Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu

Álftavatn - Emstrur

Álftavatn-Botnaskáli á Emstrum

Álftavatn: GPS staðsetning 63°51,470 19°13,640
Botnaakáli: GPS staðsetning 63°45,980 19°22,450
Vegalengd 15 km.
Áætlaður göngutími 6-7 klst.
Lóðrétt lækkun 40 m.

Laug - Álftavatn

Myndir frá skála FÍ við Álftavatn

Frá Álftavatni suður í Botna á Emstrum eru tvær mögulegar leiðir

A)    Leiðin um Hvanngil. Þá er haldið í austur frá skálanum eftir stikaðri leið og austur í Hvanngil. Vaða þarf Bratthálskvíslina sem varla getur talist mikið mál. Einnig er hægt að ganga eftir bílveginum. Útsýni af brúninni ofan Hvanngils, suður og austur yfir fjöllin er ægifagurt. Leiðin liggur síðan suður Emstrur að mestu um örfoka land. Sé veður þurrt með vindi eru á líkur sandfoki. Vaða þarf Bláfjallakvísl. Yfir hinar árnar, Kaldklofskvísl og Innri-Emstruá eru brýr. 

Eftir að komið er Emstruá er gengið á milli Útigönguhöfðanna. Það er nálægt klst. gangur súður í Botnaskála á Emstrum.

 B)     Leiðin um Brattháls og Klámbrekku. (ráðfærið ykkur við skálavörð) Fyrst er haldið beint suður með Álftavtni að autanverðu og síðan austur yfir Brattháls þar sem hann er um það bil að verða jafnhár landinu í kring. Gengið niður Klámbrekku og Kaldaklofskvísl vaðin þar sem hún beygir til suðurs. Talsvert vatn getur verið í kvíslinni en það er lygnt og því fremur auðvaðið. Þaðan er gengið í suðaustur með Stóru-Súlu á vinstri hönd og komið inn á aðalgönguleiðina rétt norðan við Innri-Emstruána. 

 Höskuldsskáli við Hrafntinnusker – Álftavatn

Höskuldsskáli:  GPS staðsetning 63°55,840 19°09,700,
Álftavatn: GPS staðsetning 63°51,470 19°13,640
Vegalengd 12 km.
Áætlaður göngutími 4-5 klst.
Lóðrétt lækkun 490 m.

Héðan er haldið til suðurs yfir slétturnar vestur af Reykjafjöllum, stefnan tekin á vestanverð Kaldaklofsfjöll og upp á hrygginn (GPS staðsetning 63°55.123' 19°09.208) á milli þeirra og Jökulgils. Á þessum hluta leiðarinnar eru nokkrir gilskorningar sem geta virst fullir af snjó en í raun er það einungis þunnt snjólag. Því er nauðsynlegt að gæta sérstkrar varúðar. Betra er krókur en kelda. Eftir þetta fer að halla niður í móti og að lokum er farið niður brattar Jökultungurnar. Þá er komið niður að Grashagakvísl sem oft þarf að vaða. Þar er gott að taka matarhlé. Eftir það er auðveld og auðrötuð leið til suðvesturs að Álftavatni

Markvert á leiðinni

1. Ganga á Háskerðing í góðu skyggni er ólýsanlegt, það þurfa menn að upplifa. Gangið frá hryggnum sem nefndur var hér að ofan og hafið hnúkinn sem er rétt við leiðina á hægri hönd.  Þá blasir Háskerðingur við framundan. Gætið að sprungum sérstaklega á efsta hluta leiðarinnar. Toppurinn er hins vegar yfirleitt snjólaus.

2. Gefið ykkur góðan tíma til að njóta stórbrotins útsýnis frá brún Jökultungna

Þar ber mest á jöklunum þremur, Mýrdals- Eyjafjalla- og Tndfjallajökli.

     

 

 

 

 


PÓSTLISTASKRÁNING

Með reglulegu millibili sendir skrifstofa FÍ út yfirlit yfir félagsstarf, ferðir og annað það sem spennandi kann að vera fyrir áhugfólk um ferðalög og náttúru.
Eitt fjall á vikuFerðafélag barnannaSkráðu þig í FerðafélagiðLaugavegurinnSkálar - yfirlitskortFerðaáætlun 2010Safnaðu fjöllum með FÍ

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Information in other languages

  • Information in English
  • Informationen auf Deutsch

Mynd