Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu

Fréttir

Fréttir FÍ - RSS

14.5.2007

BANF kvikmyndasýning í Háskólabíói 15. - 16. maí

  Ævintýraþrá, adrenalín og útivist í BÍÓ!

Hin árlega BANFF kvikmyndasýning verður haldin í Háskólabíói 15. og 16. maí næstkomandi. Um er að ræða stuttmyndir af afrekum og ævintýrum einstaklinga sem stunda fjallamennsku, snjóbretti, fjallahjólamennsku, klifur, kajak, base jumping og fleira. Myndirnar eru eins fjölbreyttar og þær geta verið en allar eiga það sameiginlegt að fjalla um samspil einstaklingsins við náttúruna þar sem adrenalín og góð skemmtun eru sjaldan fjarri.

Sýningarkvöldin verða tvö og verður myndefnið mismunandi á þessum tveimur kvöldum. Um er að ræða samtals fjóra tíma af ævintýraþrá, adrenalíni og útivist. Sýningar verða í Háskólabíó dagana 15. og 16. maí og hefjast sýningar klukkan 20:00. Verð á hverja sýningu er 1000 krónur en 800 fyrir félagsmenn Ísalp.

 Dagskrá

15. Maí

Anomaly (skíði/snjóbretti)

First ascent: Tailand (klifur)

Patagonia – Travel to the end of the world (leiðangur)

The Simplicity Factor (klifur)

Awberg (ísklifur)

Roam (fjallahjól)

 

16. Maí

Yes to the No (snowboarding)

Unchained (fjallahjól)

Fatimas Hand (klifur/BASE jump)

Kids who Rip (skíði/snjóbretti/hjólabretti/surf)

Didier vs. the Cobra (klifur)

Mission Epiocity (kajak)

 

Ísalp – klúbbur fyrir “jaðar útivistarfólk”

Markmið Ísalp er að efla áhuga manna á fjallamennsku í greinum eins og fjallgöngum, klettaklifri, ísklifri, gönguskíði, telemark, skíðamennsku, snjóbretti og margt fleira.  Boðið er upp á námskeið í flestum þáttum fjallamennskunnar, farnar eru ferðir við flestra hæfi, haldnar eru sýningar og myndbandskvöld og gefið er út ársrit Ísalp. Allar upplýsingar um starfsemi félagsins má finna á vef félagsins, www.isalp.is.


PÓSTLISTASKRÁNING

Með reglulegu millibili sendir skrifstofa FÍ út yfirlit yfir félagsstarf, ferðir og annað það sem spennandi kann að vera fyrir áhugfólk um ferðalög og náttúru.
Eitt fjall á vikuFerðafélag barnannaSkráðu þig í FerðafélagiðLaugavegurinnSkálar - yfirlitskortFerðaáætlun 2010Safnaðu fjöllum með FÍ

Slóðin mín:

Forsíða » Fréttasíða

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Information in other languages

  • Information in English
  • Informationen auf Deutsch

Mynd