Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu

Fréttir

Fréttir FÍ - RSS

17.12.2007

Göngugleðin á gönguskíðum

Sunnudaginn 9. des. kom ekkert annað til greina en að fara á gönguskíði. Það var nægur snjór og gott færi til þeirrar iðkunar á Bláfjallasvæðinu. Við gengum þennan hefðbundna hring sem að þessu sinni var ekki troðinn. Það var nánast logn mestallan tímann og sólarlaust, en góð fjallasýn.

Þegar við nálguðumst Kerlingarhnjúk var hóað í okkur. Það reyndist vera lítill hópur Útivistarfélaga sem sum okkar könnuðumst við. Okkur var boðið upp á hollenskar piparkökur að hætti Marrittar hjólagarps. Við vorum aftur komin að bílunum eftir rúmlega 10 km. göngu sem tók 3 klst. með tilheyrandi mynda- og kaffistoppum. 

Pétur Þorleifsson mætti auk okkar á Vegginn (Mörkina 6) og réð okkur heilt, en hann hafði farið á gönguskíði daginn áður, en var nú spariklæddur á leið á kirkjutónleika.


PÓSTLISTASKRÁNING

Með reglulegu millibili sendir skrifstofa FÍ út yfirlit yfir félagsstarf, ferðir og annað það sem spennandi kann að vera fyrir áhugfólk um ferðalög og náttúru.
Eitt fjall á vikuFerðafélag barnannaSkráðu þig í FerðafélagiðLaugavegurinnSkálar - yfirlitskortFerðaáætlun 2010Safnaðu fjöllum með FÍ

Slóðin mín:

Forsíða » Fréttasíða

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Information in other languages

  • Information in English
  • Informationen auf Deutsch

Mynd