kl. 14.00  verður afmæliskaffi í Nýheimum á Höfn þar sem félagsmenn og velunnarar fagna saman og deila minningum og myndum. Dregið verður lukkuleik Strandgöngu sem staðið hefur yfir og kynnt ferðadagskrá komandi sumars.
Í sumar verður afmælisins minnst með ýmsum hætti. Búið er að skipuleggja hópferð til Noregs og helgina 23-25 júlí verður efnt til afmælisgleði í Lónsöræfum. Þar verður boðið upp á mismunandi gönguferðir við sem flestra hæfi.
Náttúruperlan Lónsöræfi er magnaður staður þar sem logandi líparít, angandi birkiskógar og beljandi jökulsár heilla gesti. Steinrunninn flokkur trölla í Tröllakrókum, himinháir nafnlausir fossar og sérstæð eyðibýli og yfir dýrðinni gnæfa skínandi þök Vatnajökuls og klettaborgir hárra tinda.


PÓSTLISTASKRÁNING

Međ reglulegu millibili sendir skrifstofa FÍ út yfirlit yfir félagsstarf, ferđir og annađ ţađ sem spennandi kann ađ vera fyrir áhugfólk um ferđalög og náttúru.
Eitt fjall á vikuFerđafélag barnannaSkráđu ţig í FerđafélagiđLaugavegurinnSkálar - yfirlitskortFerđaáćtlun 2010Safnađu fjöllum međ FÍ

Slóđin mín:

Forsíđa » Fréttasíđa

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Information in other languages

  • Information in English
  • Informationen auf Deutsch

Mynd