Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu

Fréttir

Fréttir FÍ - RSS

28.4.2008

Morgungöngur FÍ 5. - 9. maí

5 . – 9. maí, mánudagur - föstudags.

Morgungöngur Ferðafélagsins hefjast mánudaginn 5. maí.  Allla morgna þá viku ( 5. - 9. maí) verður gengið á fjall í nágrenni Reykjavíkur og lagt af stað við fyrsta hanagal eða klukkan sex að morgni. Gengið verður á Helgafell ofan Hafnarfjarðar, Keili, Vífilsfell,  Helgafell  í Mosfellssveit og Úlfarsfell. Áætlað er að hverri gönguferð ljúki um níuleytið.  Morgungöngur Ferðafélagsins hófust árið 2004 og tóku 5 þátt í fyrstu göngunni. Sl. vor tóku um 250 manns þátt í öllum fmm göngunum.  Þátttaka er ókeypis, allir velkomnir.

Fararstjóri: Páll Ásgeir Ásgeirsson.

Valdimar Örnölfsson stjórnar morgunleikfimi á bílastæðinu við Kaldársel í fyrstu gönguferðinni á mánudagsmorgun. Í hverri gönguferð er nýr gestur í ferðinni sem verður með innlegg af einhverju tagi til ferðarinnar.

Á fjöll við fyrsta hanagal. Fjallganga í nágrenni Reykjavíkur eldsnemma morguns, alla daga vikunnar.  Komið til baka um kl. 9. Farið á einkabílum.

Þátttaka ókeypis. Allir velkomnir.

Mánudagur 5. maí - Helgafell í Hafnarfirði
Þriðjudagur 6. maí - Keilir
Miðvikudagur 7. maí - Vífilsfell
Fimmtudagur 8. maí - Helgafel ofan Mosfellsbæjar
Föstudagur 9. maí - Úlfarsfell með morgunsöng og morgvunverði á toppnum.

Lagt er af stað frá Mörkinni 6 kl. 6 stundvíslega. Einnig er hægt að mæta að upphafsstað göngu við viðkomandi fjall.

Lagt er af stað sem hér segir frá upphafsstað sem hér segir:

Helgafell - bílastæðið við Kaldársel kl. 6.15
Vífilsfell - bílastæðið  við námur kl. 6.20
Keilir - bílastæðið Höskuldarvelli kl. 6.30
Helgafell, bílastæði kl. 6.15
Úlfarsfell - bílastæði sunnan við fellið kl. 6.10


PÓSTLISTASKRÁNING

Með reglulegu millibili sendir skrifstofa FÍ út yfirlit yfir félagsstarf, ferðir og annað það sem spennandi kann að vera fyrir áhugfólk um ferðalög og náttúru.
Eitt fjall á vikuFerðafélag barnannaSkráðu þig í FerðafélagiðLaugavegurinnSkálar - yfirlitskortFerðaáætlun 2010Safnaðu fjöllum með FÍ

Slóðin mín:

Forsíða » Fréttasíða

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Information in other languages

  • Information in English
  • Informationen auf Deutsch

Mynd